Vikan


Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 11

Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 11
á kaðalspotta. Hann greip dauða- haldi um spottann og tókst að halda honum. Þegar hann áttaði sig betur, sá hann að báturinn var sokkinn, og að um metersbútur af siglu- trénu stóð upp úr sjónum, en hann hafði náð taki á kaðli, sem hékk niður úr blökk ofarlega á siglu- trénu. Brimlöðrið gekk yfir hann og siglutréð og honum fannst að þarna gæti hann ekki lengi haldið sér. Eina vonin var að komast þétt að mastrinu og binda sig við það, eins og hann hafði áður gert ráð fyrir. En það kostaði ótrúleg átök að framkvæma þetta í þessu veðri. í kaf. Mastrið vaggaði fram og til baka undan veðrinu, sjávarlöðrið skall á honum eins og vélbyssu- skothríð og reif af honum sjóhatt- inn, — en um spottann hélt hann. Blakkirnar á siglutrénu voru í vatnsskorpunni, og lömdust til og frá, svo að honum var jafnvel meiri hætta búin af því að nálgast siglu- tréð, en að halda sér frá því. En það var einasta vonin — að binda sig við tréð. Hann neytti allra krafta til að draga sig móti ölduganginum, nær trénu og reyndi að forðast rothögg blakkanna um leið. Einhvern veginn tókst þetta, og hann greip utan urn sigluna og vó sig upp eftir henni, þannig að brjóstið komst uppfyrir blakkirnar, því þannig var honum minni hætta búin af þeim. Síðan varð hann að losa aðra höndina og koma spottanum sem hann hafði bundið utan um sig áður, utan um siglutréð, og vafði hann tvo hringi til öryggis, og batt síðan endann við sig. Þegar þessu lauk, var hann orðinn alveg örmagna, enda fór siglutréð í kaf í öldunum og kaffærði hann annað slagið. —Ó— „Ég var búinn að hanga þarna í spottanum í þrjá klukkutíma og var að verða meðvitundarlaus. Á milli ólaganna glytti ég í ljósin í landi og varð hugsað til kunningja minna og vina heima, sem sátu heima hjá sér í hlýjunni og voru kannski að drekka heitan kaffisopa, eða voru komnir í rúmið og farnir að sofa áhyggjulausir. Áhyggjur, segirðu? Líklega hef ég brosað með sjálfum mér, þegar ég fór að hugsa um áhyggjur fólksins í landi. Á þessu augnabliki fannst mér þær vera svo lítilsverðar og hjákátlegar saman- borið við áhyggjur mínar þarna. Þó get ég varla sagt að ég hafi haft miklar áhyggjur af því, sem fram- undan var. Ég var búinn að sætta mig við að deyja, og fannst það hreint ekkert hræðilegt. Ég var búinn að lifa mín 50 ár, og líklega væri koininn tími til þess að kveðja þennan vanþakkláta heim. Sennilega væri þetta líka bezti dauðdaginn fyrir mig. Ég var orðinn hálfdauð- ur og tilfinningarlaus hvort eð var, ekkert annað eftir en missa meðvit- undina. Samt ætlaði ég að þrauka svo lengi sem þraukað yrði, og eitt var ég búinn að ákveða, — að gleypa Það er oft erfitt að vera á litlum alls ekki sjó ef ég kæmist hjá því. vélbáti úti á sjó í 12 vindstigum, Mér hefur verið sagt að ef maður en öllu verra fannst honum þó að gleypti sjó, þá mundi hann hafa vera á bátnum þar sem hann stóð svipuð áhrif og deyfilyf og líðanin fastur á skerinu, og brimöldurnar yrði svo góð að maður hætti að þeyttust yfir hann og hentu honum hugsa um að bjarga sér. Þess vegna til og frá á klettunum, svo brakaði ætlaði ég alls ekki að gleypa sjó, og og brast í hverri spýtu. Þá hvein lokaði munninum vel í hvert sinn ofsarokið yfir höfði hans, og hávað- er alda reið yfir mig. inn og gauragangurinn var svo mik- Mér var orðið helkalt, fann ekki ill að hann hefði ekki heyrt sjálfan fyrir fótunum, sjóhatturinn hafði sig hrópa. En útyfir tók þó, þegar rifnað strax af mér, svo ég var hann sjálfur var kominn í sjóinn hlífðarlaus á höfðinu. í þessu veðri — og niðamyrkri — Ef hjálpin bærist ekki innan fárra og einn stuttur kaðalspotti batt hann mínútna, mundi hún koma of seint, við lífið. Öldurnar brotnuðu á sker- og ekki hafði ég ennþá orðið var inu og steyptust yfir hann og færðu Framhald á bls. 41. VIKAN 11 stakkinn, en hinn endann gerði hann upp. Hann fann nú að báturinn var að renna niður af skerinu og mundi sökkva fyrir utan það eftir augna- blik, og fór nú að klifra upp eftir siglutrénu eins hratt og hann gat. Hann var rétt lagður af stað upp eftir siglunni, þegar hann fann að báturinn rann fram af skerinu og sökk. Um leið reið ólag yfir bátinn og reif Þórð frá siglutrénu. Einhvern veginn hefur hann í örvæntingu gripið höndunum eftir handfestu um leið og siglutréð hvarf frá honum niður í djúpið, því allt í einu fann hann að hann náði taki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.