Vikan - 27.09.1962, Síða 12
**/&
Það hefði verið gaman að sjá framan í Carlsen, þegar hann horfði á parið klifra yfir
girðinguna ...
Sumir eru mannvinir aðrir dýravinir, og enn aðrir bara kæruvinir.
Já, mennirnir eru misjafnir, — sagði kerlingin, þegar presturinn villtist upp í bólið hjá
henni.
Annars er ég eiginlega aldrei öruggur á því hvernig maður getur bezt þekkt þessar mis-
munandi manngerðir í sundur. Mér finnst t. d. allt kvenfólk í rauninni vera mannvinir
... dýravinir eru ... ja, það er kannski dálítið verra með þá ... ég og þú, við erum bara
kæruvinir, en dýravinir ... jú, nú man ég það ...
Carl Carlsen.
Hann er dýravinur og í rauninni dýraóvinur líka. Það er allt eftir því hvers konar dýr
það er. Hann sér sig t. d. aldrei úr færi að drepa fiska, refi eða mink. Þess vegna er
hann líka stundum kallaður minkabani, — af því hann er svo drjúgur við að drepa minka.
Og til þess nýtur hann aðstoðar sinna beztu vina, hundanna.
Hann er vinur margra hunda, reglulegur hundavinur. Hann hefur þá alla heima hjá
sér, allt í kring um sig, nótt og dag. Þar eru litlir hundar og stórir hundar, svartir hundar
og hvítir hundar, grimmir hundar og gæfir hundar, grænir hundar og rauðir hundar.
Alls konar himdar.
Venjulega kem ég til Carlsens svona einu sinni á ári í smá-heimsókn. Það er oft ágætt
ef maður er í slæmu skapi og óánægður með allt og alla, hundóánægður eins og sagt er.
Þá er fyrirtak að renna uppeftir til Carlsens og horfa á hundana hans og sjá hvers konar
hundalífi þeir lifa ...
HUNDA
LÍF
Steypibaðið. Ef þú kemur við vírinn, þá færðu allar föturnar yfir þig ...
... og þakkar þínum sæla að það skyldi bara vera vatn í þeim.
Og samt eru þeir ánægðir, greyin. Það er líka vegna þess að þeir eiga allir einn sam-
eiginlegan og tryggan vin, þar sem Carlsen er. Hann ber hag þeirra fyrir brjósti dag og
nótt, aflar þeim fæðu, sér þeim fyrir húsnæði, ver þá fyrir óvinum o. fl.
Vel á minnzt, óvinir.
Verstu óvinir hundanna hans Carlsens eru raunar þeir, sem vilja vera þeirra beztu
vinir, en kunna bara ekki aðferðina við það. Það er ýmislegt fólk, sem kemur þarna upp
eftir, sumir að vísu aðeins til að forvitnast, en aðrir til að kynnast hundunum dálítið
betur, kannski tala við þá smástund og segja: Hvutti karlinn, hvutti karlinn, ojojojojojojo,
hvútti karlinn, — eða eitthvað svoleiðis. En slíkar heimsóknir eru satt að segja ekki vel
þegnar þar uppfrá. Það kemst rót á allan „mannskapinn" og allt ætlar í rauninni af
göflum að ganga af voffum, urrum, hvæsi og slíku.
Þó er það nú sök sér þegar slíkar héimsóknir eru framkvæmdar að degi til. Verra er
það þegar gestir koma á næturnar og vekja upp allt heila gillið án þess að biðjast af-
sökunar einu sinni.
Og sumir .eru jafnvel svo óforskammaðir að þeir klifra yfir girðingar og svoleiðis og
eyðileggja og skemma ...
Carlsen og hundunum hans er illa við slíkar heimsóknir.
Þess vegna hefur hann sett þar upp ýmsar gildrur, sem mig mundi sannarlega ekki langa
til að detta í.
Það er t. d. steypibaðið. A einum stað, þar sem gangvegur er milli tveggja skúra, er
Carlsen er líka með kanínur, en þær notar hann aðallega til að kenna hundunum ýmsar
veiðibrellur. Þær ku líka vera lúxusfæða.
Þar eru litlir hundar og stórir hundar,
grænir hundar og rauðir hundar ...
. .. og lika grimmir hundar!
/ //X
komið fyrir nokkrum vatnsfötum og dunk-
um á nokkurs konar hillu á öðrum skúr-
veggnum. Þegar einhver ókunnugur gengur
þar framhjá — án þess að vera aðvaraður
— kemst hann varla hjá því að ganga á ör-
mjóan þráð, sem er strengdur þvert yfir
gangveginn alveg við jörðu. Og á sömu
stundu fær hann allar vatnsföturnar yfir
sig ...
Annars staðar er gryfja mikil en svo
grunn að enginn gæti farið sér þar að voða.
Gryfjan er full af vatni, og yfir hana byrgt
svo að engan grunar gryfju þar. Það hefur
komið fyrir oftar en einu sinni, að Carlsen
hefur vaknað við skvamp í gryfjunni, og
heyrt andköf, blót og formælingar og síðan
hratt fótatak hverfa í fjarska ...
Eða skothríðin!
Á einum stað, rétt fyrir innan girðingu,
þar sem flestir klifra yfir, hefur Carlsen
komið fyrir nokkrum hvellhettum — sára-
meinlausum. Þær eru þannig útbúnar að
þær springa hver á eftir annarri, með dálitlu
millibili, ef stigið er á vissan stað. Á girð-
ingunni sjálfri eru vinsamleg en alvarleg
aðvörun um að fara ekki yfir, ... slíkar að-
varanir eru raunar víða.
Einu sinni var Carlsen við gluggann hjá
sér, þegar hann sá ungt par koma að girð-
ingunni. Þau stóðu þar dálitla stund, lásu
aðvörunina, en fóru síðan að klifra yfir.
Herrann var ákaflega hjálpsamur við
dömuna og aðstoðaði hana eftir megni að
komast yfir, en síðan vatt hann sér léttilega
yfir girðinguna — og steig á hvellhettuna.
Það kom dálítill hvellur og þau snarstönz-
uðu, litu í allar áttir, en ypptu síðan öxlum
þegar þau sáu engan og hugðust halda
áfram.
Þá sprakk önnur og stærri hvellhetta.
Afleiðingarnar voru ótrúlegar.
Þau kipptust við, gripu hvort í annað
og angistin skein úr andlitunum. Skyndilega
tók herrann mikinn kipp, hrinti dömunni
frá sér og hún datt kylliflöt á jörðina, en
hann stakk sér á hvínandi hausinn yfir girð-
inguna, reis á fætur eins og kólfi væri skot-
Framhald á bls. 42.
VIKAN 13