Vikan - 27.09.1962, Side 26
NYLON STYRKT
NANKIN
BUXURNAR
NYTT AMERÍSKT EFNI
AMERÍSKA SNIÐIÐ
HEKLA • AKUREYRI
IÐNAÐARDEILD SÍS
SÖLUDE9LD
SÍMI 11971,17080
löunnarskormr eru
liprir, vandaðir og
þægllegir. Nylonsólarnir
„DURALITE" hafa
margfalda endingu á
við aöra sóla. Veljið lit
og lag við yðar hæfi
i næstu skóbúð.
II
*
4
Stjörnuspóin giidir frá fimmtudegi til fimintudags.
HrútsmerkiS (21. marz—20. apr.): Þetta verður
hni þægilegasta vika, Þótt ekki gerist í henni
neinar stórviðburðir. Þú munt umgangast fé-
laga þína óvenjumikið, og er það vei, þvi að það
er eins og hætt sé við deilum heima við, sem þú
færð aðeins forðazt með því að vera lítið heima. Um helgina
býðst þér tækifæri, sem þú getur því miður ekki nýtt þér
að neinu gagni.
Nautsmerkið (21. apr.—21. maí): Líkur á mjög
skemmtilegri viku, ekki sízt fyrir kvenþjóðina.
Vinur þinn veldur þér einhverjum áhyggjum og
um leið vonbrigðum allt fram að helgi, en brátt
mun þér verða ljóst, að þetta er allt saman á
leiðinlegum misskilningi byggt. Þú ferð í skemmtilegt sam-
kvæmi í vikunni.
______ Tviburamerkiö (22. maí—21. júní): Þetta verður
fremur viðburðalítil vika, þótt ekki verði hún
samt leiðinleg. Þú verður mikið heima á kvöldin
og sinnir þá yfirleitt hinu sama. Þú munt fá að
glíma við skemtilegt verkefni, líklega rétt eftir
helgina, og munt þú einmitt rétta persónan til þess að ráða
fram úr þessu.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú skalt fara
að öllu með gát í samskiptum þínum við félaga
þína í vikunni, því að það er eins og lítið þurfi
til þess að sláist upp á vinskapinn í vikunni. Þetta
verður skemmtileg vika fyrir þá, sem heimakærir
eru. Mánudagurinn er dálítiö varasamur í öllu sem snertir
hjartans mál.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Það er eins og
þú sért óeðlilega þunglyndur þessa dagana, og
verður vart séð, hvað veldur þessu þunglyndi. Um
helgina verður eitthvað til þess að bæta skapið,
og á einn kunningi þinn ekki hvað sízt þökk skil-
ið fyrir það. Þú ferð í stutt en skemmtilegt ferðalag. Þú
skuldar einhverjum bréf, og skaltu ráða bót á því hið fyrsta.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þetta verður
vika margra óvæntra atvika. Yfirleitt má segja,
að heildarútkoman verði jákvæð, þótt ýmislegt
smávægilegt eigi eftir að angra þig eitthvað, en
Þú ert fyllilega maður til að taka smávægilegu
mótlæti þessa dagana. Þú munt vaxa í áliti hjá kunningjum
þínum.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.): Þú hefur ver-
ið að bíða eftir einhverju, sem átti að gerast í
þessari viku, en líklega verður þú enn að bíða í
svo sem vikutíma. Láttu það ekki eftir þér að
verða óþolinmóður — það flýtir sízt fyrir. Smá-
vægileg mistök einhvers í fjölskyldunni gætu dregið dilk á
eftir sér, og snertir þig hvað mest.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Það er eins og
þér hafi verið í nöp við einhvern í fjölskyldunni
undanfarið, og verður í rauninni ekki séð hvers
vegna, en nú verður eitthvað til þess að viðhorf
þitt til þessarrar persónu breytist mjög til batn-
aðar. Á laugardag gerist atvik, sem lætur litið yfir sér í
fyrstu, en í rauninni skiptir þetta framtið þína miklu.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.): Þú átt von
á því að þér verði komið þægilega á óvart, lík-
lega ekki fyrr en eftir helgi. Vinur þinn gerir
þér ómetaniegan greiða, sem þú færð honum
seint fulllaunaðan. Þessi vinur þinn á það sann-
arlega skilið, að þú sýnir honum alla vináttu þína og nær-
gætni. Fimmtudagur skiptir þig mjög miklu.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): 1 þessari viku
gerist það. mjög óvænt, sem þú áttir i rauninni
ekki von á nærri strax, og verður það til Þess að
vikan verður afar ánægjuleg, sem þú áttir sízt
von á. Þér gefst tækifæri á að kynnast persónu,
sem þig hefur lengi langað til að kynnast — og iáttu nú
ekki óframfærni þína verða til þess að ekki verði úr þeim
kynnum.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þeir, sem
fæddir eru í janúar, eiga von á mjög viðburða-
ríkri viku. Þá er eins og skipti um fyrir þá, sem
fæddir eru í febrúar. Þó verður vikan sízt af öllu
leiðinleg fyrir þá. Þú eignast nýtt áhugamál í
vikunni, og í fyrstu muntu vinna að því af eldmóði, en hætt
er samt við því að þú farir allt of geyst af stað.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þér mun verða
mikið úr verki í þessari viku, og veitir í rauninni
ekki af, því að þú þarft að glíma við mörg verk-
efni, sem krefjast skjótrar úrlausnar. 1 peninga-
málum munt þú hafa lánið með þér, en tefldu
samt ekki á tvær hættur. Vinur þinn veldur þér einhverj-
um vonbrigðum, en liklega þó ekki lengi.
26 VIKAN