Vikan


Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 30

Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 30
NIoni auðveldar hárlagninguna Hárið verður glæsilegt HÁRIÐ HBLDUR SÉR MJÖG YEL MILLI ÞVOTTA ^LLAR VILJUM við að hárið verði eins og það er lagt og haldist þannig milli þvotta. Ef við breytum hárgreiðslu, þá þarf nýja greiðslan að endast vel. Þess vegna er nauosynlegt að fá sér perm og það er TONI sem leysir galdurinn. EVEN-FLO hár- liðunarvökvinn er það eina, sem gerir lagninguna auðvelda. Setur glæsibrag á hárið. Svo auðvelt. Fylgið aðeins hin- um einföldustu leiðbeiningum, sem eru á íslenzku, og hárlagningin verður fullkomin, og endingargóð. Gentle fyrir auðliðað hár. Super fyrir erfitt hár. Regular fyrir venjulegt hár. Veljið TONI við yðar hœfi. Stórveldanjósnir á fslandi. Framhald af bls. 5. tilgangi að ræOa við ríkisstjóm Is- lands. Nefndarmenn voru þrír: Richard Walter, sem var formaður nefndar- innar, flugstjóri, Aug. Schiffer, flug- stjóri frá Hamborg, og dr. R. Bilfinger, verkfræðingur frá Berlin. Walter var kunnugur hér áður, hafði verið flugstjóri hjá gamla flug- félaginu, sem stofnað var hér árið 1928. Hafði hann Þá umsjón með flug- ferðum hérlendis. Seinna hafði hann farið til Kína, en fékkst um Þessar mundir við kaupsýslu i Berlín. Nefnd Þessa mátti telja opinberan aðila frá hálfu Stór-Þýzkalands, þó að hún kæmi undir nafni Luft-Hansa, þar eð allur slíkur rekstur laut einni stjórn i Þýzkalandi. Gekk nefndin á fund forsætisráð- herra og bar fram fyrir hönd fé- lagsins óskir um réttindi til flug- hafna hér á landi og um leyfi til Þess að byggja flugvelli, þar eð í ráði væri að hefja flugferðir frá Þýzkalandi til Ameríku með viðkomu á Islandi. — Og hér er alls ekki verið að fara fram á neitt frá hernaðarlegu sjón- armiði. sagði einn nefndarmanna, án þess ráðherrann gæfi tilefni til slíkr- ar yfirlýsingar. Ríkisstjórnin hafði hugboð um hvaða veður voru í lofti og var að nokkru undirbúin slika málaleitan. Hafði hún áður haldið fund um mál- ið og kvatt til ráðagerða ýmsa menn sér til aðstoðar i Þessum efnúm. Þeg- ar almenningur komst á snoðir um, hvað á seyði var, mátti svo kalla, að hann snerist á eina sveif með þeim, er engin slík réttindi vildi selja í hendur erlendra félaga, jafnvel Þótt í hlut ætti stórveldi, sem uggvænlegt var að hafa að andstæðingi. Lögðu nefndarmenn fram ýtarlega greinargerð fyrir óskum sinum. Bentu þeir á. að með farþegaflugi yfir ts- land nyti islenzka Þjóðin sérstakra hlunninda með farþegasamgöngur og póstflutninga, enda yrði Island með þessu miðdepill og tengiliður mllli hins gamla og nýja heims. en slikt gæti aftur á móti haft stórkostlega viðskiptalega og menningarlega Þýð- ingu fyrir Þjóðina. Forsætisráðherrann svaraði því. að Islendingar tortryggðu ekki þýzku Þjóðina á Þessu sviði, en rikisstjórnin hefði ákveðið að veita engum sérrétt- indi til flugs á íslandi að svo komnu máli. Einnig sagði ráðherrann, að Is- lendingar hefðu fullan hug á að taka sjálfir flugmálin i sinar hendur, enda væri þjóðin farin að ala upp flug- menn, sem ættu að annast fram- kvæmdir fyrir okkur í framtiðinni. Þjóðverjar fóru við svo búið af fundi. óskuðu beir siðar eftir öðru samtali við ráðherrann og var það veitt,. Þeir ræddu málið af kurteisi, en létu Þó i Það skína. að algjör neit- un í Þessum efnum gæti haft óbægi- legar afleiðingar fvrir íslendinga, t. d. á verzlunarsviðinu. En hér varð engu um þokað. en ráðherrann lét bess getið. nð hann vænti Þess að Þjóðverjar skildu bessa afstöðu Tslendinga og vinfengi héldist milii bjóðanna. brátt fvrir betta Héldu Þlóðverjar svo af land' brott með algerða neitun um flugvalla- og flughafnasamninga. Sveinn Binrnssnn kallnður S fund Þjóðverja. Ekki var sendinefndin fyrr komin á land í Danmörku en sendiherra Þjóðverja í Kaupmannahöfn kallaði Svein Biörnsson, sendiherra Islands. á sinn fund til Þess að ræða þetta mál. Var hann allþungur á brún út- af neitun íslendinga og lét í liós, að þessi framkoma gagnvart Þjóðverj- um gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Island. Sveinn Björnsson sagði. að Þar eð ríkisstjórnin hefði tekið þessa ákvðrðun, yrði engin breytlng á málinu. 30 MMCAM

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.