Vikan - 30.11.1961, Blaðsíða 38
NECCHI
JULia - LVCTS - NORS
Hinar dásamlegn sjálfvirkn rafknúnu rélar.
Auk ails venjulegs saums framkvæma þær þúsundir af mismun-
andi saumaskap algerlega sjálfvirkt, með 1 eða 2 nálum.
Bjóða yður einnig yfir 200.000 mismunandi gerðir skrautsaums,
einnig sjálfvirkt.
NECCHI saumar einnig á hnappa, og að sjálfsögðu einnig
hnappagöt af margvíslegum gerðum og stærðum, algerlega sjálf-
virkt.
Fullkomin kennsla stendur kaupendum einnig
til boða.
with the amazine “duoniatk actim
BK Wgr
■ - W&m ‘ Æíkám
11 JM SMiBsí @ j§§ 1
'
m
NECCHI eru vélarnar sem allar konur dreymir um að
eignast. i
Þúsundir ánægðra notenda um land allt ber vitni um gæði þeirra.
Fálkinn h.f.
er komið upp fleiri eftirlitsstððvum;
rofum og stillum fer stöðugt fjölg-
andi. Um leiö er að þvi unnið að
gera kerfið sífellt hraðvirkara. Það
tekur fullar fimmtún minútur, ef allt
gengur samkvæmt áætlun, að skjóta
upp Atlas eldflaug, en ekki nema
nokkrar sekúndur að skjóta upp hin-
um nýju „Minuteman“-eldflaiugum.
Eins og stendur þarf seytján menn
til að skjóta Atlas-eldflauginni, en
fyrir bætta tækni mun ekki þurfa
nema fimm menn til að vinna Það
verk undir árslokin. Aðeins tvo menn
þarf til að skjóta upp Minuteman-
flaugunum. Fyrir bragðið verður
hlutverk þeirra við rofana og stillana
stöðugt ábyrgðarmeira.
Þeir Kenneth E. Pletcher höfuðs-
maður og læknir, og Reuben Baer,
höfuösmaður og sálfræðingur, sem
báðir eru starfandi meðlimir öryggis-
nefndar flughersins, hafa áhyggjur af
því, aö einhver mannanna viö rofana
kunni að „taka til sinna ráða“. Þeir
tvímenningarnir fást nú við aö rann-
saka áður ókannað svið sálfræðinnar
— afbrigðilega hegðun manna.
Hversvegna skyldi nokkur maður
vilja hrinda af stað styrjöld? „Við
álítum að þaö sé til, að menn vilji
valda slysum eöa mistökum, ef til vill
i því skyni aö vekja á sér athygli,
svipað og óþekkir krakkar," segir
Bear höfuðsmaður.
Og svo eru það hinir svokðlluðu
prakkarar. „Fjandinn hafi það; nú
hef ég horft á þessa hluti dag eftir
dag, — það væri freistandi aö hleypa
þeim af staði" Þá fyrirfinnast menn
haldnir sjúklegri sjálfsmorðshneigð,
og vilja fyrirfara sér án þess að hirða
um þótt það kosti aðra Hfið. Og hvað
um ungverska flðttamenn, sem vilja
umfram allt koma fram hefndum við
Rússa? EOa undirmenn, sem reiðast
þvi að þeir eru ekki hækkaðir I stöðu,
eða hatast við yfirmenn sina af ein-
hverjum öðrum ástæðum? „Sjáum
til — það væri ekki nema mátulegt
að þeir fengju kúluna kembda!" Eða
þeir, sem fá aðkenningu af stðr-
mennskubrjálæði. vegna þess að þeir
eru settir I svo ábyrgöarmikiö starf,
telja sig ráöa örlögum heilla þjóöa
— og þeir, sem telja aö afvopnun
nndir ströngu eftirliti yrði helzt kom-
iö á fyrir „slysni", sem vekti almenna
andstööu gegn kjarnorkuvopnum? Og
þeir. sem hugsanlegt er að myndi
með sér samtök um að „koma í veg
fvrir styriöld", meö því aö ganga frá
''’iissum I eitt skipti fyrir öll, áÖur
en þeir ráðast á Bandarlkln?
