Tímarit iðnaðarmanna - 01.05.1978, Page 11
Frá aÖalfundi IÖnaiSarbankans 1978.
1972 var ákveðið að gefa út jöfnunarhlutabréf að
upphæð 15 milljónir króna og jafnframt sam-
þykkti aðalfundur bankans 1974 að auka enn við
hlutaféð og gefa út nýtt hlutafé að upphæð 15
millj. króna. í árslok 1977 er því hlutafé bank-
ans 45 milljónir króna. Varasjóður á sama tíma
er 90.5 millj. króna, en annað eigið fé er um 327
millj. króna. Heildar eigið fé hankans nemur
því nú urn 462 millj. króna og svarar það til um
9.6% af innlánsfé.
í ársbyrjun 1972 tók bankinn í notkun raf-
reikni fyrir starfsemi sína. Með tilkomu hans
varð mikil breyting á öllum vinnubrögðum í
bankanum og leiddu þær breytingar til jress, að
nauðsynlegt var talið að endurnýja reglugerð
bankans. Á aðalfundi bankans árið 1975 var síðan
samþykkt ný reglugerð svo og nýjar samþykktir
fyrir bankann. Samþykktirnar og reglugerðin
voru síðan staðfest af iðnaðarráðherra 22. sept-
ember 1975.
Innlán í Iðnaðarbankanum hafa vaxið ört með
ári hverju og í árslok 1977 námu þau 4.842 millj.
króna. Af heildarinnnlánum eru um 50% í aðal-
banka. í aðalbanka og útibúum í Reykjavík eru
um 74% heildarinnlána og um 26% í öðrum
útibúum.
Útlán bankans hafa einnig aukist rnikið á um-
liðnum árum og í árslok 1977 voru heildarút-
lán bankans 3.816 milljónir króna. Eins og ætíð
áður fer lang mestur hluti útlána bankans til iðn-
aðar og byggingarverktaka eða um 52%. Heildar-
tekjur bankans árið 1977 voru nær 949 milljón-
um króna, en heildarútgjöld námu alls um 939
milljónum króna. Rekstursafgangur fyrir afskrift-
ir var um 9.5 milljónir króna. Rekstrarkostnaður
árið 1977 nam samtals 320 milljónum króna.
Launakostnaður er um 73% af reksturskostmaði.
í árslok 1977 störfuðu 98 manns við Iðnaðar-
bankann, auk ræstingarfólks og starfsstúlkna í
mötuneyti, en hluti af almennu starfsfólki bank-
ans er í hálfsdags starfi. Árið 1977 var meðal-
fjöldi starfsfólks urn 90 mainns.
Öll starfsemi bankans fer nú fram í eigin hús-
næði og eru fasteignir bankans bókfærðar í árs-
reikning á 632.8 millónir króna. Fasteignamat
þessara eigna er hins vegar 677.8 milljónir króna.
Með lögum um Seðlabankann frá árinu 1957
var honum veitt heimild til að skylda viðskipta-
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA