Vikan


Vikan - 19.10.1961, Page 37

Vikan - 19.10.1961, Page 37
Ávaxtapressa. Grænmetis-skeri 3 hnífum. með Ávaxta-þeytari. Hakkavél. Rjóma-ís-þeytari. Starmix er ný tegund, og ein fullkomnasta hrærivélin sem er á markaðnum. — STARMIX er Vestur-Þýzk framleiðsla og mest selda hrærivél Vestur-Þýzkalands. SÖLUUMBOÐ ÚTI Á LANDI: Ólafsvík: Kaupfélagið Dagsbrún. Hellissandi: Kaupfélag Hellissands. Súgandafirði: Kaupfél. Suðureyrar. Hólmavík: Kaupfél. Steingrímsfj. Akureyri: Verzl. Tómasar Jónss. Eskifirði: Kaupfélagið Björk. Fáskrúðsfirði: Kaupfél. Fáskrúðsfj. AÐALUMBOÐ I REYKJAVIK: Valafell Garðarstræti 2. Sími 16976. við skýlin. Þar hitti ég Cozenku, er stóð álút yfir hreyfingarlausum líkama Benders. Vasaljós, er lá á jörðinni, lýsti upp blæðandi sár á hrjósti hans. Það þurfti engan lækni tii að sjá :að Bender var látinn. Cozenka hætti að veina. Andlits- drættir hennar voru stirðnr.ð'r, augnaráð'.Ö starandi og hún skalf ssm reyr i vindi. — Ég drap hann. Ég drap mann- inn sem ég elskaði. Guð fyrirgefi mér! — Hvernig bar það til? spurði ég og féll á kné við hlið hans. Hún starði á mig og svipur hennar lýsti hryllingi. — Við gengum sína leiðina hvort. Ég notaði ek!:i vasa- Ijósið — ég var að horfa eftir glóandi augunum í Ára. Af einhverjum á- starðun hiýtur hann að hafa gengið fram fvrir mig E’n Ári var hérna — það get ég svarið. Ég sá grænu aug- un hans. Hann stökk um leið og ég skaut. En það var . . . Fótatak sem nálgaðist stöðvaði orðaflaum hennar, og Wýndham kom í ljós. — Hvað hefur komið fyrir? spurði hann og gerði sér öll atriði Ijós með einu einasta augnatilliti. Þar var ekkert ofboð að sjá og þaðan af síður taugaáfall, heldur hinn full- komna hvíta veiðimann. — Cozenka skaut Ken. Hún villtist á honun og Ára. Hélt að hann væri græneygður. Ef til vill tók Wyndham eftir kald- hæðninni í rödd minni, en hann lét þá ekki á því bera — Pardusinn er hér ekki núna, sagði hann og brá upp vasaljósinu. Farðu til skýlanna. Náðu í ábreiðu til að hylja líkið og ein- hvern, sem getur gætt þess. Fylgdu síðan Cozenku heim. Ég verð að halda áfram unz ég hef fundið andskotans köttinn. — Það ætti ekki að vera mjög erf- itt, fnæsti ég. Bara að setjast við op- inn . . . En hann var þegar horfinn og ég hóf að framkvæma skipanir þær, er ég hafði fengið. Um leið og við Cozenka komum inn í garðinn, heyrðum við hvelilnn í byssu Wyndhams, og skömmu seinna kom hann til okkar inn í vinnustof- una. Hann fékk sér vænan teyg af konjaki og sagði siðan: — Ég fann hann í kjarrinu skammt héðan og kom á hann góðu skoti. Hann er dauður Cozenka hafði náð sér iítið eitt, eða eins og búast mátti v'ð eft.ir það. sem hún hafði orðið að þola. Ég dáð- ist í fyllsta mæli að leikarahæfileikum hennar þegar hún sagði: — Ljúfling- urinn minn er dáinn. Elsku, elsku Ijúflingurinn minn. — Áttu við manninn þinn eða kött- inn? spurði ég. Þau litu bæði hvasst á mig. Ég fór skyndilega að ihuga mína eigin möguleika til lengra lífs og hallaðist helzt að því, að heppi- legast væri að kingja öllum stóryrð- um að sinni. En reiðin mátti sin betur. — Ég hefði átt að taka meira tillit til Þess, sem Ken sagði þegar við riðum út saman. — Hvað sagði Ijúflingurinn minn? spurði Cozenka. —■ Ljúflingurinn þinn sagði að þið hefðuð í hyggju að myrða hann. Ég býst við að hann hafi óbeinlínis verið að biðja mig um hjálp, enda þótt ég væri of mikill nautshaus til að skilja það. Og eftir á að hyggja, ég kæri mig ekki um að sýnast smásmugu- legur, en ættum við ekki að gera lögreglunni viðvart? — Það er þegar gert, sagði Wynd- ham. Ég hringdi til sérlffans í Kenton — það er hálftima ferð það- an hingað. — Þú varst að tala um Ken, sagðl Cozenka. Eb þú lýgur auðvitað. Hverskonar heimska er þetta, sem — Það hélt ég lika fyrst i stað. Ég áleit að hann væri eitthvað litils- háttar úr greinum genginn. En hann vissi áreiðanlega meira en ég leyfði honum að segja mér. — Marty, vinurinn minn, þú hlýtur að vera genginn af vitinu. I guð- ana bænum, hvað ertu að tala um? Þetta er hreint brjálæði! — Þetta þýðir ekkert. Kænlega morðáætlunin ykkar er öll runnin út i sandinn. Pardusinn, sem Wynd- ham var svo ákafur í að skjóta, heim- sótti mig hingað, — rétt áður en þú skauzt Ken Bender með köldu blóði. Hann var einmana og leitaði einhvers að leika sér við. Hann var taminn eins og kettlingur. — Hvílík vitleysa! Hafi Ári verið hér, ættir þú að þakka Guði fyrir að vera enn á lífi! — Ef til vill. En hættan stafaði ekki frá kettinum. Úti í skýlinu sakaði Wyndham hann um að vera viðsjárverðan, en launráðin komu frá allt öðrum aðilum. — Hvað átt þú við, Marty? spurði Cozenka og iék sakleysingjann, sem hafður er fyrir rangri sök. Hvers- vegna hefði ég átt að gera þetta? Hversvegna hefði ég átt að drepa manninn, sem veitti mér allt? — Þarna komstu með það. Hann gaf þér allt. En ást hans og peningar gátu ekki breytt þeirri staðreynd, að þér dauðleiddist hann. Hann var ríkur eins og Krösus. Þessvegna varst þú reiðubúin að veita viðtöku öllu, sem hann gat látið þér í té, nema því, er hann helzt vildi gefa þér. Hon- um sjálfum. Frh. á næstu síðu. P h< liílbrejtt tshi Wm STARMIX athugið sérstaklega rjómaísþeytarann viican 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.