Vikan


Vikan - 30.11.1961, Blaðsíða 47

Vikan - 30.11.1961, Blaðsíða 47
undnar haía veriC þráöum kenni- setninga mtirgra kynslóOa. Hún vissi, aO Því aOeins fœr maöur þann, sem maöur þráir, aö hægt sé aö sýna hon- um og sanna, aö maöur telji hann þess viröi, aö maöur berjist gegn öllu og öllum til þess aö mega njóta hans. AÖ ekkert særir karlmanninn meir, þegar þannig stendur á, og gerir hann hikandi og tvíráöan, eins og það að konan vilji leggja úrslitavaldið í hans hendur, láta hann skera úr um hvers viröi hamingja þeirra sé. Finni hann hinsvegar, aö konan, sem hann elskar, metur hann svo mikils að hún lætur engar hindranir, hvorki af völdum guðs né manna, aftra sér, hikar hann ekki heldur við neitt ... Fingur hennar snúa skífunni, og biðin eftir hringingarsóninum er henni sem eilífð. Hún veit, að í þess- ari andrá hefur hún hrundið af stað þvi, sem henni ber hér eftir heilög skylda til að fórna öllu fyrir, berjast fyrir unz sigur vinnst. Að hún hefur ekki aðeins lagt sina eigin hamingju að veði, heldur og hans, mannsins, sem hún elskar. Að einmitt þetta er að elska ... Tvær hringingar. Rödd hans ... Framhald i næsta blaöi. STIG AMENNSKA. Framhald af bls. 18. Lýsingu af þessari sjálfsmorðs- tilraun má í rauninni skipta i þrjá kafla: 1) Montinn 2) Meðvitundar- laus 3) Kjaftfor. Fyrsti kaflinn (1) Montinn) hefst á því að ég labbaði i blíðskapar- veðri inn á slökkvistöð og heilsaði þar brosandi öllum, sem þar voru staddir. Menn fóru að segja brand- ara og ég sagði HaHaHa, haldið þið það sé ekki munur að geta far- ið um bæinn og talað við kunningj- ana i svona veðri, heldur en vera að kúldrast hérna inni i sólarlausri kompu. Komið þið heldur út fyrir og fáið ykkur dálítið frískt loft. Rennið þið nú stigabílnum út og leyfið mér að skreppa upp til að taka nokkrar myndir. Svona getur maður kveðið upp sinn eigin dauðadóm án þess að hafa sjálfur hugmynd um það. HoHoHo sögðu þeir sísona. Held- urðu að þú þorir kannski upp i stig- ann? Þori??? Hvað haldið þið að það sé að labba upp nokkra metra í blíðskaparveðri? Það er sko ekki nokkur einasti vandi. Og áður en ég gat talið upp að ellefu og hálfum, vorum við komnir út á götu og stigabillinn í fullum gangi. Skáld ástarinnar, TAGORE Úrval úr verkum hins indverska skálds, Rabindranath Tagore, sem hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels, er nú komið út í ís- lenzkri þýðingu - endurminn- ingar, ljóð og leikrit. Séra Sveinn Víkingur valdi og þýddi efni bókarinnar og ritar jafnframt aldarminningu skálds- ins. Bókin er 312 blaðsíður í vönduðu bandi, prýdd níu heilsíðumyndum. Verð kr. 193,00 (+ söluskattur). Verk TAGORE eru sígildur skáldskapur, þrunginn djúphygli og göfgi. SKÁLD ÁSTARINNAR er afreksverk í bókmenntum, fært í vandaðan búning íslenzkrar tungu. Skáld ástarinnar er smekkvísleg gjöf og vönduð eign. Á ég að draga hann nokkuð út spurði stigabílsstjórinn og brosti hæðnislega. Ef hann hefði ekki bros- að hæðnislega, hefði ég kannski séð að mér og runnið á .. .á bak- hlutann. en af þvi að hann brosti hæðnislega þá stirðnaði montið í toppstykkinu og ég sagði O, láttu hann vaða alla leið. 20 metra? 20 metra! Eigum við ekki að halda i bar- dúnurnar, spurði annar með hæðn- isbrosi. Nei, ég held nú ekki í svöna blið- skaparveðri. En þú hefur á þér belti, kunn- ingi, sagði sá þriðji hæðnisbros- laust og þar við sat. Ég brosti af fullkomnu öryggi, ...... sveiflaði myndavélinni á bakið — og lagði af stað. (Hér lýkur fyrsta kafla). Þetta er sko einfalt hugsaði ég um leið og ég labbaði upp fyrstu 10 þrepin. Maður hefur svo sem gert þetta áður án þess að verða meint af. Bara hafa 'jafnvægi i Framhald á bls. 50. grgrja aðl |olabak§trmum aðarinn hafi Saftir Avaxtasafi Borðedik Matarlitur Sósulitur

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.