Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 58
G I N S E O úrin eru stíl-
hréin og fögur, nýtisku
úr.
Kaupið úrin hjá
úrsmið.
GINSBO
Franch Michelsen
úrsmíðameistari
Laugavegi 39 — Reykjavík
Kaupvangsstræti 3, Akureyri
GINSBD
stóra ferhyrnda köku. Á hana er
smurt ávaxtafyllingu, það má t. d.
hafa saman 200 gr af söxuðum grá-
fíkjum og 10 gr saxaðar valhnetúr,
eða blöndu úr sykruðum appelsínu-
berki, döðlum, súkkati og fleiru.
Marsipankökunni er síðan rúllað
saman eins og rúllutertu og þakin
með hjúpsúkkulaði og látin standa
a. m. k. sólarhring, áður en hún
cr skorin í sneiðar og borin fram.
V ALHNETUMARSIP AN:
Hnoðið söxuðum valhnetum sam-
an við marsipanið og búið til kúl-
ur, sem dýft er í hjúpsúkkulaði og
látnar þorna á smjörpappír. Líka
má leggja saman tvo valhnetuhelm-
inga með marsipani á malli. Þá er
neðri valhnetunni dýft í hjúp-
súkkulaði, en sú efri látin vera ber.
SHERRYMARSIP AN:
1 matsk. sherry er bætt í V* kg
af marsipani og búnar til litlar
kökur. Hálft kirsuber er sett á
hverja köku, eða aðrir ávextir.
FYLLTAR DÖÐLUR:
Steinarnir eru teknir úr döðlun-
um og þser eru fylltar með
marsipani. Síðan er þeim dýft í
hjúpsúkkulaði eða eggjahvítu og
flór- eða skrautsykur og látnar
þorna á smjörpappír.
KARAMELLUR:
1 bolli sykur, 1 bolli Ijóst sýróp,
1 bolli þykkur rjómi, Ví tesk. salt,
2 matsk. smjör, 6 matsk. niðursoðin
mjólk, 2 tesk. vanilludropar.
Sykur, sýróp, rjómi og salt látið
sjóða þar til lin kúla myndast í
köldu vatni, hrært í öðru hverju.
Smjöri og niðursoðinni mjólk bætt
í og haldið áfram að sjóða það, þar
til hörð kúla myndast í köldu vatni.
Tekið af eldinum og vanilludrop-
unum bætt í. Hellt í smurt form og
skorið í stykki þegar það er harðn-
að. Það má þekja þær með súkku-
laði, eins má bæta súkkulaði í um
leið og smjörinu, eða láta 1 tesk.
af duftkaffi í stað vanilludr. og gera
úr því mokkakaramellur. Hnetur
eru líka oft settar saman við áður
en deiginu er hellt í formið.
KÓKOSSTENGUR:
75 gr flórsykur, 1 matsk. kakó,
40 gr kókósmjöl, 50 gr smjör.
Þessu er öllu hnoðað vel saman
og velt upp úr kakói eða kókós-
mjöli.
KORNFLAKESKÚLUR:
125 gr jurtafeiti, 50 gr flórsykur,
50 gr kakó, 200 gr cornflakes, 2
matsk. kókósmjöl.
Feitin er hituð við lágan hita,
síðan er sykrinum fyrst bætt í, svo
kakóinu og kókósmjölinu og síðast
cornflakes. Sett með tesk. á smjör-
pappír og kókósmjöli stráð yfir.
Helzt borið fram í pappírsformum,
ætluðum undir konfekt.
SMJÖRBITAR:
Smjör (má blanda með smjörlíki)
1 bolli, sykur 1 bolli, vatn 2 matsk.,
ljóst sýróp 1 matsk., smásaxaðar
hnetur % bolli, hjúpsúkkulaði V-i
bolli.
Bræðið smjörið yfir lágum hita
og bætið sykrinum í og hrærið þar
til það hefur samlagazt vel og takið
það af eldinum á meðan. Setjið það
aftur yfir lágan hita og hrærið hratt
í því þar til það hverasýður. Bætið
þá vatni og sýrópi í og látið það
standa yfir lágum hita í 15—20
mín. og hrærið oft í. Hellið hnet-
unum í og látið deigið á smurða
plötu þar sem það á að kólna. Losið
það öðru hverju frá plötunni, meðan
það er að kólna, með flötum hníf.
Bræðið nú helminginn af súkkulað-
inu og smyrjið deigið að ofan með
því og þegar það er orðið þurrt,
hvolfið þið því og smyrjið hina
hliðina. Skorið í ferhyrnd stykki
o? geymt á köldum stað í lokuðu
íláti.
Smákckur.
Framhald af bls. 21.
KÖKUR ÚR SÚRUM RJÓMA:
2 bollar hveiti, 1 tesk. lyftiduft,
Ví tesk. sódaduft, Vi tesk. salt,
Vi tesk. múskat, Vi tesk. kanill,
Vi bolli smjörl., 1 bolli sykur, 1 egg.
Vi tesk. sítróndr., Vi bolli súr rjómi.
Hrærið smjör og sykur saman,
bætið eggi og kryddi í og síðan
þurru efnunum með súra rjóman-
um. Hrærið vel. Látið með teskeið
á vel smurða plötu og bakað í með-
alheitum ofni í 15—20 mín.
Grunndeig fyrir alls konar
útflattar kökur:
3Vi bolli hveiti, 1 tesk. lyftiduft,
Vi tesk. salt, 1 bolli smjörlíki, lVi
bolli sykur, 2 egg, lVi tesk. van-
illudropar.
Hrærið smjörlíkið með sykrinum
og bætið eggjum og vanilludropum
í. Blandið síðan þurru efnunum vel
saman við og kælið deigið mjög
vel. Síðan er það flatt út eins þunnt
og hægt er og skorið út eftir því
hvernig kökur maður ætlar að
búa til.
VANILLUKÖKUR:
Upphaflega deigið notað óbreytt,
sykri og söxuðum hnetum stráð yf-
ir, eða kókósmjöli.
PÚÐURSYKURSKÖKUR:
Púðursykur notaður í stað hvíta
sykursins.
SAIGON SÚKKULAÐIKÖKUR:
Bætið 1 tesk. af kanil í og Vi bolla
af bræddu og kældu suðusúkkulaði
í deigið, en notið þá aðeins 1 tesk.
af vanilludropunum.
RÚSÍNU-, HNETU- EÐA
DÖÐLUKÖKUR:
Ef gera á hnetukökur, er 1 bolla
af söxuðum hnetum bætt í, 1 bolla
af rúsínum í rúsínukökur og %
bolla af döðlum í döðlukökur.
KÓKÓSMJÖLSKÖKUR:
Notið ekki vanilludropa, en bætið
2 tesk. af appelsínusafa (beint úr
58 VIKAN