Fréttablaðið - 07.11.2009, Síða 80

Fréttablaðið - 07.11.2009, Síða 80
 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR Heimildarmyndin Draumalandið eftir Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magnason, byggð á bók þess síðarnefnda, er eitt viðamesta heimildarverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi og sló aðsóknarmet í flokki íslenskra heimildarmynda þegar hún var sýnd í bíóhúsum hér á landi síð- astliðið vor og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Nú hefur verið greint frá vali mynda í aðalkeppni heimildar mynda á kvikmyndahá- tíðinni í Amsterdam, IDFA, sem helguð er heimildarmyndum og er virtasta hátíð þeirrar gerðar í Evr- ópu. Draumalandið hefur nú verið valið þar til sýninga og tekur þátt í aðalkeppninni. Er frumsýning þar ytra fyrirhuguð hinn 24. nóvem- ber í Tuschinski-kvikmyndahús- inu í Amsterdam, einu fallegasta „art deco“-kvikmyndahúsi í Evr- ópu, að viðstöddum leikstjórum. Hátíðin stendur frá 19.-29. nóvember í ár. Um 2.000 myndir sækja um þátttöku á IDFA ár hvert og tæplega 200 myndir eru sýnd- ar á hátíðinni en aðeins 17 myndir voru valdar í keppnina í ár og er Draumalandið ein þeirra. Það er mikið keppikefli kvikmyndagerð- armönnum og framleiðendum að koma myndum sínum á hátíðina og stendur valið yfir sumarlangt fram á haust. Hafa þeir IDFA- menn, eins og flestir forráðamenn stærri hátíða, lagt áherslu á að ná til sín frumsýningum á nýjum myndum og verður því að teljast nokkur árangur hjá framleiðend- um Draumalandsins að myndin skuli tæk í aðalkeppni þótt langt sé liðið frá frumsýningu hennar hér á landi. Draumalandið keppir því meðal bestu mynda á heims- mælikvarða. Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk heimildarmynd er valin í aðalkeppnina á IDFA og því stór áfangi fyrir íslenska kvik- myndagerð og mikill heiður fyrir kvikmyndagerðamennina sem að myndinni stóðu. Keppt er um aðal- verðlaunin, 12.500 evrur, svo eftir nokkru er að slægjast. Þar að auki hefur Draumalandið verið valin ein af fimm myndum sem munu ferðast um kvikmynda- hús í Hollandi meðan á hátíðinni stendur og einnig hefur Ally Derks, stjórnandi hátíðarinnar, valið Draumalandið sem eina af sínum tíu uppáhaldsmyndum og verður hún sýnd í sérstöku viðhafnarprógrammi ásamt þeim myndum að hátíð lokinni. Þannig að það verða margir sem munu sjá Draumalandið af hollenskum þegnum næstu mánuði og bætist þar enn við orðspor þjóðarinnar í Niðurlöndum. Íslenskir kvikmyndagerðar- menn hafa í langan tíma sótt Amsterdam heim meðan á IDFA hefur staðið, flestir þó til að taka þátt í fjáröflunarstefnunni sem þar er haldin í tengslum við hátíð- ina en þar koma saman allir helstu dagskrárstjóra stöðva í Evrópu og heyra kynningar á nyjum verkefn- um í heimildamyndagerð. Ekkert íslensk verkefni komst þar á blað í ár. - pbb Draumaland til Amsterdam KVIKMYNDIR Þorfinnur Guðnason leik- stjóri, höfundur handrits eftir bókinni og hinn leikstjóri hennar. KVIKMYNDIR Andri Snær Magnason rithöfundur og annar leikstjóri Drauma- landsins. F R U M F L U T N I N G U R Á D E G I H E I L A G R A R S E S S E L Í U ÓRATÓRÍAN EFTIR ÁSKEL MÁSSON CECILÍA FYRIR FJÓRA EINSÖNGVARA, BLANDAÐAN KÓR, TVÖ ORGEL OG HLJÓMSVEIT TEXTI: THOR VILHJÁLMSSON STEINHARPA OG VATNSTROMMUR EFTIR PÁL Á HÚSAFELLI