Fréttablaðið - 07.11.2009, Page 64
10 FERÐALÖG
Í hugum fl estra er það ómissandi þáttur í jólahaldinu að vera heima með fjöl-
skyldunni. En það er líka hægt að skemmta sér konunglega við strendur Hawaii,
ylja sér við vel kryddaðar smákökur í Salzburg og njóta miðnæturmessu páfans
í Vatíkaninu. Margir kjósa nefnilega að breyta aðeins til um jólin, láta sig
hverfa úr hinu séríslenska jólastressi þar sem krítarkortin eru straujuð eins og
jólaskyrturnar. Ferðalöngum bjóðast margir skemmtilegir kostir og vefsíðan
travelandleisure.com tók saman nokkra forvitnilega staði þar sem hægt er að
eyða jólunum á þann hátt sem varla er hægt að gleyma.
JÓLAHALD Á
FJARLÆGUM SLÓÐUM
Salzburg í Austurríki Hvern dreymir ekki um að vakna við
klukknahljóm á jóladag, þeysast um á hestvagni og gæða
sér á ilmandi smákökum í hverri götu?
Big Island á Hawaii Þeir sem vilja losna frá kulda og
trekki geta skellt sér til Hawaii. Það brýtur óneitanlega
upp jólahaldið að kafa með skjaldbökum á jóladags-
morgun. Og kannski kemur Jóli bara á opnum kanó.
Club Med Punta Cana í Dóminíska lýðveldinu Hafi fólk í huga lúxusjól er
kannski rétt að benda á glæsilega hótelið Club Með Punta Cana í Dómin-
íska lýðveldinu sem ku víst vera draumastaður sérhvers barns. Og jólin
eru hátíð smáfólksins. Engu er til sparað um jólin á þessum slóðum,
krakkarnir læra að kafa og standa á sjóbrettum, fá gjafir frá jólasvein-
inum á jóladag og geta síðan étið á sig gat á glæsilegu veisluhlaðborði
þar sem súkkulaði flæðir um öll borð. Allt er til alls þarna enda var
hótelið nýverið endurnýjað fyrir rúmar 35 milljónir dala.
Róm Jólahaldið í Róm er auðvitað hátíð fyrir hina sanntrúuðu. Enda komast þeir
ekki á hverjum degi í tæri við hina rómuðu miðnæturmessu páfans í Vatík-
aninu. Og menn hafa úr ýmsu að velja. Ferðalangar geta þannig valið á milli
þess að dveljast á hágæða hótelinu Hotel de Russie þar sem Daniel Day-Lewis
og Cameron Diaz kusu að eyða síðustu aldamótum. Eða hreinlega fengið sér
herbergi á einhverjum af hinum fjölmörgu gistiheimilum borgarinnar og komast
þannig í nánd við jólahefð Rómverja.
Yosemite í Kaliforníu Staðurinn hentar fullkomlega fyrir þá sem vilja hafa eitthvert líf í tuskunum yfir jólin og njóta alls þess besta sem heilnæm útivera hefur upp
á að bjóða. Hægt er að fara á skíði, skauta og langar gönguferðir um stórkostlegt landslag þjóðgarðsins og láta síðan þreytuna líða úr sér við varðeld og kvöld-
vökur. Áhugamenn um langa kvöldverði ættu ekki að láta hina þriggja klukkustunda löngu matarveislu á hótelinu 1927 Ahwahnee fram hjá sér fara.