Vikan - 06.12.1962, Page 21
n\\\,7,v
JOLABAKSTUR
Smákökur
GÓÐAR OG GAMALDAGS GYÐINGAKÖKUR
625 gr hveiti, 375 gr smjörlíki, 250 gr sykur, 2 egg, 2 tesk. hjartarsalt.
Hveiti, smjörlíki, sykur, egg og hjartarsalt er hnoðað vel saman og flatt þunnt
út. Kökur eru stungnar út með glasi, smurðar með eggi og sykri stráð yfir. Sumir
nota kanil í sykurinn. Möndlurnar afhýddar í heitu vatni og skornar frekar gróft
og raðað ofan á kökurnar. Bakaðar Ijósbrúnar í ekki of heitum ofni. Ef ekki eru
notaðar möndlur má þekja þær með súkkulaðiglassúr þegar þær eru kaldar og
þurrka þær aftur inn í ofni, líka má setja makkarónudeig í miðjuna á hverri köku
áður en þær eru bakaðar.
Makkarónudeig: 125 gr möndlur, 375 gr flórsykur, 3 eggjahvítur, 1 tesk. lyftiduft.
AUSTURLENZKAR
SMÁKÖKUR
1 bolli smjörl., 2 matsk. Neseafé
eða annað duftkaffi, V2 tesk. salt,
V2 tesk. möndludropar, 1 tesk. van-
illudropar, 1 bolli sykur, 2 bollar
sigtað hveiti, 94 bollar suðusúkku-
laði (skorið í smástykki), V2 bolli
möndlur (grófsaxaðar).
Hitið ofninn vel áður en kökurn-
ar eru settar inn. Blandið saman 5
fyrstu efnunum hér að ofan og
blandið svo sykrinum smám saman
í, síðan hveitinu. Síðast eru súkku-
laðimolarnir settir saman við og
deigið sett á ósmurða plötu, eða í
lágt og breitt form. Möndlunum
stráð yfir og þrýst niður í. Bakað
við góðan hita í 20—22 mín. Þegar
kakan er köld, er hún brotin ó-
reglulega í stykki.
MYNDAKÖKUR
Vs bolli hálfbráðið smjörlíki,
Vs bolli púðursykur (þjappað í boll-
ann), 1 egg, % bollar dökkt sýróp.
Blandið þessu vel saman. Bætið síð-
an þurru efnunum í, sem hafa verið
sigtuð vel saman: 294 bollar hveiti,
1 tesk. sódáduft, 1 tesk. salt, 2 tesk.
kanill, 1 tesk. engifer.
Kælið deigið og fletjið það síð-
an frekar þykkt út, u. þ. b. fingur-
þykkt. Skerið það í þær myndir,
sem óskað er eftir og setjið með
nokkru millibili á smurða plötu.
Bakað þar til ekki verður far eftir
fingur, ef stutt er lauslega á það.
Skreytið kökurnar þegar þær eru
kaldar. Hægt er að gera þetta að
ljósu deigi með því að nota hun-
ang í stað dökka sýrópsins og hvítan
sykur fyrir púðursykur. Vanillu-
dropa má einnig nota í stað kanils
og engifers. Kökurnar eru bakaðar
í 8—10 mín. venjul. og úr þessu
deigi verða u. þ. b. 5 dúsín kökur.
Flórsykur er notaður við skreyt-
inguna, hrærður út með hæfilegu
vatni (venjul. tesk. í bollann). Ef
þekja á kökurnar með sykurleðju,
á að nota meira vatn, en annars eru
notaðar rjómasprautur við skreyt-
inguna, eða pappírskramarhús með
litlu opi í endann. Matarlit má nota
í sykurinn og alls konar ávexti og
skrautsykur, eftir því hvað á að
búa til.
KÚRENNUKÖKUR
175 gr hveiti, 250 gr smjörl., 100
gr sykur, egg, sykur og kúrennur
ofan á.
Hveiti, smjörlíki og sykur hnoðað
vel saman og flatt út, ílangar kökur
skornar með kleinujárni og pensl-
aðar með eggi, sykri stráð yfir og
kúrennum stráð yfir. Betra er að
bleyta kúrennurnar nokkra stund
áður en þær eru notaðar.
DÖÐLU OG
HNETUKÖKUR
IV2 bolli hveiti, Vt tesk. sódaduft,
14 tesk. lyftiduft, 14 tesk. salt, 1
tesk. kanill, V2 tesk. negull, 14 tesk.
allrahanda, % bolli smjörl., 1 bolli
púðursykur, 2 egg, 2 bollar hnetur,
2 bollar steinlausar rúsínur, 2 boll-
ar döðlur, 2 matsk. sherry eða
koníak.
Hrærið smjörlíkið með sykrinum
þar til að er hvítt, bætið eggjunum,
lauslega hrærðum, smám saman í.
Hneturnar, döðlurnar og rúsínurnar
saxað og látið í næst, en síðast er
þurru efnunum bætt í ásamt víninu.
Deigið er kælt og síðan látið með
tesk. á smurða plötu með nokkru
millibili. Bakað í meðalheitum ofni
í 12—15 mín. Þetta gerir u. þ. b.
4 eða 5 dúsín af kökum.
SANDSMÁKÖICUR
1 bolli smjör, V2 bolli sykur, 2
bollar hveiti, V± tesk. lyftiduft,
V2 tesk. romm.
f þéssa uppskrift þarf helzt að
nota smjör, ef kökurnar eiga að
verða ljúffengar. Það er brætt og
látið aðéins brúnast. Hrært í því,
þar til það er kalt. Bætið hinum
efnunum í og hrærið vel. Deigið
þarf að vera vel kalt áður en það
er flatt út í og á þykktin að vera
u. þ. b. V2 cm. Skorið út í mjög
smáar kökur og bakað í heitum
ofni í ca. 10 mín.
MORAVIAN
JÓLAKÖKUR
Notið flórsykur í stað venjulegs
sykurs, og 4 eggjarauður í stað 2
heilla eggja. Bætið 2 matsk. af
þykkum rjóma í deigið. Fletjið það
út ca. Vj cm þykkt og búið til
stjörnur með þar til gerðu formi.
Þekið kökurnar með glassúr og
skreytið með skrautsykri, möndlum
og ávöxtum, meðan glassúrinn er
óharnaður.
JÓLAKRINGLUR
Bætið 94 bolla við sykurinn
(1% bolli) og aukið lyftiduftið um
2 teskeiðar (3 tesk.). Bætið Vs bolla
af koníaki, V2 bolla af smásöxuðum
hnetum og 2 matsk. af kúmeni í
deigið. Flatt mjög þunnt út, skorið
í allavega kökur og bakað í meðal-
heitum ofni í 5—8 mín.
RÚLLUKÖKUR
Skiptið deiginu í tvo hluta, bætið
V2 bolla af bræddu og kældu suðu-
súkkulaði í annan helminginn.
Fletjið út þunnar stórar kökur og
leggið lögin hvort ofan á annað og
rúllið upp eins og rúllutertu. Kælið
deigið og skerið í sneiðar og bakið
í 6—10 mín.
Framhald á bls. 58.
VIKAN 21