Vikan


Vikan - 30.11.1961, Blaðsíða 26

Vikan - 30.11.1961, Blaðsíða 26
er að þeyta það í lvrærivél). Þá er smjöri kakaói og kaffi blandað varlega saman við. Kökubotnarnir eru lagðir saman nieð kreminu Rjóminn er stifþeyttur og sprautað eða settur með skeið yfir kökuna. Skreytt með niðursoðnum perum, sem áður eruskornar í skífur, og grófrifnu súkkulaði. Rjómaterta, með hnetum eða ávöxtum. Saman við sykurbrauðsdeigið er blandað smátt söxuðum Iinetum og Vi tesk. af kanel. — Bakað í 2—3 botna, sem eru lagðir saman með rjóma. Kakan er skreytt með ferskj- um, ananas og koktailberjum eða vínberjum. Einnig er fallegt að skreyta hana með bnetukjörnum. Sveskjukaka. 200 gr hveiti, 1 tesk. lyftiduft, 1 bnífsoddur negull, 125 gr sykur, 150 gr smjörliki, 2 egg. Hveitið er sáldrað með lyftidufti og kryddi, sykurinn settur saman við og smjörlíkið skorið í með hníf. Vætt með eggjunum. Hnoðað fljótt saman. Kælt. Deiginu er skipt i tvent. Annar belmingurinn flattur út og látinn í velsmurt mót, í botn- inn og upp með börmunum. Sveskjumaukinu smurt þar yfir. Það sem eftir er af deiginu er breitt út og skorið í strimla með kleinu- járni, sem fléttaðir eru yfir og með- fram börmum mótsins. Penslað með eggi. — Bakað við ca. 225 gráður i 30—40 mín. 26 VIKAN Góð jólakaka. 200 gr smjörlíki, 200 gr sykur, 3 egg, 400 gr hveiti, 2V4 tesk. lyftiduft, 1—2 dí. mjó k, Rifið hýði og safi úr einni sitrónu, 75 gr rúsinur, (kúrenur og súkk- at ef vill). Smjörlíkið er hrært lint og sið- an rneð sykrinum jiar til ]iað cr létt og ljóst. Eggjunum hrært í einu og einu. Hveitið er sáldrað með lyftiduftinu og hrært sainan ásamt mjólkinni. Síðast er sítrónusafinn ásamt rifna hýðinu og rúsínunum hrært saman við. — Bakað í vél smurðu móti við ea .175 gráður i um það bil 1 klst. Súkkulaðikaka. 180 gr smjörlíki, 250 gr sykur, 1 msk. vanilljusykur (eða 1 tesk. vaniljudropar), 4 egg, 50 gr kakaó, 150 gr fínt sáldruð brauðmylsna, 150 gr hveiti, 2Ví> tesk. lyftiduft, 2 dl sterkt kalt kaffi. Smjörlíkið er hrært lint og síðan með sykri og eggjarauðum, einni og einni í senn. Brauðmylsnan hrærð Jiar í ásamt hveitinu, sem áður er sáldrað með kakaói, lyftidufti og vaniljusykri. Síðast er stífþeyttum hvítunum blandað saman við. Mót- ið er smurt og stráð í það brauð- mylsnu (bezt að nota djúpt mót með lausum börmum). Deiginu hellt jiar í og bakað við 20Ó—250 gr. Þegar kakan er köld er hún skorin í þrjú lög, sem eru lögð saman með apríkósumauki eða þeytt- um rjóma. 1 msk. af palminfeiti er brædd og hálfkæld. Þar saman við er lirært 80 gr af flórsykri og lVz msk. kakaói, ásamt 2—3 dropum af heitu vatni. Smurt yfir kökuna. Skreytt með söxuðum möndlum og koktailberjum. Hrærð terta. 200 gr smjörlíki, 200 gr sykur, 3—4 egg, 250 gr hveiti, 2V2 tesk. lyftiduft. Deigið erlirært á venjulegan hátt. Skipt í 3—4 tertumét. Bakaðar ljósbrúnar við góðan hita. Þegar kökurnar eru kaldar eru þær lagðar saman með góðu mauki, bezt er j ar ð arber j am auk. Hnoðuð terta. V2 kg hveiti, 250 gr smjörliki, 250 gr sykur, 2 egg, 1 M> tesk. hjartarsalt. Deigið er' hnoðað fljótt saman og kæll (sé það sundurlaust er sett dálítil mjólk saman við). Flatt út á plötunni í kringlóttar eða ferkant- aðar kökur við góðan hita og tekn- ar strax af plötunni. Lagðar sam- an með góðu mauki, bezt er sveskju- inauk. Báðar térturnar þarf að geyma í vel lokuðum kössum. Fylltar kökur, (linsur). 250 gr hveiti, 150 gr smjörlíki, 50 gr sykur, 2 eggjarauður. Kremið. 