Vikan


Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 35

Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 35
Loks varð mér ljóst að ég varð að fara að leita að Símoni, tengdasyni mínum. Og mér var gefinn styrk- ur til að ganga niður að Galileuvatni — — — — TENGDAMÓÐIRIN Eftir Valerie Tomlinson Loks varð mér ljóst, að ég varð að fara og léita að Simoni, tengdasyni mínum. Og mér var gefinn styrkur til að ganga nið- ur að Galileuvatrii. 1 fyrstu tók ég Andrés fram yfir Simon. Ég vissi reyndar, að það var Simon, sem var mik- ilhæfari og stjórnaði fram- kvæmdum þeirra, en Andrés þeirra rólegri og sanngjamari. Auðvitað fór það svo, að það var Simon, sem Ester giftist, og hvort sem mér líkaði það betur eða verr, varð ég að taka því, að Simon yrði tengdasonur minn. Hrottalegur, óheflaður og bráður hafði hann mótazt af at- vinnu sinni. Hann gat verið harð- ur sem þurrkað timbur, en hann gat líka verið viðkvæmur éins og ungt tré. Hann var likam- lega sterkur og þoldi enga ögr- un. Ég hafði séð hann brjóta handlegg manns eins og þurran kvist og gráta síðan yfir því á eftir. Sjálfur var hann fær um að þola miklar kvalir, en hann þoldi ekki að sjá aðra þjást. Sem fiskimaður var hann ó- viðjafnanlegur og þar sem Róm- verjar voru aðalviðskáptamenn hans, gætti hann þess, að halda sér innan þeirra lagaboða, en lög sinnar eigin þjóðar, lög sinn- ar ættartrúar virti hann að vett- ugi, hvenær sem hagsmunir hans sjálfs kröfðust þess. Hnarreistur og angandi af fiskiiykt kom hann heim og heimtaði mat og drakk í botn af vínkrúsinni. „Veiddirðu vel í dag, Simon?“ kom fyrir að Ester spurði hann. „Gæti verið betra og gæti líka verið verra. Ég reif eitt af þessum bölvuðu netum, og verð því að gera við það á morgun.“ „En Simon,“ gat verið að ég segði, „á morgun er helgidagur.“ „Helgidagur eða ekki helgi- dagur, við netið verður að gera.“ Svo átti hann til að horfa slóttuglega á mig, skella á lær- ið og öskra af hlátri. „Að reyna að bjarga sál minni, ha? Hún er þegar for- dæmd, éins og ég hef oft sagt þér.“ „Það er enginn vafi á því,“ var ég vön að segja hranalega, því að ég vissi, að hann hafði hvort sem er engar áhyggjur af því. Þegar Ester, ástkær dóttir mín dó, var Simon ekki lengur sami glaðlyndi, hláturmildi mað- urinn og áður. önuglyndur og skuggalegur rak hann sjálfan sig og menn sína áfram, en við mig var hann alltaf blíðlegur. Sorgin hafði fært okkur nær hvort öðru og bundið okkur sterkari böndum. Hann vildi ekki heyra á það minnzt að ég færi. „Hver mundi þá,“ hrópaði hann, „elda fyrir mig? Eða halda húsinu hréinu og annast gesti mína?“ Skegg hans hríst- ist upp og niður af vandlætingu, og ég varð kyrr. En um þær mundir hafði enn einn spámaðurinn risið upp og eftir öllum fregnum að dæma hafði hann þegar eyðilagt jafn- vel fleiri líf en fyrirrennarar hans. öldiungamir höfðu á hon- um illan bifur, en Rómverjamir skiptu sér ekkert af honum, að minnsta kosti um stundarsakir. Ég verð að segja það, að ég hafði engan áhuga á umferðaprédik- urum og orðrómurinn sagði, að þessi væri sérvitringur. Hann hafði ekki haft nein áhrif á okk- ar líf, fyrr en Simon kom dag nokkum heim, sótrauður af reiði. Hann kastaði sér niður í sæt- ið og ýtti um leið vínkrúsinni niður af borðinu svo hún möl- brotnaði á gólfinu. Hann skipti sér ekkert af óhreinindunum og starði illilega á brotin, meðan hann sló fingrunum óþolinmóð- lega í borðið. Ég setti í flýti matinn fyrir framan hann. „Komdu að borða,“ sagði ég, Hann ýtti matnum frá sér, einblíndi á mig og hrópaði: „Þetta er svívirðing! Þetta eru galdrar!" Hann sló hnefanum í lófa sér, svo ég hrökk við við skellinn. En ég hafði vit á því að koma ekki með neina athugasemd og beið. „Það er prédikarinn,“ sagði hann beiskfega, „hann veldur óróa meðal skipshafna minna — þessi trésmiður frá Nasaret.“ „Ö, já,“ svaraði ég róandi. „Nasaretmaðurinn. Hann veld- ur mörgum áhyggjum, þar á meðal prestunum." „Fjandinn hirði prestana," sagði Simon hranalega. Ég opnaði munninn til að andmæla, en áður en ég kom upp orði, bandaði hann mér frá sér. „Vertu róleg, engan fyrirlest- ur núna, ef þú vilt gjöra svo vel. Þetta er alvarlegt mál.“ Ég reyndi að bæla niður hneykslim mína. Fjandinn hirði prestana! Fyrr mátti nú vera. Ég er næstum viss um að sád Simonar mundi lenda í eldum Vítis. „Hvað,“ spurði ég kuldalega, „koma galdrar þessum trésmið við?“ „Hann gerir kraftaverk, er mér sagt.“ „Ég hef heyrt það, en trúi því ekki. Ég trúi ekki falsspá- mönnum ...“ „Ó, þegiðu. Hættu að þylja úr Ritningunni." En svo sneri hann sér að mér og sagði iðr- andi: „Fyrirgefðu, Rebekka. Langar þig til að heyra um þetta?“ „Ég hlusta." „Það var Jakob sem sagði mér þessa sögu. Hann var við brúðkaup í Kana. Það var frek- ar fátækt fólk, sem hélt veizl- una — átti ekkert vín. Þá skip- aði þessi prédikari þjómmum Framhald á bls. 61. VIKAN 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.