Vikan - 27.09.1962, Síða 27
kLe/QBuRlMN
Klúbbblað fyrir börn og unglinga. Ritstjóri: Jón Pálsson.
i
„SKÓLABJALLAN
TIL VOR KALL-
AR - -
Og nú hefur hún einmitt
kallað á yngstu lesendur
V.-klúbbsins inn í skóla-
stofurnar. Nýr spennandi
kafli í lífi þeirra er að hefj-
ast — og þau syngja full-
um hálsi: Það er leikur að
læra, — leikur sá er mér
kær. — Vita meira og
meira, — meira í dag en í
gær.
Sum fara gangandi í
skólann, önnur, sem fjær
búa, fara í strætisvagni, en
hann Benjamin Webb í
London, á farkost, sem
jafnaldrar hans öfunda
hann af, en gleðjast þó inni- ^
lega í samfylgd hans. —
Benjamin, sem er 4rra ára
gamall, fer nefnilega á
hverjum degi í smábarna-
skóla — riðandi á — asna.
Ótrúlegt en satt, því að
Benjamin á heima í þétt-
byggðasta hluta Lundúna-
borgar. ★
Bókarf regn:
HANDBÓK UM ÍSL.
KUÐUNGA.
Fyrir nokkrum árum kom
út lítil bók, sem heitir Skel-
dýrafána fslands I. f henni
eru myndir af öllum skeljum,
sem fundizt hafa við ísland,
ásamt lýsingu á hverri teg-
und. Þetta er góð handbók og
kærkomin söfnurum í þessari
grein. En það er fleira í fjör-
unni en skeljar. Kuðungarnir
hafa jafnan mikið aðdráttar-
afl, einnig meðal yngri kyn-
slóðarinnar. En hvað heitir
þessi eða hinn kuðungurinn?
Þessari spurningu er oft vgnd-
svarað, meðan engin handbók
um kuðunga er til, — en
landslag yrði lítils virði, ef
það héti ekki neitt“. Úr þessu
er nú verið að bæta, hvað kuð-
unean'' viðvíkur.
Skeldvrafána íslnnds II. er
nú í prentun og fjallar um ís-
lenzku kuðungana (Sæsnigia
með skel). Margir unglingar
bíða hennar með óþreyju. - -
þess veena leituðum við frétta
um bókina hjá höfundi henn-
ar, Ingimar Óskarssyni.
Alls eru í bókinni nefndar
148 tegundir kuðunga: 135 for-
tálknar (þ. e. hinir eimnlegu
kuðungar) og 13 baktálknar.
Af hinum fyrrnefndu er hverri
tegund lýst ýtarlega, en hin-
ar eru aðgreindar með ákvörð-
unarlyklum. Mynd fylgir
hverri tegund. Þá er innri
byggingu sæsnigla lýst nokk-
uð ýtarlega og fylgir líffæra-
mynd. í lok hverrar lýsingar
er stærð teg. nefnd, svo og
útbreiðsla hennar hér við land
og á hve miklu dýpi hún hef-
ur veiðzt. Framantil í bókinni
er greiningarlykill ætta og á
sama hátt eru ættkvíslir o'<
tegundir sundurliðaðar inni í
TÓMSTUNDAÞÁTTUR VIKUNNAR 27. SEPTEMBER.
Við höldum áfram með svarsagnir við opnun í einum lit.
Það telst til hreinna undantekninga, að svarhönd styðji lit félaga á færri tromp en þrjú. Eigi
svarhöndin A-K tvíspil í einsögðum lit félaga, hefur hún EKKI leyfi til þess að styðja litinn.
Munið það, að félagi ykkar getur verið að segja á fjórlit og það þýðir, að andstæðingarnir eiga
fleiri tromp en þið.
Tilgangur allra sagna, sem þið gefið, á að vera sá, að gefa makker sem skýrasta mynd af
spilum ykkar. Þess vegna verðið þið, áður en annað er upplýst, að ganga út frá því, að opn-
unarlitur makkers sé fjórlitur.
HÉR FARA Á EFTIR LEIÐBEININGAR VARÐANDI SVÖR, ÞEGAR MAKKER OPNAR Á
EINUM LIT.
a. Svar í nýjum lit á fyrsta sagnstigi gefur opnara upp minnst 6 punkta (háspil-f skipting).
b. Svar á einu grandi við opnun á einum spaða, einu hjarta, einum tígli, gefur upp 6 til 10
háspilapunkta (teljið ekki skiptingarpunkta) og engan sagnfæran lit. Þetta er sögn, sem er
takmörkuð við ákveðinn punktafjölda, og þess vegna má makker passa við henni.
c. Svar á einu grandi við opnun á einu laufu, gefur upp 9—11 punkta (engan sagnfæran fjór-
ht og jafna skiptingu).
d. Einföld hækkun á opnunarsögn makkers, gefur upp 7—10 punkta (háspil + skipting) og full-
nægjandi trompstuðning. Þetta er takmörkuð sögn. Makker má segja pass.
e. Nýr litur hjá svarhönd krefst einnar sagnumferðar hjá opnara (nema svarhöndin hafi áður
sagt pass eða andstæðingarnir sagt í millitíðinni). í hvert skipti, sem svarhöndin segir nýjan
lit, þá verður opnari að sjá til þess að hann fái að segja aftur.
f. stökksagnir hjá svarhönd krefjast úttektar (nema þegar svarhöndin hefur áður sagt pass).
g. Þið verðið að halda sögnínni opinni, ef makker opnar á einum í lit, ef þið eigið 6 punkta eða
meira. Segið pass með minna en 6 punkta.
h. Opnunarsögn á móti opnunarsögn (eða 26 punktar á báðum höndum) gefa til kynna að út-
tekt sé fyrir hendi í grandsögn eða hálit; 29 punkta þarf tij úttektar í láglit — þegar þið hafið
fundið rétta samninginn. ★
bókinni. Aftan við bókina er
ýtarleg nafnaskrá.
Handbókin um íslenzku
kuðungarta verður 170 bls. að
stærð, útgef. Leiftur — og er
um það bil að koma á mark-
aðinn.
Sýnishorn úr bókinni:
Bls. 75, 50 mynd. — Glæsi-
lyngvi. — Kuðungurinn er
fremur traustur, alveg sléttur
og mjög gljáandi, hálfgagnsær
og með rauðleitum blæ. Hyrn-
an löng, pýramídalaga, smá-
mjókkandi, með yddum
hvirfli. Vindingamir 13, flat-
ir. Grunnvindingurinn stór,
sem næst % af allri kuðungs-
lengdinni. Saumurinn afar
fíngerður. Munnurinn ögn
skástæður, tvöfalt lengri en
hann er breiður og með all-
mikið bogadreginni útrönd,
sem er innbeygð um miðjuna.
Möndullinn nærri lóðréttur
neðst. Breidd 1.4 sm, hæð 4.4
sm.
Tvö dauð eintök hafa fund-
izt úti fyrir Látrabjargi, á 260
m dýpi, en kuðungarnir voru
svo ferskir útlits, að öruggt
má telja, að tegundin lifi hér
2. mynd. Líf-
færi fjöru-
doppu úr kven-
dýri. Hér er
hluti úr möttl-
inum fjarlægð-
ur og sum líf-
færin opnuð. a:
endaþarmur,
fk: forhólf
hjartans, hk:
afturhólf hjart-
ans, m: magi,
od: eggjagöng,
ov: eggleg, sk:
munnvatns-
kirtill, sp: vél-
inda. t: tunguslíður, g: gotrauf.
Stækkun 3-föld.
VIKAN 27