Vikan


Vikan - 19.10.1961, Síða 9

Vikan - 19.10.1961, Síða 9
Annars vegar eru á Keflavíkurflugvelli hernaðarmannvirkin, flugbraut- irnar og flugskýlin; hinsvegar íbúðarhverfin með tveggja hæða húsumi, malbikuðum vegum og grasflötum á milli. Síðan flugvallarframkvæmdir hðf- ust í hrjóstugri heiðinni ofan við Keflavík, hefur mikill styr staðið um tann blett og má raunar segja, að hann sé sérstakt land í landinu. Völl- urinn eða „beisinn" eins og Þeir kalla hann í Keflavík og nágrenni að hætti amerískra, hefur orðið einskonar hulduland fyrir allan almenning. Það hafa borizt út tröllauknar sögur af þessu óhrjálega útkjálkaplássi, um smygl, um svimandi peningatekjur, um vændi og ólifnað, um hermang og svínarí, um ógnun við íslenzka menn- ingu og Þar fram eftir götunum. Þegar framkvæmdir stóðu sem hæst á Keflavíkurflugvelli, var þar meiri tekjur að hafa en í nokkurri annarri atvinnu á Islandi og menn á öllum aldri streymdu suður með sjó líkt og þegar þeir fóru í Þorskhausa- ferðirnar þangað í gamla daga, en eftirtekjan varð drýgri. Þarna bjuggu menn við frumstæð húsakynni, fram- kvæmdu þrautleiðinleg verk að því er flestir eru sammála um — og allt fyrir peninga og ekkert annað en penniga. Það var afskaplega mikið talað um það á þessum árum, hvað vallarvinnan væri leiðinleg og hvað Kaninn færi í taugarnar á þeim, en þeir unnu þar samt. Maður nokkur, sem vann þar lengi, sagði mér, að fjölmargir hefðu orðið afskaplega andstæðir öllu, sem amerískt var. Þeir urðu ekki kommúnistar, sagði hann, en völlurinn, fólkið og vinnan fór svo í taugarnar á þeim, að þeir þoldu ekkert að vestan. Svo risu upp heilagir vandlætarar, sem ósköþuðust yfir slíkri misnotkun á íslenzkri jörð og kváðu dauðadóminn yfir fornum og merkilegum menningararfi okkar. En þrátt fyrir allt héldu flugbraut- irnar áfram að teygja sig út um hraunið og það reis upp talsverð byggð á íslenzkan mælikvarða. En það pláss er eins ólíkt innlendum þorpum og dagurinn er frábrugðinn nóttinni. Þar búa nú 270 fjölskyldur og í allt eru um fjögur þúsund manns innan „girðingarinnar" frægu. Þetta er sérstakur heimur út af fyrir sig, þar sem séð er fyrir þörfum borg- aranna á venjulegan hátt, eða öllu heldur á amerískan hátt. Keílavíkur- flugvöllur er eins og sjálfstætt ríki Á Keflr víkurflugvelli búa 270 fjöl- skyldur; þar er barnaskóli og flesíar þær stofnanir, sem kom'a fyrir í venjulegu þjóðfélagi. Hér er her- maður af vellinum í barnahóp á leikvelli. KEFLAVÍKUR FLUGVÖLLUR i WfsmÍÍmm Hart ÍMfffKfMtfH ’’ ■y:-;.yy.ýý,ý'.y;.yyyy< wm VIKAN 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.