Fréttablaðið - 07.11.2009, Page 84
56 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
> GLÆSILEG OG SPENNANDI SÝNING
Í verslun Steinunnar Sigurðardóttur er um þessar
mundir glæsileg og spennandi sýning á höttum
fransk/íslensk/tyrkneska hönnuðarins Ozden Dora
sem lærði í London og er búsett þar. Hattarnir
eru innblásnir af snjó og ís og verða til sýnis í
nóvember.
Nú fer að líða að jólum og þessi tími fram undan er sannarlega í miklu
uppáhaldi hjá mér. Ég elska stemninguna sem myndast í nóvember og
desember, skammdegi, kuldi og stjörnubjartur himinn og spenningur í
loftinu hjá stórum og smáum vegna hátíðarhaldanna sem í vændum eru.
Þetta er sannarlega tími til að verja með fjölskyldu og vinum. En einn
er þó gallinn: allt í kringum mig spretta upp greinaskrif í blöð og sjón-
varpsþættir um hvernig eigi að prjóna lopapeysur, föndra jólaföndur
eða baka piparkökur. Nú játa ég að á öllum þessum fyrrgreindum svið-
um er ég í einu orði sagt algjör illi. Ég hef aldrei prjónað neitt meira
en langan trefil sem fann engan enda, og ef límstifti, skæri og pappírs-
blað eru sett fyrir framan mig brýst mitt eðlislæga hrútseðli fram og
óþolinmæðin gerir það að verkum að ég lími allt annað saman en jóla-
skrautið. Bakstur hjá mér byrjar og endar á franskri súkkulaðiköku og
hefur mér þótt það vel nægjanlegt hingað til. (Það skal þó tekið fram
að öll önnur matargerð er mér mjög að skapi og þar fá listrænir hæfi-
leikarnir verulega útrás). En málið er bara að ég tel að ég hafi alist upp
í þeirri kynslóð þar sem jafnrétti er algjört og að bakstur, þrif, prjón
og jólaföndur eru bara ekkert einskorðuð við kvenpeninginn. Það fer
alltaf hálfpartinn í taugarnar á mér þegar kynsystur mínar stæra sig
af því hvernig þær geta mundað Ajax-brúsann með annarri hendi og
kökukefli með hinni á meðan þær prjóna ungbarnahúfur alla restina af
tímanum. Facebook-staða hjá þessum kvensum snýst um að segja heim-
inum að þær séu búnar að þrífa húsið hátt og lágt, elda þriggja rétta
kvöldverð handa „karlinum“ og búa til jóladesertinn sem bíður væntan-
lega í frystinum næstu tvo mánuðina. Vinna þessar
konur ekki neitt og eyða þær fjölskyldustund-
unum í ryksugun? Kannski er ég bara öfund-
sjúk en ekki sé ég svona yfirlýsingar hjá strák-
unum. Jólaundirbúningurinn á heldur ekkert
að snúast um svona stress. Það er ekkert
mál þó að piparkökurnar séu úr dollu og
húsið sé skreytt viku fyrir jól. Aðal-
atriðið er að allir geti slakað
á og notið samvistanna.
Jólahúsmæður fara á stjá
Ótrúlega töff stálgrátt
naglalakk frá Make Up
Store. Nútímalegt og
svalt.
Nýjasta „mineral“ púðr-
ið frá Estée Lauder sem
nærir húðina og lítur
ótrúlega eðlilega út.
Þessa klassísku og
kvenlegu gráu kápu frá
SportMax. Fullkomin fyrir
veturinn og fæst í GK.
Íslenski hönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir, sem einnig var skipuð
borgarlistamaður Reykjavíkurborgar í ár, sýndi dásamlega fallega línu
fyrir haust og vetur á tískuvikunni í Mílanó. Fyrir þessa tilteknu línu
segist Steinunn hafa fengið innblástur frá Íslandi. „Fötin eru saman-
sett af auðlindum íslands. Myrkrinu, snjónum og norðurljósunum.“ Hér
gefur að líta sýn Steinunnar á veturinn sem er að hefjast. - amb
LÍNA STEINUNNAR FYRIR HAUST OG VETUR:
Samansett af
auðlindum Íslands
TÚRKISBLÁTT
Falleg skyrta
við stutt
svart pils.
GLÆSILEGT
Aðsniðinn jakki
og kögurpils.
GAMALDAGS
Flottur hvítur
kjóll með svartri
blúndu.
GEGNSÆTT
Svartur kjóll
með kögri
við fallega
húfu.
KVENLEGT
Aðsniðin
dragt í svörtu.