Vikan


Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 21

Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 21
Nú var Antony orðínn þrjátíu ára, hár dökkhærður og laglegur, og góður við gamlar konur, smábörn og ' . - • 4 . J - V . álika spennandi og hörð brauðskorpa. Það hefði verið þörf fyrir konu eins og Sally í lífi hans mörgum árum fyrr. Sally hafnaði í fangi hans, og bunki af vikublöðum þeyttist í allar áttir. ROLEG OG DYGGÐUM PRÝDD EIGINKONA Það var gefið mál, að kona eins og Sally Prentice mundi fyrr eða síðar birtast í rólegu og reglusömu lífi Antonys Blackstones. Það var ekkert nema tímaspursmál. Það voru fáir, sem höfðu eins mikla þörf fyrir hressandi lost og hann. En Það hafði hann sjálfur auðvitað ekki hugmynd um. Antony gat sagt nákvæmlega fyrir, hvað hann mundi gera á hverri stund dagsins. Það höfðu frænkur hans, Charlotta og Sophia, séð um. Þær höfðu nefnilega alið hann upp. Nú var Antony orðinn þrjátíu ára, hár, dökkhærður og laglegur, góður við gamlar konur, smábörn, og álíka spenn- andi og hörð brauðskorpa. Það hefði verið þörf fyrir konu eins og Sally í lifi hans mörgum árum fyrr. Án þess að renna grun í, að þýðingarmesta augnabiik lífs hans væri í nánd, opnaði hann hurð- ina að leiguhúsinu, þar sem hann hafði búið frá því hann fór frá Selmouth og frænkunum. Hann hélt á skjalatöskunni í annarri hendi og regn- hlífinni í hinni og algjör lognmolla ríkti í huga hans. Hann lokaði vandlega hurðinni á eftir sér og sneri sér við til að fara upp stigann að íbúð- inni á annarri hæð. Á sömu stundu kom Sally Prentice þjótandi fyrir bogann á stiganum, í peysu og víðu pilsi, í há- hæluðum skóm. Hún hrasaði i fjórðu tröppu ofan frá og valt niður það sem eftir var stigans. Hlægi- lega lítil taska og stór hlaði af vikublöðum þeytt- ist út i allar áttir og lenti á gólfinu fyrir framan fætur hans og Sally lenti beint í fanginu á hon um. Þar sem Antony var einn metri og áttatíu og fimm cm á sokkaleistunum og hafði vel útilátna vöðva á réttum stöðum, og Sally var grönn stúlka, tæplega einn og sextíu á hæð, var engin hætta á að hann slasaðist við áreksturinn. Hann steig að- eins eitt skref aftur á bak, þandi vöðvana og þrýsti ungu stúlkunni að breiðum barmi sinum. Stutta, örlagaþrungna stund hélt hann henni í faðmi sín- um, en svo reif hún sig lausa og féll á kné fyrir framan hann og kallaði eyðilögð: Æ, nei, æ nei! Antony stóð eins og negldur við gólfið, umvafinn sætum rósailmi, og starði frá sér numinn á gyllta lokka og töfrandi hnakka, sem minnti hann á ný- þvegið ungbarn. — Þetta var hræðilegt, hélt þessi óhamingju- sama rödd áfram. — Öll blöðin mín og taskan . . . Frú Mortimer, forstöðukona leiguhússins kom út úr skrifstofu sinni. — Fröken Prentice, hvað hefur komið fyrir? — Ég hrasaði í stiganum, svaraði Sally hratt — og þessi herra tók á móti mér. Hún brosti sólskins- brosi til Antonys og hann sundlaði. — Og ég, sem var með þrjá, varaliti og tvær púðurdósir, hélt hún móð áfram, — en það fór auðvitað allt úr töskunni minni. Ég hafði auðvitað gleymt að loka henni. — Fröken Prentice, sagði frú Mortimer kulda- lega, — þetta er herra Blackestone, einn af elztu leigjendunum okkar. Hún sneri sér að Antony með afsökunarsvip. — Fröken Prentice, útskýrði hún, — er nýflutt hér inn. Hún býr á fyrstu hæð. Fröken Prentice er listamaður. Sally brosti aftur til Antonys. — Ég teikna myndir með smásögum. Það er ákaflega skemmti- legt. . . . Henni varð litið á stóru klukkuna yfir öxl Antony. — Drottinn minn dýri! Er klukkan orðin svona margt? Ég verð að þjóta. Ég bið innilega afsökunar á þessu. Bless! Hún hvarf út úr ganginum með blöðin í ann- arri hendi og sveiflaði töskunni með hinni. Antony gekk hægt upp stigann að íbúð sinni. Þegar hann var kominn inn, hallaði hann sér upp að veggnum og dró djúpt andann. Þannig gekk þetta fyrir sig, hugsaði hann. Eins og þruma úr heiðskíru lofti. Maður opnaði hurð og þar var hún — h ú n, sú eina. Hún var sjálfsagt að fara út með einhverjum öðrum manni. Og hér stóð hann og gerði ekki einu sinni tilraun til að hindra Það. Hann var kominn hálfa leið niður stigann, þegar heilbrigð skynsemi fékk aftur yfirhöndina. Þetta Framhald á bls. 24. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.