Fréttablaðið - 07.11.2009, Síða 94
66 7. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Guðlaugur Victor Páls-
son var fljótur að festa sig í sessi
hjá varaliði enska úrvalsdeildar-
liðsins Liverpool en hann gekk til
liðs við félagið í janúar.
Hann hefur síðan þá aðallega
spilað á miðjunni eða sem bak-
vörður. Hann var í nýju hlutverki
þegar Liverpool mætti Everton
á þriðjudagskvöldið. Þá lék hann
sem miðvörður.
„Victor stóð sig vel í nýrri
stöðu,“ sagði John McMahon þjálf-
ari. „Við teljum að þetta gæti verið
hans framtíðarstaða vegna þess
að hann er mikill íþróttamaður og
hefur góðar sendingar.“ - esá
GUÐLAUGUR VICTOR Hefur verið
fastamaður í varaliði Liverpool í tæpt
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Þjálfari varaliðs Liverpool ánægður með Guðlaug:
Sjáum Guðlaug fyrir
okkur sem miðvörð
Nýr starfsmaður!
Geir Sigurðsson, sigurvegari í
ungliðakeppni Intercoiffure 2009
er mættur til starfa.
hársnyrtistofa, Listhúsinu Engjateigi 17,
sími 581 3055, hjadudda@simnet.is
Umfelgun og ný dekk á góðu verði
Opið í dagfrá 9 til 13Lokað í Knarrarvogiog á Akureyri
Fræðslukvöld ÍSÍ 12. nóv.
E-salur Íþr.-miðst. í Laugardal kl. 17-21. Hafrún
Kristjánsdóttir sálfræðingur fjallar um íþróttasálfræði. Hluti
náms á 2. stigi þjálf.menntunar ÍSÍ en samt öllum opið 16
ára og eldri s.s. iðkendum. Skráning á namskeid@isi.is eða
í 514-4000. Aðeins kr. 3.500.-
Sjá nánar á www.isi.is
Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason skoðar framtíðarmögu-
leika sína þessa dagana. Hann segir líklegt að hann muni yfirgefa
herbúðir sænska félagsins Helsingborg um áramótin eftir að hafa
verið þar í tæp þrjú ár.
„Ég myndi telja það frekar líklegt að ég yfirgefi félagið um
áramótin. Þá rennur samningur minn við félagið út,“ segir Ólafur
Ingi sem getur þó verið áfram kjósi hann svo.
„Þeir hafa boðið mér nýjan samning. Hann er til eins árs
fyrir þá en tveggja ára fyrir mig. Ég get ákveðið að vera áfram
seinna árið ef ég vil. Þessi samningur er fjárhagslega lakari
en núverandi samningur enda er kreppa hér eins og annars
staðar. Á móti kemur að ég get fengið mig lausan fyrir
frekar litla fjárhæð ef það kemur spennandi tilboð,“
sagði Ólafur Ingi.
Ólafur Ingi segir að sér og sinni fjölskyldu líði vel
í Svíþjóð en hann vilji samt prófa eitthvað nýtt. Hann
neitar því ekki að hugurinn stefni að einhverju leyti til Eng-
lands. Hann var á mála hjá Arsenal í fjögur ár og svo síðar hjá
Brentford í eitt og hálft ár.
„Ég er búinn að prófa að vera í neðri deildunum á Englandi
þar sem reksturinn var erfiður. Ég væri til í að fara til Eng-
lands en þá helst ekki nema í einhverja alvöru, í lið sem er
að lágmarki í B-deildinni,“ sagði Ólafur Ingi.
Hann segist hafa fengið einhverjar fyrirspurnir frá
Englandi en það sé allt á frumstigi. Einnig hafa lið í
Svíþjóð og Danmörku haft samband.
„Ég þarf kannski að bíða aðeins lengur með
England. Liðin þar eru ekki endilega búin að sjá
hvað þau vantar fyrr en í desember. Nú þarf
maður að vera þolinmóður en það er að sama
skapi ekkert auðvelt því maður vill helst hafa sín
mál á hreinu. Ég er samt alltaf með þetta hér í Svíþjóð
þannig að ég er rólegur,“ sagði Ólafur Ingi, sem er á leið
með landsliðinu til Teheran þar sem það mætir landsliði
Írans eftir helgi.
„Það verður gaman. Ég hefði nú aldrei farið þangað
nema til að spila fótbolta. Ég er búinn að fara til Armeníu og
Georgíu með Helsingborg. Það verður gaman að bæta Íran við.“
ÓLAFUR INGI SKÚLASON: LIÐ FRÁ ENGLANDI OG DANMÖRKU SÝNA LANDSLIÐSMANNINUM ÁHUGA
Ólafur Ingi er líklega á förum frá Helsingborg
BOX Hnefaleikakapparnir David
Haye og Nikolai Valuev voru
vigtaðir í Nürnberg í Þýskalandi
í dag fyrir bardaga kappanna sem
fram fer á laugardagskvöld.
Bardaginn hefur gengið undir
nafninu Davíð og Golíat vegna
hæðar- og þyngdarmunar á köpp-
unum tveimur.
Þrátt fyrir að hinn 1,90 metra
hái Haye hafi aldrei vigtast þyngri
en hann gerði í dag, eða 99 kíló,
þá er hann samt tæpum 45 kíló-
um léttari en hinn 2,13 metra hái
Valuev.
„Haye er ekkert mikið þyngri
en hann hefur verið áður. Hann er
samt massaðari og leit frábærlega
út. Hann virtist ekki vera með
gramm af fitu utan á sér,“ sagði
Jim Watt, hnefaleikasérfræðing-
ur Sky, sem var á staðnum.
