Vikan


Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 29

Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 29
9 tjcUuhuú fg/ HrútsmerkiO (21. marz—20. apríl): Þú munt eiga mjög annríkt i þessari viku, en nokkur hætta er á því, að þér verði ekki mikið úr verki. Konur ættu að hafa hægt um sig í þessari viku, en ekki vilja stjörnurnar gefa neinar frekari skýringar á því. Þeir, sem sjúkir eru, mega nú eiga von á bata, sem jafnvel gæti reynst varanlegur. Ungt fólk ætti ekki að taka mikilvæg- ar ákvarðanir að sinni — bezt er að bíða dálítinn tíma. NautsmerkiO (21. apríl—21. maí): I þessari viku munt þú verða áþreifanlega var við, að vinsældir þinar fara hraðminnkandi, og er þér bezt að bæta _____ráð þitt strax, ef ekki á illa að fara. Þú skalt ein- beita þér að starfi þínu í vikunni og brátt munt þú eiga von á launahækkun, ef þú ert heppinn. Föstudagur og laugardagur eru sérstaklega gömlu fólki til mikilla heilla. Heillaafmælisdagur 24. apríl og 1. maí. TyíburamerkiO (22. maí—21. júní): Þessi vika er einkum trúlofuðum og giftum til mikilla heilla — ástin skiptir þvi miklu i þessari viku. Þú kemst lík- lega í dálítil vandræði vegna þráa nokkurra félaga þinna, en allt fer þó vel að lokum. Nokkrar líkur eru á, að _þú færist nokkuð mikið í fang í vinnunni, og skalt þú gæta þín — yfirmanni þínum kann að mislika þetta Heilla- litur grænt. BKrabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þessi vika verður sérlega ánægjuleg og segja stjörnurnar, að þar beri næstum engan skugga á. Ástin verður töluvert á ferðinni, og munu ýmsir bindast ævilöngum tryggða- böndum. Fjölskylda þín mun þurfa mikið á 'þér að halda, og mátt þú alls ekki bregðast undir neinum kringum- stæðum. & LjónsmerkiO (24. júlí—23. ágúst): Horfur eru á, að þú fáir svalað metnaðargirnd þinni og er það vel, en gættu þin að miklast ekki af frama þínum — ekki fer vel á því. Breytingar á heimilisástæðum fara í hond hjá þér og skaltu því sinna heimili þínu sem mest. Taktu eftir, að það e rsvo sem allt í iagi að fá sér glas mest. Taktu eftir, að það er svo sem allt í lagi að fá sér glas með kunningjum sinum, en ekki má það ganga of langt' Þú -------- MeyjarmerkiO (24. ágúst—23. sept.): Margt mun ganga a í þessari viku og skiptast á gleði og sorgir' Kunmngi þinn mun koma til þín, og er hann í vanda staddur. Þú skalt umfram allt reyna að hjálpa honum út úr ógöngunum, og þakklæti hans mun verða þer mikils yirði. Fjárhagslega er þessi vika mjög hagstæð og agætur tími til þess að framkvæma eitthvað nýtt. A laugardaginn mun einhver ókunnur koma til þín í leit að raðleggingum. VogarmerkiO (24. sept,—23. okt.): Mikið verður um að vera mnan fjölskyldu þinnar — eitthvað stórkost- legt mun ske. Miklar breytingar verða á heimilis- hogum og vissulega til batnaðar. Gamall vinur þinn mun ef til vill hjálpa þér við vinnu þína eða tóm- stundagaman og munt þú fá góðar aukatekjur vegna þess DrekamerkiO (24. okt —22. nóv.): Þessi vika verð- ur heldur leiðinleg og tilbreytingarlaus, en þú mátt ekki vera þunglyndur um of og alls ekki valda vin- um þínum óþægindum. Vertu sem mest heima og fáttu þér annt um fjölskyldu þína. Um helgina muntu ta margar heimsóknir og ánægjuríkar, og eftir helgina mun þér aftur finnast allt leika i lyndi. Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Vertu þolinmóð- ur og kurteis þót.t einhver miður velviljaður reyni að bregða fyrir þig fæti. — ef þú aðeins ert rólegur o" flanar ekki að neinu. munt.u áreiðanlega sigra í viðureigninni. Að öðru Wti verður vikan tilbreyt,- ingalaus, og er bér bezt, að halda þig sem mest heima o? hvíl- ast. því að eftir helgina munt þú þurfa að sinna örðugum verkefnum Heillalitir fjólublátt og grænt. , GeitarmerkiÖ (22. des,—20. jan.): Um helgina munt bu fi ánægjulegar fréttir. en ekki skaltu kætast um of. þv' að miður velviljað fólk mun gera allt til bess að spilla fyrir bér. Vertu því ætíð á varðbergi. Amor mun skjóta örvum sínum í vikunni, en hætt er við, að ekki muni örvar hans rista djúpt. 1 fjármálum skaltu vera varkár og leita ráða hollvina þinna í sambandi við tæki- færi, sem þér býðst. Heillatala 5. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.): Þú ert mjög vinnusamur og hneigður til félagsmála. Þú munt hafa mjög mikið að starfa í vikunni, og allar líkur benda til þess að vinsældir þínar aukist mjög í þess- ari viku. Húsbóndi þinn mun líklega leita ráða hjá Þér og skalt þú ekki vera feiminn við að ráðleggja honum í þessu máli — þú berð gott skynbragð á það. FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þessi vika er konum og sérstaklega ungum stúlkum til mikilla heilla. Amor mun kveðja að dyrum og elskendur munu tengjast órjúfandi böndum. Yfirleitt er vika þessi einnig hagstæð fyrir karlmenn, en þeir ættu að varast að fara mikið út. Föstudagur verður einkar ánægju- rikur fyrir unga fólkið.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.