Tímarit iðnaðarmanna - 01.05.1978, Blaðsíða 16
meira, en sérstök könnun í hverju sveitarfélagi
leiðir í ljós að þörf sé á. Byggingarsjóður verka-
manna verði undir stjórn húsnæðismálastjórnar,
en ekki með sjálfstæða stjórn frá launþegafélög-
unum eins og krafa A.S.Í. var. Fé í sjóðinn komi
frá sveitarfélögum og ríki, lánskjör væru hert
verulega, en á síðustu árum hefur byggingasjóður
verkamanna verið með ca. 30—33% raunvexti.
í lagauppkasti er gert ráð fyrir að raunvextir fari
aldrei niður fyrir 0%. Þessar hugmyndir fela það
í sér að verkamannabústaðakerfið er þrengt það
mikið frá því sem óskir A.S.Í. voru að sæmilega
megi við una. Mjög mikil tregða hefur verið hjá
öllum fjármálastofnunum á síðasta ári. Innláns-
biinding er aukin ár frá ári og gerir það að verk-
um að útlánageta bankanna minnkar að sama
skapi. Vissulega hafi vaxtabreytingar að undan-
förnu gert ])að að verkum að heldur hafa aukist
innlán í bankana og Jjannig rýmkast geta þeirra.
Iðnlánasjóður, sem er eini fjárfestingalánasjóður-
inn sem okkar menn geta leitað til varðandi bygg-
ingaiðnað, húsnæðis- og vélakaup, hefur eflst tals-
vert nú síðustu árin, eða úr 740 milljónum ’76 í
1205 milljónir 77 og nú 78 1800 milljónir. Þó
nær þessi efling hvergi til að mæta aukinni eft-
irspum, en hún varð 1977 4,3 milljarðar og sam-
kvæmt spá þessa árs um 7 milljarða. Talsvert
hefur verið veitt af lánum til aðilja innan okk-
ar sambands, þó er Jdví ekki að leyna að betur
mætti gera, en mjög oft hef ég staðið frammi
fyrir þeirri staðreynd varðandi lánsbeiðnir frá
okkar mönnum til bygginga iðnaðarhúsnæðis að
þar er í mjög mörgum tilfellum einungis verið
að spila inn á verðbólguna. Menn eru að byggja
slík hús til sölu, en ekki til eigin Jiarfa og segir
það sig sjálft að meðan eftirspurn er nærri fjór-
föld, að þá er erfitt að knýja fram lánveitingar til
slíkra aðilja.
6. Vinnuveitendasamband Islands
Að venju hefur verið fjallað um ótal mál inn-
an framkvæmdastjórnar V.S.Í. og hefur þar að
sjálfsögðu mest borið á allskonar samningamál-
um. Á árinu hefur talsvert verið rætt um breyt-
iingar á skipan lramkvæmdastjómar V.S.Í., en
hún er nú skipuð 8 aðalmönnum sem kosnir eru
á aðalfund, en síðan tilnefnir hver aðalmaður
sér varamann sem sitja alla fundi framkvæmda-
stjórnar. Nú eru uppi hugmyndir um að allir 16
framkvæmdastjórnarmenn verði kosnir á 1.
stjórnarfundi eftir aðalfund. Þeir hefðu sér síðan
sína varamenn sem ekki mættu nema í forföllum
aðalmanna. Þessari breytingu er ætlað að ná, nú
á næsta aðalfundi V.S.Í. Einnig hefur verið
rætt talsvert breyting á gjaldafyrirkomulagi í þá
átt að samræma gjöld frá hinum ýmsu deildum
og einstaklingum sambandsins. Rætt hefur verið
um að vera með ákveðið hlutfall af lífeyrissjóðs-
stofni. Þær hugmyndir sem uppi hafa verið í
þessu efni mundu stórauka gjaldagreiðslu okkar
til V.S.Í. frá því sem þær eru í dag, en eins og
fram mun koma í fjárhagsáætlun hér á eftir, er
reiknað með að við greiðum á þessu ári 2,8 millj-
ónir til V.S.Í. og er það í raun greiðsla fyrir árið
1977, en sá háttur hefur smátt og smátt komist á
að við erum einu ári á eftir með greiðslu. Ef við
ættum að fylgja núgildandi lögum V.S.Í. og
greiða um 0,5% af öllum greiddum vinnulaun-
um, ættu greiðslur okkar til V.S.Í. að nema um
28 milljónum. Ég held að ýmislegt í þeim hug-
myndum sem fyrir liggja sé áhugavert og við eig-
um að skoða jnær gaumgæfilega áður en sagt verð-
ur af eða á um okkar liug til Jjeirra. T. d. væri
hugsanlegt að sameina í J)essu kerfi alla inn-
heirntu, bæði fyrir félögin og samböndin og fá
þá gjaldagreiðslu út í útselda vinnu. Ekki er áætl-
að að koma þessari breytingu á lögum V.S.Í.,
fram á komandi aðalfundi sem haldinn verður í
næstu viku dagana 8.—11. maí.
7. Landssamband iðnaðarmanna
Á síðasta ári var iðnjnng haldið á Akureyri.
Eins og flestir muna var höfðinglega tekið á móti
þingfulltrúum af norðanmönnum, enda ekki við
öðru að búast af norðlendingum. Ég mun ekki
rekja hér öll þau mörgu mál sem þar voru til um-
ræðu, tel að fulltrúum séu þau einn í fersku
minni. Fulltrúar frá sambandinu munu koma hér
á fundinn á morgun og skýra okkur frá Jdví helsta
sem Jjar er á dagskrá. Einnig mun þá verða leitast
við að skýra frá nýjum skattalögum og Joeim
breytingum sem Jjau hafa á okkar menn. Ég vil
þó ekki skilja svo við málefni L.Í., að ég minnist
ekki á tvö ákveðin mál sem ég tel að skipti okkar
menn miklu. Þar er um að ræða í fyrsta lagi,
byggingakönnun þá sem fór í gang á síðasta ári.
Slík hagtölugerð og þar var byrjað á, tel ég að
geti skipt okkur mjög miklu í framtíðinni, svo
framarlega að við séum menn til að byggja hana
upp með góðri jxitttöku, en því miður hefur
reynsla okkar þeninan stutta tíma verið allt önn-
ur. Mjög erfitt hefur verið að fá menn til að skila
inn spurningablöðum, Joó J^au séu eins einföld og
hugsast getur. Ég vil leggja sérstaka áherslu á að
menn bregðist vel og skjótt við, ef Jæir fá slík
spumingablöð, útfylli þau og sendi um hæl.
í öðru lagi er um að ræða mál, sem kom upp á
síðasta iðnJAngi, um málmbræðslu hér á landi.
Nú mun þessi hugmynd vera komin vel áleiðis í
10
TÍMARIT I ÐNAfiARMANNA