Vikan


Vikan - 30.11.1961, Blaðsíða 42

Vikan - 30.11.1961, Blaðsíða 42
Cummins dieselvélin er afkastámest og hagkvæmust Til hverskonar nota til lands og sjávar er CUMMINS dieselvélin hag- kvæmust. CUMMINS dieselvélin skarar fram úr að mörgu leyti, og hér eru nokkur atriði: CUMMINS PT OLÍUKERFH) er eingöngu notað í CUMMINS diesel- vélar. Innspýting olíu er stjórnað af knastás, og er þetta olíukerfi einf ald- ara og fullkomnara en nokkurt annað. SPARNEYTNI CUMMINS diesel- vélanna er ómótmælt. Hin mikla f jöl- breytni í vélastærðum tryggir rétta vél fyrir sérhverja notkun. Fáanlegar 4 - 6 - 8 og 12 cylindra í stærðunum 60-600 hestöfl. MIKIL ENDING. Sterkbyggðar og vandaðar fjórgengisvélar tryggja mikla endingu og lítið viðhald. ÁBYRGÐ. ALLAR CUMMINS DIESELVÉLAR eru í ábyrgð í eitt ár eða 3.600 klst. notkun, hvort sem fyrr verður. Aflið yður upplýsinga um brautryðj- ann í bygggingu dieselvéla — CUMMINS. laugavegi 178 Sími 38000 allri trú á drauma — tveir bílar í árekstri. Hann varpaOi frá sér þessum heila- brotum, þau voru ekki til neins. Hann brosti til Emilíu. „Gott; þá heimsækjum við þá í kvöld.“ ÖMLIJ fiskimennirnir bjuggu í gamalli sjóbúð á suðurodda eyj- arinnar, sem var orðin hrörleg mjög, rúður brotnar og fjalir negld- ar fyrir í þeirra stað, veggirnir skakk- ir og signir; inni fyrir lágu gömul veiðarfæri og allt minnti helzt á veðlaunahljósmyndir í timaritum. Gömlu mennirnir tóku vel á móti þeim; höfðu bersýnilega miklar mæt- ur á Vern og fullvissuðu Emilíu um að þeir læsu allar hans sögur, og að þær væru stórkostlegar. >eir skenktu þeim vín úr miðalausum flöskum; glerið var grænblátt eins og aldan, þegar hún rís við sandinn. Þeir reyktu pípur, það var kynlega sterkur ilm- ur af tóbakinu, sterkur og rammur og vakti grun um að þeir drýgðu það með þangi. Þau drukku og röbb- uðu saman, Vern sá að Emilía skemmti sér prýðilega. Þegar hann virti hana fyrir sér, varð honum það fyrst ijóst, að hann hafði í rauninni ekki lil'að vökulífi, þessi fimm ár síð- an hann missti konuna, heldur milli svefns og vöku, án þess að finna raun- verulega til, án þess að njóta nokk- urs. Nú fyrst hafði hann fyllilega brugðið blunai og lifið fór um æðar hans sem heitur straumur. Og um leið var það honum einnig ljóst, að hann vissi nú hvar fjársjóð var að finna — mannlegan fjársjóð; allt var undir því einu komið, að hann tryði á tilveru hans. Gimsteinn- inn hafði legið í lófa hans í fjóra daga, nú var það hans, að leggja hann að hjarta sér. Ef hann gerði það ekki, mundi hann komast að raun um það áður en langt um liði, að lófinn væri tómur .. . „Það er orðið áliðið," sagði hann allt i einu. En gömlu mennirnir vildu ekki sleppa þeim, fyrr en drukkin var kveðjuskál og þau höfðu heitið því að heimsækja þá aftur áður en langt um liði. Og þegar þau héldu á brott, stóðu þeir í dyrunum og horfðu á eftir þeim. AU gengu hljóð um fjöruna, unz Vern rauf þögnina. „Hvað mundir þú gera við peningana, ef við fyndum fjársjóðinn," spurði hann. Hún hafði auðheyranlega ráðið það við sig. „Leggja þá í sparisjóðsbók- ina mína," svaraði hún hiklaust. „Þarna sérðu, ég á sparisjóðsbófc og stefni að efnahagslegu sjálfstæði. Svo mundi ég verja einhverju af þeim í næsta sumarleyfi, til þess að leita að öðrum fjársjóðum." Hún hikaði iítið eitt áður en hún bætti við: „Kannski kem ég hingað aftur næsta sumar. Ætli það séu ekki fleiri fjár- sjóðir grafnir hérna ...“ „Áreiðanlega," svaraði hann og honum varð hugsað til gamla manns- ins, sem teiknaði uppdrættina. „En þú verður líka fyrir vonbrigðum, ef við finnum hann ekki,“ sagði hann. „Siður en svo,“ svaraði hún, „þvi að það sannar alls ekki að fjársjóð- inn sé hér ekki að finna, aðeins það, að við höfum ekki haft heppnina með okkur." Þau gengu um myrkan sand- inn og öldurnar tuldruðu og pískruðu. „Barnið glatar ekki trúnni á álfa- borgina i klettinum, þótt hún opnist því ekki," mælti hún eftir nokkra þögn. „Það veit að hún er þar, engu að síður." Hann virti hana fyrir sér. „Og þú ...