Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 40
með hinum bragðgóðu
HONIG BÚÐINGUM
ROM
VANILLA eða
SÚKKUKADI bragð
aist í naistu matoötu/júd
TRAUST MERKI
Heildsölubirgöir
Eggert Kristjánsson & Co. h.f. h o l i a n d
Og straumurinn
tók þá 15 saman.
Framhald af bls. 13.
tókst að ná i það. Því næst var ann-
ar bátur dreginn að skipinu og fleiri
björguðust. Loks voru þrír menn eft-
ir i skipinu. Þeir gátu dregið bátinn
út, en gekk erfiðlega með að halda
honum föstum og um leið slitnaði
strengurinn. Tveir þeirra köstuðu
sér þá i sjóinn og ætluðu að synda
i bátinn. Annar þeirra komst í land
lengst af í kafi, en hinn synti langan
veg. Það tókst að bjarga þeim báð-
um, en annar var svo aðframkom-
inn, að hann dó í höndum björgun-
armannanna. Þetta var um klukkan
4 um daginn. Þá voru liðnar 16
klukkustundir frá því er skipið
strandaði.
Þá var einn maður eftir i skipinu.
Hann áræddi ekki að fleygja sér í
sjóinn, en kleif hærra I reiðann og
mun hafa bundið sig fastan. Þar var
hann enn þegar myrkrið skall á um
kvöldið, en var horfinn þegar birta
tók af degi.
Okkur tíu var þannig bjargað, en
straumurinn og brimið tók þá fimm-
tán saman. Sex lík náðust. Tryggvi
gamli náði fjórum af þeim á sjó.
Þegar við vorum komnir í land,
var okkur tekið tveim höndum. Byrj-
að var á því að hella ofan i okkur
einhverju hressandi. Þarna var og
læknir. Við vorum reiddir heim að
Stafnesi og þar vorum við háttaðir
niður í rúm.
Daginn eftir komumst við heim.
Ég var stutt í landi. Næst réðst
ég á Hannes ráðherra og á togurum
var ég til ársins 1930. Þá fór ég í
land og gerðist afgreiðslumaður hjá
Alliance. Og þar hef ég verið síðan.
Við misstum eitt barnið okkar. Hin
eru komin upp og farin að heiman
frá okkur. Þetta gengur allt vel. Ég
tel ekki uppskurði og mjaðmabrot.
Ég ætlaði mér alltaf að verða
bóndi. — Og ég hefði átt að verða
bóndi.
HRINGURINN.
Framhald af bls. 7.
— hann afmáði sjálfan sig og
hvarf. Hún var frjáls.
Hún steig eitt skref aftur á bak,
með þetta blinda, hreyfingarlausa
andlit fyrir framan sig. Svo beygði
hún sig niður, eins og hún hafði
gert til að komast inn í skógar-
rjóðrið, og leið hljóðlaust burt.
Við skógarjaðarinn stóð hún kyrr
og litaðist um eftir stignum yfir
engið Hún kom auga á hann og
lagði af stað heim.
Maður hennar var enn ekki kom-
inn. En nú kom hann hratt eftir
stignum, sá hana og hrópaði glað-
lega til liennar. Iíann náði henni
brátt.
Gatan var svo mjó þarna, að
hann varð að ganga aðeins fyrir
aftan hana og gat ekki leittt hana.
Hann fór að segja henni hvað
hefði verið að löinbunum. Hún
hélt áfram, einu skrefi á undan
Jnytíhh^JÍh(^ fí
M vcr« falleg
09 httlda fegurð sinni
Þvi fyrr, sem þér byrjið að leggja rækt við og yngja upp húð-
ina, því erfiða,ra verður að giska á aldur yðar siðar meir
yðar
iSuzanne André
' PLACENTA CREM
mun yður brátt finnast eins ómissandi og dagleg
snyrting yðar.
Með hverri túbu af PLACENTA er íslenzkur
leiðarvísir.
PLACENTA CREM
fæst í snyrtivöruverzlunum og víðar.
Einkaumboð:
H. A. Tnlinins
4D VIKAN