Vikan - 23.11.1961, Side 27
C'OMO lOO’i'J ms
Krupp-verksmiCJurnar þýzku, sem
báru ábyrgC á vélunum, en eitthvaC
reyndist i ólagi meC þœr. Nokkur
vafi lék á um ábyrgC verksmiCjanna
og gekk stirt ati fá lausn á málun-
um. Jón fór oft til Þýzkalands og
lagði fram sin sjónarmið, en ekkert
gekk. Tók hann sig þá til og skrif-
aði Krupp von Bohlen sjálfum
einkabréf og sendi honum islenzka
bók — á þýzku, lýsti hann starfi
þjóðar sinnar, viðskiptum fyrirtækis
síns við verksmiðjur hins þýzka
jðfurs og bað hann þess, að rann-
saka málið sjálfur. Jón fékk svar —
og viðunandi lausn á sinum málum.
Þetta uppátæki Jóns, að skrifa
höfuðpaurnum sjálfum, sem er eins
og keisari yfir sinu heimsveldi, lýs-
ir .Tón vei, dirfsku hans og karl-
mennsku.
Jón átti mjög mikinn bátt I viS-
ræðum og samningum út af land-
helgisdeilunni og löndunarbanninu.
Fór hann margar ferðir til Englands
út af báSum þessum viSkvæmnu
deilumálum og talaSi viS forystumenn
togaraeigenda, bingmenn og ráB-
herra. Sagt er. að Jón hafi þá ekki
talað tæputungu. Og bað hafði sin
áhrif. Enn var hann harður, djarfur
og hreinskiptinn.
Emil Jónsson hafSi veriS banka-
stjóri viS Landsbankann, en er hann
varS ráðherra, fékk hann annan mann
í staSinn fyrir sig. Er sá maöur fór í
annað starf, komu flokksmenn Jóns
auga á hann. En hann hafSi öSrum
hnöppum aS hneppa. ÚtgerSin átti í
erfiSleikum og á enn. Og þaö var sizt
að skapi Jóns að láta af starfi meðan
slíkt ástand rikti. Það var lengi beðið
eftir því, að Jón gæfi samþykki sitt
og gekk maður undir manns hönd að
fá það. Eru þess að líkindum eins
dæmi, að nokkur maður hafi verið
eins tregur og Jón Axel að taka viS
bankastjórastöðu við þjóðbankann.
En hann gerði Það. Sagt er þó að
hann hafi allt af annað augaS á Bæj-
arútgerðinni.
Jón Axel Pétursson á fáar hvildar-
stundir og þannig hefur það verið í
marga áratugi. Hann hefur allt af
verið kappsfullur, jafnvel svo, að
honum hefur orðið hált á því. Það
var kapp hans, sem bjargaði brezka
flugvélamóðurskipinu, sem strandaði
við örfirsey á stríðsárunum og
nokkru síðar bjargaði hann brezkum
sjóliðum eftir ofsaveður, en fyrir það
björgunarafrek hlaut hann brezkt
heiðursmerki. En Það var líka þetta
sama kapp hans, sem rak hann til að
stökkva frá borði ofan í bát í ólgu-
sjó með þeim afleiðingum að hann
hælbrotnaði á báðum fótum. Hann
hefur alla tíð verið kappsfullur, dug-
legur og ósérhlífinn. Hann á það
kanski til að rjúka upp eins og ör-
skot og höggva á hnút og allt af er
ys og þys þar sem hann kemur. En
allir eru sammála um það, að Jón
Axel Pétursson sé hreinskiptinn mað-
ur að fláræði fyrirfinnist ekki i skap-
gerð hans. Hann spýtir hraustlega
út úr sér -— og Þar með basta.
Hann er að líkindum ekkert farinn
að þreytast. Samt sem áður er hann
heimakær á kvöldum. Hann fer nokk-
uð á laxveiðar á sumrum og er
skeggjaður, skítugur og ljótur dögum
sama — og hugsar bara um að veiða.
Hvort hann er veiðinn, veit ég ekki.
— Hann les mikið góðar bækur. Einu
sinni heyrði sá er þetta ritar hann
vera að tala um bók sem fjallaði um
leitina að einfaldleikanum og upprun-
anum. Jón sagði:
„Þetta er rétt. Það skiptir máli.
Bráðum hætti ég öllu þessu stússi —
og kaupi mér litla trillu. Þá sé ég um
hana einn, ræ einn, fiska einn, geri að
aflanum einn, sel hann eða ét hann
einn. Það er bezt að vera einn."
Hann átti við hið athafnamikla
starf, fjöldann í kringum sig, af-
greiðslu málanna, mennina sem
streymt hafa að honum alla tið og
úr öllum áttum.
Hann á lítinn og laglegan sumar-
bústað austur í Laugardal. Þar dvel-
ur hann stundum ásamt konu sinni,
Ástríði Einarsdóttur. Þá rakar hann
sig sjaldan, en er að dytta að alla
tíð, skrúba og bursta og mála — og
laga til, aldrei iSjulaus, allt af að
einhverju stússi.
Og konan hans þolir önn fyrir þaS,
að allt í einu segi hann upp úr eins
manns hljóði:
„Ég verð að fara suður. Ég þarf
að afgreiða . . . Ég Þarf að . . .“
Hann er allt af að. Hann er vel-
virkur og fljótur, snaggaralegur og
mar^hertiur í striti og striði,, en
gleymir aldrei uppruna sínum og
kjörum fólksins. Og hann þráir sinn
trillubát.
Hemmingway skrifaði söguna um
gamla manninn og hafið. Gamli mað-
urinn reri á djúpmið og fékk stóran
fisk, sem hann gat ekki innbyrt af
þvi að hann var einn. Hann setti hann
fastann og reri til lands, en á leið-
inni komu hákarlar og rifu i sig
fiskinn svo að ekkert var orðið eftir
af honum nema hryggurinn og haus-
inn. Það getur vel verið, að Jón Axel
eigi eftir að róa einn eins og hann
talar stundum um, en margt sögulegt
mundi gerast áður en hann léti há-
karl rifa af sér happadráttinn.
„BERGAMO”
Eins og af stílnum má ráða er þetta frábærlega fallega sófasett upprunnið frá suðlægri breiddargráðu. Bergamó er
unnið úr völdu efni og af vandvirkum fagmönnum. Bergmósettið hentar alveg sérstaklega vel í smáar íbúðir, því
það er svo léttbyggt og smækkar því ekki stofurnar, enda er það létt að hreyfa og flytja til.
SKEIFAN £jörgarði, sími 16975. Skólavörðustíg 10, sími 15474.
Þiljuvöllum 14 NesJcaupstað. Húsgagnaverzlunin EIMIR, AKUREYRI.
VIKAN 27