Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 29
9
tjcUuhuú fg/
HrútsmerkiO (21. marz—20. apríl): Þú munt eiga
mjög annríkt i þessari viku, en nokkur hætta er á
því, að þér verði ekki mikið úr verki. Konur ættu
að hafa hægt um sig í þessari viku, en ekki vilja
stjörnurnar gefa neinar frekari skýringar á því.
Þeir, sem sjúkir eru, mega nú eiga von á bata, sem jafnvel
gæti reynst varanlegur. Ungt fólk ætti ekki að taka mikilvæg-
ar ákvarðanir að sinni — bezt er að bíða dálítinn tíma.
NautsmerkiO (21. apríl—21. maí): I þessari viku
munt þú verða áþreifanlega var við, að vinsældir
þinar fara hraðminnkandi, og er þér bezt að bæta
_____ráð þitt strax, ef ekki á illa að fara. Þú skalt ein-
beita þér að starfi þínu í vikunni og brátt munt þú
eiga von á launahækkun, ef þú ert heppinn. Föstudagur og
laugardagur eru sérstaklega gömlu fólki til mikilla heilla.
Heillaafmælisdagur 24. apríl og 1. maí.
TyíburamerkiO (22. maí—21. júní): Þessi vika er
einkum trúlofuðum og giftum til mikilla heilla —
ástin skiptir þvi miklu i þessari viku. Þú kemst lík-
lega í dálítil vandræði vegna þráa nokkurra félaga
þinna, en allt fer þó vel að lokum. Nokkrar líkur
eru á, að _þú færist nokkuð mikið í fang í vinnunni, og skalt
þú gæta þín — yfirmanni þínum kann að mislika þetta Heilla-
litur grænt.
BKrabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þessi vika verður
sérlega ánægjuleg og segja stjörnurnar, að þar beri
næstum engan skugga á. Ástin verður töluvert á
ferðinni, og munu ýmsir bindast ævilöngum tryggða-
böndum. Fjölskylda þín mun þurfa mikið á 'þér að
halda, og mátt þú alls ekki bregðast undir neinum kringum-
stæðum. &
LjónsmerkiO (24. júlí—23. ágúst): Horfur eru á, að
þú fáir svalað metnaðargirnd þinni og er það vel,
en gættu þin að miklast ekki af frama þínum —
ekki fer vel á því. Breytingar á heimilisástæðum fara
í hond hjá þér og skaltu því sinna heimili þínu sem
mest. Taktu eftir, að það e rsvo sem allt í iagi að fá sér glas
mest. Taktu eftir, að það er svo sem allt í lagi að fá sér glas
með kunningjum sinum, en ekki má það ganga of langt' Þú
-------- MeyjarmerkiO (24. ágúst—23. sept.): Margt mun
ganga a í þessari viku og skiptast á gleði og sorgir'
Kunmngi þinn mun koma til þín, og er hann í
vanda staddur. Þú skalt umfram allt reyna að
hjálpa honum út úr ógöngunum, og þakklæti hans
mun verða þer mikils yirði. Fjárhagslega er þessi vika mjög
hagstæð og agætur tími til þess að framkvæma eitthvað nýtt.
A laugardaginn mun einhver ókunnur koma til þín í leit að
raðleggingum.
VogarmerkiO (24. sept,—23. okt.): Mikið verður um
að vera mnan fjölskyldu þinnar — eitthvað stórkost-
legt mun ske. Miklar breytingar verða á heimilis-
hogum og vissulega til batnaðar. Gamall vinur þinn
mun ef til vill hjálpa þér við vinnu þína eða tóm-
stundagaman og munt þú fá góðar aukatekjur vegna þess
DrekamerkiO (24. okt —22. nóv.): Þessi vika verð-
ur heldur leiðinleg og tilbreytingarlaus, en þú mátt
ekki vera þunglyndur um of og alls ekki valda vin-
um þínum óþægindum. Vertu sem mest heima og
fáttu þér annt um fjölskyldu þína. Um helgina muntu
ta margar heimsóknir og ánægjuríkar, og eftir helgina mun
þér aftur finnast allt leika i lyndi.
Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Vertu þolinmóð-
ur og kurteis þót.t einhver miður velviljaður reyni
að bregða fyrir þig fæti. — ef þú aðeins ert rólegur
o" flanar ekki að neinu. munt.u áreiðanlega sigra í
viðureigninni. Að öðru Wti verður vikan tilbreyt,-
ingalaus, og er bér bezt, að halda þig sem mest heima o? hvíl-
ast. því að eftir helgina munt þú þurfa að sinna örðugum
verkefnum Heillalitir fjólublátt og grænt. ,
GeitarmerkiÖ (22. des,—20. jan.): Um helgina munt
bu fi ánægjulegar fréttir. en ekki skaltu kætast um
of. þv' að miður velviljað fólk mun gera allt til
bess að spilla fyrir bér. Vertu því ætíð á varðbergi.
Amor mun skjóta örvum sínum í vikunni, en hætt
er við, að ekki muni örvar hans rista djúpt. 1 fjármálum skaltu
vera varkár og leita ráða hollvina þinna í sambandi við tæki-
færi, sem þér býðst. Heillatala 5.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.): Þú ert mjög
vinnusamur og hneigður til félagsmála. Þú munt
hafa mjög mikið að starfa í vikunni, og allar líkur
benda til þess að vinsældir þínar aukist mjög í þess-
ari viku. Húsbóndi þinn mun líklega leita ráða hjá
Þér og skalt þú ekki vera feiminn við að ráðleggja honum í
þessu máli — þú berð gott skynbragð á það.
FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þessi vika er
konum og sérstaklega ungum stúlkum til mikilla
heilla. Amor mun kveðja að dyrum og elskendur
munu tengjast órjúfandi böndum. Yfirleitt er vika
þessi einnig hagstæð fyrir karlmenn, en þeir ættu
að varast að fara mikið út. Föstudagur verður einkar ánægju-
rikur fyrir unga fólkið.