“ „Sérhver draumur er veruleiki," svaraði hún lágt. Hann tók i hönd henni og þau leiddust þögul um sandinn. Stjörn- urnar tindruðu á myrkum himni, allt umhverfis þau virtist haf og myrkur og það var eins óg þau tvö væru einu mannverurnar í veröldinni. Þau námu staðar þar, sem báturinn henn- ar lá. Himininn yfir borginni hand- an við sundið logaði í skini ljósaaug- lýsinganna. Daginn eftir grófu þau enn í sand- inum við víkina. Þau höfðu verið þögul á leiðinni þangað, nú stóðu þau berfætt í sandinum og horfðu út yfir víkina, þögðu eins og þau vissu einhverja örlagaríka atburði yfirvofandi, en óttuðust að færa þá tal. Loks rauf hann þögnina: „Síðasti dagurinn," sagði hann. Emilía kinkaði kolli, horfði niður í sandinn og dró þar sjóræningja- merkið með tánni. ,,Já,‘' svaraði hún. Og þar sem ekki virtist meira um það að segja, fóru þau að búa sig undir að grafa. „Hvar eigum við að reyna í dag?“ spurði hann. „Ég veit ekki," svaraði hún. „Hvers vegna látum við ekki hendingu ráða og gröfum bara þar, sem við stönd- um ... til dæmis þar, sem þú stend- ur núna?“ Þau grófu en fundu ekkert annað en hettur af ölflöskum. „Nú slculum við reyna þar, sem þú stóðst," varð honum að orði. „Allt i lagi,“ svaraði hún. „Var það ekki hérna einhversstaðar ?“ Hún gróf um hríð, en hann hvíldi sig í sandinum og reykti sigarettu. Ljósir lokkarnir féilu um andlit henni og hún reyndi að hrista þá frá aug- unum, leit svo á hann og brosti: „Ég held ég ætti að ganga stuttklippt," sagði hún. „Hvernig heldurðu að mér færi það?“ „Ég vil að þú sért eins og Þú ert,“ svaraði hann. ANN reis á fætur, tók við skóflu hennar og tók að grafa. Hann fann það nú, að hann unni Emilíu í raun og veru — það var ekki fyrir einveruna, heldur unni hann henni ákaft og af einlægni, hennar sjálfrar vegna. Hvað átti hann til bragðs að taka. Hún var mörgum árum yngri en hann, hún átti allt lífið framundan, en hann drjúgan hluta þess að baki sér. Kannski var hún lika heitbundin einhverjum manni, sem var á aldur við hana. Skóflan skall á einhverju hörðu í sandinum. „Bjórdunkur?" varð Emilíu að orði. En Vern hristi höf- uðið og tók að athuga það nánar, lagðist á hnén og rótaði í sandinum með höndunpm. Þetta var ryðbrunnið pjáturskrín. Hann tók af þvi lokið, Emilía stóð við hlið honum, í skríninu var böggull, vafinn innan í gamlan málmpappír og innan í honum komu í ljós fjögur knippi af þvældum eindollarseðlum. Emilia klappaði saman höndum af hrifningu. „Við höfum fundið fjár- sjóð Nords gamla!" hrópaði hún. „Veri; ... Þarna sérðu; ef maöur trú- ir og treystir ...“ Vern kinkaði kolli og reyndi að hrífast með henni, fann að hann viknaði við. Og hann var hamingju- samur — hennar vegna. „Við skulum telja seðlana," sagði hann. „Komast að raun um hve auð- ug þú ert orðin." „Þú átt við, hve ríkur þú sért orðinn," sagði hún. „Þú fannst hann. Vern hristi höfuðið. „Það varst þú, sem áttir trúna á fjársjóðinn en ekki ég,“ svaraði hann. „Ég tók þátt í leitinni eingöngu til þess ... að taka þátt í henni.“ „Nei, svo einfalt er það ekki. Og hvað sem því iíður, þá leitaði ég ein- göngu til þess að finna. Ég hef ekki neina þörf fyrir féð.“ „Ekki ég heldur ...“ „Það er ekki það, sem sker úr. Þú fannst fjársjóðinn, og ...“ „Vertu nú róleg. Við högum okkur öldungis eins og sögupersónur mínar. Ég sé ekki fram á annað, en við verðum að skipta með okkur pening- unum til sátta. Við höfum unnið sam- an að þessu hvort eð er; nú teljum við peningana, og þú ferð með þinn helming og leggur í bankann." Framhald á bls. 45. 1 _ > 1 h A N

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.