Tímarit iðnaðarmanna - 01.05.1978, Page 15
hendi og skal verðlagsnefnd vera búin að svara
slíkri beiðni innan ákveðins tíma. I lögunum er
kveðið á um að álagning skuli við það miðuð að
I'yrirtæki fái inn kostnaðarþætti alla og auk þess,
sanngjarnan hreinan hagnað. Einnig er í lögun-
um ákvæði sem heimila að seld vinna sé útreikn-
uð eftir ákveðnum föstum formúlum ef hún hef-
ur ekki verið gefin frjáls. Þessi regla mundi þýða,
að ekki þyrfti alltaf að sækja um hækkanir hverju
sinni. Að öðru leyti eru í lögunum ýms þau á-
kvæði sem verða örugglega mjög til bóta.
4. Vísitölumál
Ekki hefur ennþá fengist sú leiðrétting sem
margsinnis hefur verið lofað í lögum um verð-
tryggingar. Þó er nú von til þess. Sá dómur sem
féll í máli íbúðavals hf., er þáttaskil, en í þeim
dómi hæstaréttar, var krafa Ibúðavals um greiðslu
vísitöluhækkunar íbúðaverðs samþykkt að fullu,
og má segja að þar hafi fengist mjög þörf stefnu-
mörkun í þessu máli. í bréfi Seðlabanka Islands
til lögmanns íbúðavals, er sett fram sú skoðun
hans, að bainkinn hafi ekki úrskurðarvald í þessu
máli, heldur verði að bíða úrskurðar hæstaréttar
í þessu máli. — Mál það sem íbúðaval rak fyrir
hæstarétti gefur að mínum dómi mjög skýra
og lneina mynd af þessu máli. Þar var um að ræða
hreinan kaupsamning og ekki deilt um neitt ann-
að en vísitöluhækkanir á kaupsamning og er í því
sambandi kröfuupphæð dæmd að fullu ásamt
þeim vöxtum sem farið er fram á. Ég tel að eftir
þennan dóm geti hvaða fyrirtæki sem er notað
vísitölu til viðmiðunar í kaupsamninga sína fram-
vegis.
5. Húsnceðis- og lánamál
Lítið hefur miðað áleiðis í endurskoðun á hús-
næðismálalöggjöfinni. Nefnd sú, sem skipuð var
í það starf var aldrei kölluð samain á síðasta ári.
Þó lagði formaður nefndarinnar fram í nóvem-
ber á síðasta ári uppkast af liugsanlegum laga-
breytingum og tilkynnti jafnframt að fundur
yrði haldinn í janúar, en ekki liefur sá fundur þó
verið boðaður ennþá. Ljóst er að verulegra breyt-
inga er þörf á lánakerfi húsnæðismálastjórnar ef
vel á að vera og að mínum dórni eru eftirfarandi
atriði brýnust: Stórhækka þarf lánveitingu til
þeirra sem eru að eignast íbúð í fyrsta sinn, helst
í 80—90% af byggingarkostnaði eins og hanin er
hverju sinni samkvæmt byggingavísitölu. Lánin
ættu að greiðast út í tveimur áföngum, sá fyrri
sem næst einum mánuði eftir að hús verða fok-
held og sá seinni 6 mánuðum seinna. Fram-
kvæmdalánakerfinu þarf að breyta verulega.
Ekki má binda veitingu framkvæmdaláns verði
íbúða, né í hvaða ástandi íbúðinni sé skilað. Þó
er vert að staldra aðeins við áður en við förum
fram á að fá að skila íbúðunum tilbúnum mndir
tréverk eða styttra komnum. Ef baldið væri við
þau ákvæði að skila íbúðunum fullbúnum, væri
von til þess að iðnaðarmenn væru notaðir í rneira
mæli til jness að ljúka verkum eims og t. d. máln-
ingu, dúklagningu, veggfóðrun og frágangi tré-
verks og hreinlætistækja, en eins og við vitum
gera eigendur mikið af þessum verkum sjálfir
þegar þeir fá íbúðirnar afhentar tilbúnar undir
tréverk. Þess vegna er atluigandi að skoða þessa
þætti málsiins nánar, áður en við biðjum um á-
kveðnar breytingar í þá átt að opna þetta kerfi. í
gangi hefur verið nefnd sem semja á lög um fé-
lagslegar byggingar. Eiga þau lög að ná yfir bæði
leiguíbúðakerfið, verkamannabústaði, fram-
kvæmdanefndarbyggingar o. fl. Eins og menin
muna var í yfirlýsingu ríkisstjórnar í síðustu
samningum gengist inn á að byggðar væru undir
slíku kerfi i/3 af öllum íbúðurn sem spá Frarn-
kvæmdastofnuinar gerir ráð fyrir að byggja þurfi,
hvort sem þörf væri fyrir eða ekki. Nú liggur fyr-
ir rammi að þessari lagasetningu. Þar er kveðið
skýrt á um tekju- og eignamörk þeirra sem geta
fengið slíkar íbúðir, einnig að ekki skuli byggt
TÍMARIT IÐ NAÐARMAN NA
9