Tímarit iðnaðarmanna - 01.05.1978, Side 20
N or ður landasam-
keppni í hárgreiðslu
og hárskurði
Sunnudaginn 18. september 1977 var haldin í
Laugardalshöll Norðurlandakeppni í hárgreiðslu
og hárskurði. Var þetta í fyrsta skipti sem Sam-
band hárgreiðslu- og hárskerameistara stendur
fyrir slíkri keppni.
Keppendur voru alls um 50 í hárgreiðslu og
liárskurði, en hvert land hafði rétt til að senda
5 keppendur i hárgreiðslu og 5 í hárskurði. Auk
þess komu flestir keppenda með eigin fyrirsæt-
ur. Mikill fjöldi áhorfenda kom til að fylgjast
með keppninni, en alls komu um 2000 áhorfend-
ur.
Keppnin hófst með því að formaður SHHM,
Arnfríður ísaksdóttir, bauð keppendur og aðra
þátttakendur velkomna til Islands, en að því
loknu setti formaður norrænu samtakanna, Ryno
Höglund, keppnina.
Norðurlandameistari í hárskurði varð Daninn
Nils Schou og landar hans Gert René Jensen og
Jens Erik Behrendtz urðu í 2. og 3. sæti. Því
miður tókst engum íslendinganna að vinna til
verðlauna í keppninni í heild, en þeir unnu þó
til verðlauna í einstökum greinum keppninnar.
Norðurlandameistari í hárgreiðslu varð Norð-
maðurinn Björn O. Thorstensen og í 2. til 3.
sæti urðu systurnar Terttu Siikamáki, Finnlandi
og Annelie Palmgren, sem keppti fyrir Svíþjóð.
Fyrir hönd Islands kepptu:
í hárgreiðslu:
Guðbjörn Sævar
Elsa Haraldsdóttir
Kristín Hálfdanardóttir
Guðný Gunnlaugsdóttir
Sigurður G. Benónýsson
Bára Kemp
Hanna Kristín Guðmundsdóttir
í hárskurði:
Gunnar Guðjónsson
Þorberg Olafsson
Garðar Sigurgeirsson
Lýður Sörlason
Sigurpáll Grímsson
í fjölmennu lokahófi að Hótel Sögu afhentu
þau Arnfríður og Ryno Höglund sigurvegurun-
um verðlaunin. í tilefni af 10 ára afmæli SHHM
var félaginu afhent gjöf frá Sambandi hár-
greiðslu- og hárskerameistara á Norðurlöndum.
Hlutu aðstandendur keppninnar mikið lof fyrir
vel skipulagða keppni.
Þess má að lokum geta, að nokkrar skoðunar-
ferðir voru skipulagðar fyrir hina erlendu gesti.
íslensku keppendurnir í hárgreiðslu.
Norðurlandameistarar i hárgreiðslu og hárskurði, ásamt jyrir-
scetum. í ?niðju til vinstri: Nils Schou, i miðju til hœgri: Björn
O. Thorstensen.
Frá verðlaunaafhendingu i hárskurði að Hótel Sögu. Talið
frá vinstri: Norðurlandameistarinn Nils Schou (Danmörk),
Gert René Jensen (Danmörk) sem varð i öðru sceti, Ryno Hög-
lund formaður norrœnu samtakanna og lengst til hœgri Arn-
friður ísaksdóttir formaður islensku samtakanna.
14
TÍmarit iðnaðarmanna