Listinn er óendanlegur. Herman
Kahn, hinn atorkumikli starfsmaöur
RAND-stofnunarinnar, hefur gengiö
til atlögu við ýmis friðarsinnasam-
tök innan hersins. „Þeir ganga stöö-
ugt lengra í ofstæki sihu," segir hann.
..Það er takmark þeirra aö taka lög-
in í sínar eigin hendur." Ef menn
úr slikum samtökum gengju I flug-
herinn og væru settir til starfa I
grennd viö flugskeytastöövar eöa í
stöðvunum sjálfum — ef til vill sem
veröir eöa sem vélritarar — mundu
beir þá geta komizt yfir þá þekkingu,
sem komið gæti samtökunum aö not-
um? Eöa gætu utanhersmenn, sem
ef til vill væru þátttakendur i slik-
um ofstækissamtökum, útvegað
kommúnistum viöurhlutamiklar upp-
lýsingar, svo sem reglurnar um rás-
merkin og tilhögun eldflaugaskot-
anna? Þegar á allt er litiö, mundu
Rússar ekkert hafa á móti því aÖ al-
menningsálitiö snerist gegn Banda-
ríkjamönnum, svo Þeir væru tilneydd-
ir aö draga úr viðbúnaði sínum, og
hvað væri betur til þess fallið en
bandarískt „slysaskot"?
Eldflaugastöövunum má loka með
múrum og girðingum, sem enginn ó-
viðkomandi fær yfirstigið, enda er
það gert, en hegðun manna og við-
brögð verða ekki hamin neinum girð-
ingum. Pletcher læknir og samstarfs-
menn hans reyna þvl að komast að
raun um þörfina á þvl að komið sé
á skipulögðu eftirlltl með allrl hegðun
og framkomu þeirra, sem rofanna
gæta og yfirmanna þeirra, og voru
læknarnir beðnir að semja nýja reglu-
gerð varðandi þetta atriiöi. Plagg
þetta nefnist „Mannlegur traustleiki",
og er þar I fyrsta skipti gerö grein
fyrir starfstilhögun sálfræöinga og
sálkönnuða, sem rannsaka skyldu
geðheilbrigði starfsmanna i skot-
stöövunum. Þessari rannsóknastarf-
semi hefur þó ekki verið hrundiö í
framkvæmd ennþá, þar sem talin er
hætta á aö hún gæti haft skaðlegar
afleiðingar fyrir sambúð starfsmann-
anna.
Þaö er vafasamt að flugherinn fari
aö tillögum þeirra Pletchers og Bears.
Það er ekki að vita nema þjóðþingið
kallaði þaö að „snuðra". Og geðlækn-
ar eru x vafa um, að auðið mundi aö
leiða þannig i ljós hverjir séu Hkleg-
astir til að stofna örygginu í hættu.
Þess vegna hefur veriö tekiö upp
það ráö, að draga úr áhættunni af
hálfu mannanna við rofana meö þeim
ráðum, sem SAC hefur tekið upp, og
áöur er sagt frá. Þar sem um mjög á-
byrgöarmikið starf er aö ræða, eru
tveir látnir vinna það í sameiningu eða
fleiri svo hver geti haft gát á öörum.
Það auðveldaði líka slikt eftirlit
áður, að hóp manna þurfti þá til að
skjóta eldflaugunum á loft, og þarf
enn, hvaö eldri gerðunum viðkemur.
öðru máli gegnir með Polarisflug-
skeytin. Þar eru því gerðar þær ör-
yggisráðstafanir, að enginn einn
kunni að taka af þeim hemlana og
önnur handtök, sem meö þarf; um
slysaskot getur þvl ekki orðið að
ræða Þar, nema svo færi að upp-
reisn yröi um borð I einhverjum kaf-
bátnum, sem vopnaður er slíkum
skeytum.
Nýju kjarnorkuskeytin valda nýj-
um áhyggjum. Til dæmis „Minute-
mans"-skeytin, sem jafnvel einn mað-
ur gæti skotið á loft aðstoðarlaust.
Þess vegna hefur orðiö að gera sér-
stakar ráÖstafanir í sambandi við
Þau, eins og Polaris-skeytin, — skot-
aðferðin hefur verið gerö þaö flókin,
að fjórir menn veröi aö framkvæma
hana, og verður flauginni ekki skotið,
nema hver þeirra um sig þrýsti á sinn
rofa; þeir eru þvi aöskildir skotheld-
88 VIKAN