Vikan - 08.06.1961, Blaðsíða 21
Nú var Antony
orðínn þrjátíu ára,
hár dökkhærður
og laglegur, og góður
við gamlar konur,
smábörn og
' . - • 4 . J - V .
álika spennandi og
hörð brauðskorpa.
Það hefði verið
þörf fyrir konu eins
og Sally í lífi hans
mörgum árum fyrr.
Sally hafnaði í fangi hans, og bunki af vikublöðum þeyttist í allar áttir.
ROLEG OG DYGGÐUM
PRÝDD EIGINKONA
Það var gefið mál, að kona eins og Sally Prentice
mundi fyrr eða síðar birtast í rólegu og reglusömu
lífi Antonys Blackstones. Það var ekkert nema
tímaspursmál. Það voru fáir, sem höfðu eins mikla
þörf fyrir hressandi lost og hann. En Það hafði
hann sjálfur auðvitað ekki hugmynd um.
Antony gat sagt nákvæmlega fyrir, hvað hann
mundi gera á hverri stund dagsins. Það höfðu
frænkur hans, Charlotta og Sophia, séð um. Þær
höfðu nefnilega alið hann upp. Nú var Antony
orðinn þrjátíu ára, hár, dökkhærður og laglegur,
góður við gamlar konur, smábörn, og álíka spenn-
andi og hörð brauðskorpa. Það hefði verið þörf
fyrir konu eins og Sally í lifi hans mörgum árum
fyrr.
Án þess að renna grun í, að þýðingarmesta
augnabiik lífs hans væri í nánd, opnaði hann hurð-
ina að leiguhúsinu, þar sem hann hafði búið frá
því hann fór frá Selmouth og frænkunum. Hann
hélt á skjalatöskunni í annarri hendi og regn-
hlífinni í hinni og algjör lognmolla ríkti í huga
hans. Hann lokaði vandlega hurðinni á eftir sér
og sneri sér við til að fara upp stigann að íbúð-
inni á annarri hæð.
Á sömu stundu kom Sally Prentice þjótandi fyrir
bogann á stiganum, í peysu og víðu pilsi, í há-
hæluðum skóm. Hún hrasaði i fjórðu tröppu ofan
frá og valt niður það sem eftir var stigans. Hlægi-
lega lítil taska og stór hlaði af vikublöðum þeytt-
ist út i allar áttir og lenti á gólfinu fyrir framan
fætur hans og Sally lenti beint í fanginu á hon
um.
Þar sem Antony var einn metri og áttatíu og
fimm cm á sokkaleistunum og hafði vel útilátna
vöðva á réttum stöðum, og Sally var grönn stúlka,
tæplega einn og sextíu á hæð, var engin hætta á
að hann slasaðist við áreksturinn. Hann steig að-
eins eitt skref aftur á bak, þandi vöðvana og þrýsti
ungu stúlkunni að breiðum barmi sinum. Stutta,
örlagaþrungna stund hélt hann henni í faðmi sín-
um, en svo reif hún sig lausa og féll á kné fyrir
framan hann og kallaði eyðilögð: Æ, nei, æ nei!
Antony stóð eins og negldur við gólfið, umvafinn
sætum rósailmi, og starði frá sér numinn á gyllta
lokka og töfrandi hnakka, sem minnti hann á ný-
þvegið ungbarn.
— Þetta var hræðilegt, hélt þessi óhamingju-
sama rödd áfram. — Öll blöðin mín og taskan . . .
Frú Mortimer, forstöðukona leiguhússins kom
út úr skrifstofu sinni. — Fröken Prentice, hvað
hefur komið fyrir?
— Ég hrasaði í stiganum, svaraði Sally hratt —
og þessi herra tók á móti mér. Hún brosti sólskins-
brosi til Antonys og hann sundlaði. — Og ég, sem
var með þrjá, varaliti og tvær púðurdósir, hélt
hún móð áfram, — en það fór auðvitað allt úr
töskunni minni. Ég hafði auðvitað gleymt að loka
henni.
— Fröken Prentice, sagði frú Mortimer kulda-
lega, — þetta er herra Blackestone, einn af elztu
leigjendunum okkar. Hún sneri sér að Antony
með afsökunarsvip. — Fröken Prentice, útskýrði
hún, — er nýflutt hér inn. Hún býr á fyrstu
hæð. Fröken Prentice er listamaður.
Sally brosti aftur til Antonys. — Ég teikna
myndir með smásögum. Það er ákaflega skemmti-
legt. . . . Henni varð litið á stóru klukkuna yfir
öxl Antony. — Drottinn minn dýri! Er klukkan
orðin svona margt? Ég verð að þjóta. Ég bið
innilega afsökunar á þessu. Bless!
Hún hvarf út úr ganginum með blöðin í ann-
arri hendi og sveiflaði töskunni með hinni.
Antony gekk hægt upp stigann að íbúð sinni.
Þegar hann var kominn inn, hallaði hann sér
upp að veggnum og dró djúpt andann. Þannig
gekk þetta fyrir sig, hugsaði hann. Eins og þruma
úr heiðskíru lofti. Maður opnaði hurð og þar
var hún — h ú n, sú eina. Hún var sjálfsagt að
fara út með einhverjum öðrum manni. Og hér
stóð hann og gerði ekki einu sinni tilraun til að
hindra Það.
Hann var kominn hálfa leið niður stigann, þegar
heilbrigð skynsemi fékk aftur yfirhöndina. Þetta
Framhald á bls. 24.
VIKAN 21