2 eggjarauður, 1 msk. sykur, 1 msk. kartöflumjöl, 3 dl mjólk, 1 tesk. vanilja. Deigið er hnoðað og kælt, meðan kremið er búið til. Eggjarauðan cr hrærð með sykrinum. Kartöflumjöli og mjólk hrært saman við. Látið í pott og hitað við hægan hita þar til það jiykknar, hrært stöðugt i á meðan. Kælt og hrært í öðru hvoru. Vaniljan Iátin í. — Mótin eru smurð og deigið flatt út, skorið eftir mótum. 1—2 tesk. af kreminu sett i hvert mót og kringlótt kaka sem búin er til úr deginu lögð yfir, brúnunum þrýst vel saman. Lins- urnar eru bakaðar við meðalhita ca. 20 mín. Úr uppskriftinni eru 18—20 linsur. I lietta deig iná einnig láta möndlufyllingu. 120 gr möndlur, 120 gr syluir, 85 gr smjör, 2 egg. Möndlurnar eru afhýddar og hakkaðar í möndlukvörn eða sax- aðar smátt ineð hníf. Smjörið er hrært og eggin þeytt með sykrin- um. ÖIlu blandað saman. í staðinn fyrir að hylja fyllinguna er fallegt að skera deigið í strimla og leggja yfir. Hafrakex. 250 gr haframjöl, 125 gr hveiti, 1 tesk. hjartarsalt, 50 gr smjör- liki, 125 gr sykur, 1%, tesk. mjólk. Hveiti, sykur og hjartarsalt er sáldrað saman við haframjölið. Smjörlíkið inulið í og vætt i með mjólkinni. Hnoðað. Flatt út fremur þunnt. Bakað við meðalhita þar til raðir kökunnar eru gulbrúnar. Ostakex. 120 gr liveiti, V2 tesk. lyftiduft, 100 gr smjör eða smjörlíki, 1 eggjarauða, 120 gr rifinn ostur, Vi msk. rjómi, salt á hnífsoddi (paprika ef vill). Hnoðað deig. Flatt út og mótað með kringlóttu móti eða glasi. lvök- unum er raðað á smurða plötu og penslaðar ineð eggi. Bakaðar við mikinn liita. . Beztar nýbakaðar með súpum, einnig er gott að sprauta á jiær ostakremi og hafa þær með súpum, kaffi eða te. Kleinur. Va kg hveiti, 125 gr sykur, 58 gr smjörliki (brætt), 1 egg, (stórt), 2 tesk. lyftiduft, IV2 tesk. hjartarsalt, 1 tesk. karde- mommur, ca. Vt 1 mjólk (gott er að liafa súrmjólk). Hveitið er sáldrað með lyftiefn- um og kardemommunum. Sykurinn settur saman við og smjörlíkið mul- ið í. Vætt í með mjólkinni, sem gott er að sé súr. Hnoðað. Deigið á að vera fremur linhnoðað annars er hætt við að kleinurnar verði seigar. Flatt út fremur þykkt, skoriS með kleinujárni í 4—5 cm íengjur og síðan á ská í 6—7 cm búta, rifa skorin i miðju livers og klein- unni snúið við, steiktar i jurtafeiti eða tólg sem hituð er í potti (bezt járnpotti) þar til sýður i kringum eldspýtu (brennisteinslausa endan- um er stungið í feitina). Klein- urnar eru settar niður i nokkrar i einu eftir stærð pottsins og eiga að fljóta upp samstundis annars er feitin ekki nógu heit. Bakaðar báðum megin og færðar upp á pappír sem dregur til sín fitu. Geymdar i loftþéttum kassa. Sjálfsagður siður er að hafa hlemm við þendina þegar steikt er í fljótandi feiti ef kviknar i pottin- um. Eplaskífur. 1 bolli hveiti, 2 tesk. lyftiduft, 35 gr. smjörUki, 75 gr. púður- sykur, 2 egg, Vi tesk. karde- mommur, V, tesk. salt, ca. Vt 1 mjólk (bezt að nokkuð af henni sé súrt), rúsínur og eplabitar. Hveitið er sáldrað með lyftiduft- inu. Smjörlíkið brætt og hrært með sykrinum og eggjunum. Hveitinu hrært jiar i sinátt og smátt ásamt kryddi og mjólk, rúsínunum bætt þar í, þeim má sleppa og eru oft látnir eplabitar í skífurnar um leið og þær eru bakaðar á eplaskífu- pöínnu. (Ath. að eplaskifur verða beztar séu þær bakaðar við hægan hita. Bornar fram nýbakaðar með epla- eða aldinmauki.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.