Þ ó ra E i n a r s d ó t t i r s ó p ra n : H e i l ö g C e c i l í a , v e r n d a r d ý r l i n g u r t ó n l i s t a r i n n a r B ra g i B e rg þ ó r s s o n te n ó r : Va l e r í a n u s , e i g i n m a ð u r C e c i l í u Ág ú s t Ó l a fs s o n b a r í to n : T í b ú r k í u s , b r ó ð i r Va l e r i a n u s a r B j a r n i Th o r K r i s t i n s s o n b a s s i : A l m a k h í u s g r e i f i Þ ó rg u n n u r A n n a Ö r n ó l fs d ó t t i r : e n g i l l M ó t e t t u kó r H a l l g r í m s k i r k j u K a m m e r s ve i t H a l l g r í m s k i r k j u Ko n s e r t m e i s t a r i : U n a Sve i n b j a r n a rd ó t t i r S t j ó r n a n d i : H ö r ð u r Á s ke l s s o n HALLGRÍMSKIRK JA SUNNUDAGINN 22. NÓVEMBER 2009 KL. 16.00 Ó r a t ó r í a n Ce c i l í a f j a l l a r u m l í f ve r n d a rd ý r l i n g s tó n - l i s t a r i n n a r, h e i l a gra r S e s s e l í u , s e m t a l i n e r h a f a d á i ð p í s l a r v æ t t i s - d a u ð a í R ó m á 3 . ö l d . H e i m i l d i r gre i n a f rá þ v í a ð S e s s e l í a h a f i ve r i ð n a f n - d ý r l i n g u r H ú s a fe l l s k i r k j u í k a þ ó l s k- u m s i ð o g e r s ö g u s v i ð i ð H ú s a fe l l í B o rg a r f i r ð i o g R ó m a r b o rg. Ve r k i ð v a r p a n t a ð a f L i s t v i n a f é l a g i H a l l g r í m s k i r k j u m e ð s t y r k f r á K r i s t n i h á t í ð a r s j ó ð i , Tó n l i s t a r s j ó ð i m e n n t a m á l a r á ð u n e y t i s i n s , M e n n i n g a r - o g f e r ð a m á l a r á ð i R e y k j a v í k u r b o r g a r o g K r i s t n i s j ó ð i . LIST VINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRK JU 27. STARFSÁR Þýska sendiráðið og Goethe-Institut minna á Fyrir 20 árum féll Múrinn Goethe-Stofnunin verður þann 09. nóvember frá kl. 17.00 í Norræna Húsinu að minnast falls múrsins á langri kvikmyndanóttu með kvik- myndunum “Nikolaikirche” og frá kl. 19:45 “Deutschland- spiel“. Kvikmyndirnar verða sýndar á þýsku með enskum texta. Aðgangur ókeypis. Þýski sendiherrann býður öllum áhugasömum þýskra bókmennta og atburðarins 9. nóvember 1989 að koma þann 12. nóvember 2009 kl. 19.00 í Túngötu 18, 101 Reykjavík, á rithöf- undalestur þriggja þýskra rithöfunda. Renatus Deckert, Annett Gröschner og Thomas Rosenlöcher munu lesa úr bókinni “In der Nacht als die Mauer fi el” (Um nóttina þegar múrinn féll) og síðan svara spurningum viðstaddra. Aðgangur ókeypis. Deutsche Botschaft und Goethe Institut erinnern Vor 20 Jahren fi el die Mauer Das Goethe-Institut wird am 09. November 2009 im Nor- dischen Haus von 17.00 Uhr an in einer langen Filmnacht mit den Filmen “Nikolaikirche” und um 19:45 Uhr “Deutsch- landspiel” an den Mauerfall erinnern. Die Filme werden auf deutsch mit englischen Unter- titeln vorgeführt. Eintritt frei. Der deutsche Botschafter lädt alle an deutscher Literatur und den Ereignissen des 9.Novem- ber 1989 Interessierten am 12. November 2009 um 19.00 Uhr in die Túngata 18, 101 Reykjavík, zu einer Dichterle- sung dreier deutscher Autoren ein. Renatus Deckert, Annett Gröschner und Thomas Rosen- löcher werden aus dem Buch „In der Nacht als die Mauer fi el“ lesen und sich dann den Fragen der Teilnehmer stellen. Eintritt frei.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.