Fréttablaðið - 07.11.2009, Qupperneq 91
LAUGARDAGUR 7. nóvember 2009
Nýja platan með Hjaltalín heitir
Terminal og fylgir eftir Sleep-
drunk Seasons, sem kom út
fyrir jólin 2007. Nýja platan er
í vinnslu erlendis um þessar
mundir og kemur til landsins
eftir tæpar tvær vikur. Nokkur
spenna hefur skapast fyrir plöt-
unni, sem minnir kannski helst
á þá stemningu sem var í gangi
þegar Sigur Rós sendi frá sér
Ágætis byrjun fyrir rúmum tíu
árum. Ef Sigur Rós var Þursa-
flokkur X-kynslóðarinnar er
spurning hvort Hjaltalín sé Tod-
mobile krúttkynslóðarinnar. Að
minnsta kosti er Hjaltalín ófeim-
in við mikið flúr og skraut og
nýtir möguleika sinfóníuhljóm-
sveitarinnar til hins ýtrasta á
Terminal.
Á plötunni eru lögin „Suit-
case Man“ og „Stay by You“
sem þegar hafa heyrst, auk níu
annarra. Öll eru sungin á ensku.
Umslagið gerir Regína María
Árnadóttir. Nú er bara að sjá
hvort platan stendur undir vænt-
ingum. - drg
Beðið eftir Hjaltalín
VÆNTINGAR Umslag Terminal með
Hjaltalín.
Stelpur báru sigur úr býtum í
öllum flokkum á stuttmynda hátíð
unga fólksins, Ljósvakaljóðum,
sem var haldin í Norræna hús-
inu. Besta stuttmyndin var valin
Dinner Is Served eftir Gunni Þór-
hallsdóttur Von Matern. Myndin
er sjö mínútur að lengd og fjallar
um fjölskyldu sem fer vægast sagt
óhefðbundna leið að því að halda
sér fullkominni. Besta handrit-
ið af þeim tuttugu sem tóku þátt
í keppninni var Lítil hjálp eftir
Höllu Míu Ólafsdóttur. Bestu
hugmyndina átti Áslaug Einars-
dóttir sem kynnti hugmynd að
heimildarmynd um uppistandara-
hóp kvenna sem eru allar fyrr-
verandi kærustur frægra uppi-
standara. Leikstjórarnir Ragnar
Bragason, Silja Hauksdóttir og
Ottó Geir Borg voru í dómnefnd
fyrir bestu stuttmyndina. Dóm-
nefndina í handritaflokknum
skipuðu þau Friðrik Þór Friðriks-
son, Silja Hauks dóttir og Bergur
Ebbi Benediktsson.
- fb
Stelpurnar sigruðu
SIGURVEGARI Gunnur Þórhallsdóttir Von
Matern ásamt Ragnari Bragasyni og Silju
Hauksdóttir sem voru í dómnefnd.
Helgi Björnsson
flytur ljúfar dægurperlur og jólalög
Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi
Nánari upplýsingar á grand.is
514 8000Pantanir í síma
NÝ BÓK EFTIR ÓLAF HAUK
Fuglalíf á Framnesvegi
er sjálfstætt framhald
Flugu á vegg sem út kom
í fyrra og hlaut einróma
lof gagnrýnenda. Hér
heldur höfundur áfram
að rekja uppvaxtarsögu
drengsins í Vesturbæ
Reykjavíkur fram á
unglingsár. Gamansöm,
dramatísk og hugljúf
saga sem lætur engan
ósnortinn.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Nokkrar umsagnir um Flugu á vegg:
Ljúfsár ... hrífandi ... dramatísk og einlæg ...
– Einar Falur Ingólfsson, Lesb. Mbl.
Unaðslegt að lesa þetta ... virkilega góð bók
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan
★★★★
Ólafur er leiftrandi höfundur þe
hann er bestur. ... Það er heiður
yfir frásögninni allri, væntumþy
ekkert væl.
– Páll B. Baldvinsson, Fréttabl.