Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 3
Útgefandh VIKAN H.F.
R Klt*tj6rfí
Gísll SigurtlBSon (ábm.)
AoglýflingsstJÖri:
jáb.nnefl Jörundflsoh.
■. Fn»mkr*md.«tjóri:
’ Hiimtr A. Kristjánflson.
Hitstjórn og auglýslngar: Skíphoitl
33. Slmar:'35320, 35321, 35322. Póst- /
hólf 149. Afgrelösla og dre!ð»g: ’
BlaOadrelílng, Mlklubraut 15, alm)
36720. Drelflngarstjóri: óskar Karls-
son. VerB 1 lausasölu kr. 15. Áskrift-
arverB er 200 kr. érsþriðjungslegai,
grelðist fyrirfram. Prenlun: Hlimir
h.f. Myndamót: P-aígraf h.f.
f
/ næsta blaði verður m. a.:
* Sendiför til Ungverjalands. Byrjun á hörkuspennandi greina-
flokki um sænskan stjórnarfulltrúa, sem var sendur til Ung-
▼erjalands á þeim árum, sem Eichmann gekk sem skarpast
fram £ því að útrýma Gyðingum. Svíinn hét Vallenberg og
hann átti eftir að rata i mörg og hættuleg ævintýri.
* Glerfnglinn. — Rómantísk ástarsaga frá Ítalíu.
* Skjalabruninn í Túngötu 18. — Gunnar M. Magnúss, rithöf-
undur, skrifar meira um njósnir Þjóðverja, leynisendistöðvar,
brezka hernámið, Dr. Gerlach, sendiherra Þjóðverja, áform
lögreglunnar að handtaka hann og þann atburð, þegar Bretar
handtóku hann og hann brenndi skjölunum í baðkerinu.
* Lífvörður okrarans. Sakamálasaga.
* Þú mátt aka, elskan. Smásaga.
* Þátturinn Hús og húsbúnaður: Norskt einbýlishús.
* Læknirinn: Ellihrumleiki á fimmtugsaldri.
* Þriðji hluti kvikmyndasögunnar, Enginn er fullkominn. Aðal-
hlutverk: Marilyn Monroe og Tony Curtis.
* Guð vill það. Mjög athyglisverð grein, sem fjallar um þá her1-
væðingu hugans, sem ofstækismenn beita, þegar þeir vinna
óhæfuverk undir því yfirskyni, að það sé vilji almættisins.
Greinin er eftir Dr. Matthías Jónasson.
* Þeir stofnuðu nýjan banka. Myndafrásögn af samkvæmi, sem
haldið var í tilefni af stofnun Verzlunarbankans og myndir
af flutningum bankans.
* Sigrún Ragnars. Nokkrar myndir af Sigrúnu, sem sýna hana
í fötunum, sem hún á að koma fram f erlendis. Forsíðumyndin
er af Sigrúnu í mjög glæsilegum, síðum kjól, sem frú Dýrleif
Ármann hefur saumað á hana.
* Vikan og heimilið. Fjórar síður fyrir húsmæður. Ætlast er til,
að þeim þætti sé kippt úr blaðinu og bráðlega munu fást sér-
stakar möppur til að halda honum til haga.
in á bifreið var (eða virtist vera)
„teika“. Er ég orðinn svona gamall,
að ég fylgist ekki lengur með?
Já, líklega er það svo. Fyrir aft-
an bílinn á myndinni stóð strákl-
ingnr, sem þú hefur líklega ekki
telcið eftir. Fyrir átta til tíu ár-
um hét þetta að „hanga aftaní“
og ekkert annað, sem virðist góð
og gild íslenzka. Nú veit hins-
vegar ekki eitt einaata ungmenni
hvað það er að hanga aftaní. Það
heitir nú að teika (líklega enska
,,take“). Það er sorglegt að sjá
svona orðskrípi laumast inn í
málið.
Auglýsingagabb ...
Kæri Vika.
