Vikan - 06.12.1962, Síða 26
; •
mm.
, X
í október í haust efndi Ferðafélagið Útsýn til fyrstu hópferðar
ísléndinga til Arabalandanna cg á söguslóðir Nýja Testament-
isins. Hér var um mjög merkilega ferð að ræða, bæði hvað
snerti undirbúning, skipulag og leiðsögu Útsýnar og eins hitt,
að komið var að öllum helztu uppsprettulindum vestrænnar
menningar. Þessi ferð er af fjölmörgum ástæðum ógleymanleg
öllum þeim sem þátt tóku í henni, en það voru 50 manns. Líka
ber að undirstrika, að hér hefur merkilegt brautryðjendastarf
verið unnið í íslenzkum ferðamálum og á Útsýn þakkir skilið
fyrir það. Ég tók þátt í ferðinni í því skyni að skrifa um hana
og mun nú og í næstu blöðum Vikunnar leitast við að bregða
upp myndum af þeirri nýstárlegu veröld, sem séð verður með
gests augum, umhverfi, sögu og mannlífi.
Gísli Sigurðsson, ritstj.
Eftir viðburðaríkan dag á leiðinni frá
Damaskus í Sýrlandi bar turna Jerúsalem-
borgar við himin vestur á fjallinu. Það var eins
og helgimynd. Jerúsalem er einmitt fegurst,
þar sem hana ber við himin. Ekki sízt um sólar-
lagsbil og nú var sólin einmitt að hníga bak við
sólsviðin fjöll Júdeu. Og þarna vorum við,
fimmtíu manna hópur norðan af íslandi. Oll
í hátíðastemningu. Væntum okkur mikils, eða
er það ekki leyfilegt í nánd við hina helgu
borg. Margur hefur séð þessa turna bera við
himin eftir langa hrakninga. Eftir mannraunir,
jafnvel blóðsúthellingar. Við vorum að vísu
aðeins búin að vera hálfan mánuð á leiðinni
26 VIKAN