Vikan - 23.11.1961, Blaðsíða 2
Slankbelti eða brjóstahaldari er undir-
fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að
vel athuguðu máli. Lífstykkjavörur eru
það þýðingarmikill þáttur í klæðaburði
yðar, að nauðsynlegt er að velja þær með
fyllstu nákvæmni. Spyrjið um hinar vel
þekktu KANTER'S lífstykkjavörur, sem
eingöngu eru framleiddar úr beztu efnum,
i nýjustu sniðum. Þér getið ávallt verið
öruggar um að fá einmitt það sem yður
hentar bezt frá
For§íðan
Ef veitt væru Nóbelsverðlaun
fyrir jazzleik, trompetleik, hljóm-
sveitarstjórn, — eða jafnvel jazz-
söng, er ekki vafamál að Louis Dan-
iel Armstrong, eða bara „Satchmo“
hefði fyrir löngu komið til greina,
sem verðlaunahafi. Það nuetti ef til
viil segja að söngur hans sé ekki
í þeim flokki, sem til greina kæmi
ef um slík verðlaun væri að ræða,
því vissulega er hann ekki fágaður
né röddin tær, en samt er ekki ó-
sennilegt að fáar söngraddir séu bet-
ur þekktar í heiminum í dag.
Satchmo — dregið af orðinu sat-
chelmouth, eða pokakjaftur — fædd-
ist árið 1900 í New Orleans, þar sem
vagga jazzins er talin hafa verið.
Foreldrar hans voru svo fátækir að
ekki var hægt að kaupa handa hon-
um hljóðfæri, þótt hann sýndi
snemma áhuga fyrir þeim. Það varð
honum e.t.v. til happs, að hann var
settur á heimili fyrir ósýriláta
drengi, er hann hafði skotið úr
byssu úti á götu á gamlárskvöld.
Þar komst hann yfir lúður og eftir
skamman tíma varð hann stjórn-
andi drengjahljómsveitar þar.
Nú er Louis Armstrong fyrir
löngu orðinn heimsfrægur fyrir leik
sinn og fátæki drengurinn frá New
Orleans orðinn miljónari, þekktur
um allan heim. ★
— Afsakið, en ég held að gæsin sé
ekki fullsteikt.