Ég er ein af þeim, sem lét gabb-
ast af auglýsingunni um hann
Robertino á dögunum. Ég var búin
að hlusta á hann á plötum, áður en
hann kom og hugði nú gott til glóð-
arinnar. En á skemmtuninni söng
hann ekki nema fjögur — fjögur —
lög, þau að vísu yndislega, en þeg-
ar maður kaupir rándýra miða á
söngskemmtun, vill maður fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð. Hvað finnst
þér. Lina X.
Ef það er aatt sem þú aegir, að
miðarnir hafi verið „rándýrir",
þá eru fjögur lög full stutt söng-
skrá, jafnvel þótt undrabarn eigi
í hlut. Yfirleitt held ég samt að
óhætt sé að taka mark á auglýs-
ingum og útvarpið er vel á verði
um það, að skrumauglýsingar
komist ekki á framfæri. EUnsveg-
ar verð ég að taka undir með
þér f því, að þarna var fulllangt
gengið. Maður kaupir ekki miða
á tveggja klukkutfma söng-
skemmtun, til þess að hlusta á
söngvarann í svo sem tíu mín-
útur. Sem betur fer gildir þetta
ekki um alla auglýsendur. Hugs-
aðu þér, ef þú keyptir þér far-
seðil til Englands (samkvæmt
auglýsingu) og værir svo sett úr
í Vestmannaeyjum.
Almenningssímar.
Kæra Vika.
Reykjavík er nú orðin um 70.000
manna borg, og tala menn (a. m. k.
innfæddir) almennt um hana sem
stórhorg. En því miður eru margir
þeir ágallar á þessari stórborg, sem
verða til þess að hún kiknar undir
þvi nafni, því að ibúatalan nægir
ekki til þess ein saman — að
minnsta kosti legg ég þann sldlning
í orðið stórborg. Mig langar aðeins
til þess að koma einu á framfæri
við þig, og hef ég þó nóg yfir að
nöldra. Að vísu er ég ekki einn um
þessar umkvartanir og margir hafa
orðið fyrri til — en þeir virðast
ekki- hafa erindi sem erfiði. Nú. í
þessari „stórborg“ er ekki einn
einasti almenningssimi (síminn á
Lækjartorgi er sjaldnast virkur).
Er þetta nú nokkur hæfa? Ef menn
þurfa að komast i síma, verða þeir
að leita á náðir verzlana, og oft eru
simtölin þannig, að þeim sem talar
er ekkert um að alls kyns lýður
standi við simann og hlusti á. Fyrir
menn utan að landi er oft erfitt
að komast i sima, og ekki býst ég
við að þeim sé nokkuð frekar um
að láta hlusta á sig tala. Það ætti
ekki að vera ýkjamlkill kostnaður
við að koma upp slíkum almennings-
símum, enda myndu þeir borga sig
upp að talsverðu leyti. í stórborgum
eru almenningssimar taldir álika
sjálfsagðjr og almenningssalemi —
sem ég gæti reyndar talsvert nöldr-
að út af, en ég læt mér nægja sím-
ana að þessu sinni. Ég vona að þú
birtir þetta bréf, þvi að það tjóar
ekki að sitja kyrr á sinum rassi og
hafast ekkert að, láta yfirvöldin
komast upp með þetta. Með fyrir-
fram þökk.
Skarphéðinn D.R.
Þarf nokkru við þetta bréf að
bæta?
i júní blaði
er tneðal annars:
„Tólf bílar dregnir
fyrir dóm“ — saman-
burður á tólf helztu
bílagerðum evrópsk-
um af miðstaerð.
„Fyrsta eldflaugin til
Venusar" — greinar-
gerð eftir heimskunn-
an rússneskan pró -
fessor.
uenf
1941“ — fjöldi mynda
af nýjustu árgerðum
bíla.
„Út reri einn á báti“
— ævintýralegar frá-
sagnir af sægörpum,
sem siglt hafa á smá-
bátum yflr Norður-
Atlanzhaf.
Fjöldi armara greina
er í ritinu og allar
prýddar mörgum
myndum.