„Það sem heillaði mig mest
var grimmdin í augunum á Haye
þegar hann starði á Valuev. Hann
er mættur til þess að gera eitt-
hvað, það leyndi sér ekki. Hann er
svakalega ákveðinn,“ sagði Watt
hrifinn.
Risinn Valuev hefur aldrei verið
sleginn niður áður og Haye hefur
lofað að verða fyrsti maðurinn til
að ná þeim árangri.
Bardaginn er í útsendingu á Stöð
2 Sport og hefst útsendingin kl.
22.50 í kvöld. - óþ
Spennan farin að magnast fyrir bardaga Valuevs og Hayes sem mætast í kvöld:
Valuev er 45 kílóum þyngri en Haye
DAVÍÐ OG GOLÍAT Mætast í kvöld.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Stórleikur í Krikanum
Það verður væntanlega mikið fjör að Ásvöllum á sunnu-
dag þegar Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH mætast í
N1-deild karla. Bæði lið hafa fimm stig og
sitja í öðru og þriðja sæti deildarinnar.
Það var fullt út úr húsi þegar þessi sömu
lið mættust í fyrra og muna elstu menn
vart eftir annarri eins stemningu á leik í
efstu deild á Íslandi. Hafnfirðingar munu
vafalítið fjölmenna á leikinn nú um
helgina og almennir handbolta-
áhugamenn ættu einnig að láta sjá
sig og upplifa magnaða stemningu.
KÖRFUBOLTI „Það er frábært að
vinna feikisterkt lið KR tvisvar á
tæpri viku. Þetta var dæmigerð-
ur bikarleikur og þó svo að vörn-
in hafi ef til vill ekki gengið alveg
eins og við lögðum upp með var
sigurviljinn mikill.
Mér fannst ég vera hræðilegur
í leik liðanna á dögunum og var
ákveðinn í að bæta fyrir það og var
funheitur í kvöld,“ sagði ánægður
Magnús Þór Gunnarsson sem skor-
aði 28 stig í 90-86 sigri Njarðvíkur
gegn KR í 32-liða úrslitum Subway-
bikarsins í gærkvöldi.
Strax frá fyrsta flauti var leik-
urinn mjög hraður og harður og
leikmenn beggja liða gengu eins
mögulega langt í barningnum og
dómarar leiksins leyfðu enda sjálf-
ur bikardraumurinn í húfi. Jafnt
var á öllum tölum í fyrsta leikhluta
en staðan var 12-12 þegar hann
var hálfnaður og 24-24 að honum
loknum. Í öðrum leikhluta virtust
heimamenn í Njarðvík, sem voru
studdir rækilega af troðfullri
Ljónagryfjunni, vera að ná yfir-
höndinni en gestirnir í KR náðu
að klóra sig aftur inn í leikinn með
mikilli baráttu og leiddu í hálfleik
39-44. Í þriðja leikhluta breyttist
gangur leiksins mjög og skyttur
liðanna fengu að njóta sín. Njarð-
víkingurinn Magnús Þór Gunnars-
son var allt í öllu hjá heimamönn-
um; hann setti niður fjóra þrista í
leikhlutanum og hélt Njarðvík inni
í leiknum. Flest benti til þess að
KR færi inn í lokaleikhlutann með
fjögurra stiga forystu en Kristján
Rúnar Sigurðsson setti þá niður
rándýra flautukörfu og minnkaði
muninn niður í eitt stig, 65-66 og
allt ætlaði um koll að keyra á pöll-
unum.
Það vantaði heldur ekki dramat-
íkina í lokaleikhlutanum en staðan
var 86-84 Njarðvík í vil þegar um
mínúta lifði leiks og KR-ingar með
boltann. KR-ingar fóru hins vegar
illa að ráði sínu á lokakaflanum og
Njarðvíkingar sýndu að þeir eru
með stáltaugar og kláruðu leikinn
90-86 og komust áfram í sextán
liða úrslitin.
Páll Kolbeinsson, þjálfari KR,
var vitanlega svekktur eftir tapið
en það var enginn uppgjafartónn
í honum. „Ég er auðvitað ósátt-
ur með annað tapið á skömmum
tíma gegn Njarðvík í leikjum sem
við höfum leitt og verið með yfir-
höndina. Við erum að henda þessu
frá okkur á lokamínútunum og það
er hlutur sem við verðum að laga.
Magnús vinur minn Gunnarsson
var þeim líka dýrmætur og það
er erfitt að eiga við hann þegar
hann dettur í stuðið. Það vantaði
hins vegar að einhver af mínum
leikmönnum myndi stíga upp en
við munum ekki tapa aftur gegn
Njarðvík í vetur. Því skal ég lofa,“
sagði Páll ákveðinn.
omar@frettabladid.is
KR aftur bráðin í Ljóna-
gryfju Njarðvíkinga
Ljónagryfjan í Njarðvík er ekki uppáhaldsstaður KR-inga þessa dagana. Þeir
töpuðu þar í annað sinn á tæpri viku fyrir Njarðvík, núna í bikarnum.
GRÍÐARLEG BARÁTTA Fannar Ólafsson og Friðrik Stefánsson slást hér um boltann í
leiknum í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Subway-bikar karla:
Njarðvík-KR 90-86
Stig Njarðvíkur: Magnús Gunnarsson 28, Jóhann
Árni Ólafsson 18, Guðmundur Jónsson 11, Friðrik
Stefánsson 10, Páll Kristinsson 10, Hjörtur Einars-
son 6, Rúnar Erlingsson 4, Kristján Sigurðsson 3.
Stig KR: Semaj Inge 19, Brynjar Þór Björnsson 14,
Finnur Atli Magnússon 14, Fannar Ólafsson 11,
Tommy Johnson 9, Darri Hilmarsson 7, Skarphéð-
inn Ingason 7, Jón Orri Kristjánsson 5.