Vikan - 06.12.1962, Qupperneq 31
Allt er gert til að halda jólin sem hátíðlegust,
ekki sízt í öllu, sem mat viðvíkur. Skreyting
borðsins, og það, hvernig maturinn er borinn
fram, hefur ekki minni þýðingu en maturinn
sjálfur. Vikan fór á tvo góða matsölustaði í
Reykjavík og leit á jólaborð hjá þeim. Vonum
við að það verði lesendum blaðsins til augna-
yndis og að einhverju leyti til fyrirmyndar.
Yfirmatsveinninn í Hótel Sögu, Halldór Vilhjálmsson, var
svo vingjarnlegur að gefa lesendum Vikunnar uppskrift sína
á þessum girnilega mat, sem á borðinu er, og geta blaðamenn-
irnir með góðri samvizku gengið í ábyrgð fyrir gæðin, því að
allur beini á veitingahúsinu er með sérstökum ágætum.
LONDON LAMB: Kjötið er soðið í 15—20 mín., þá er himn-
an tekin utan af því og sykri stráð yfir og kjötið síðan brúnað
í ofni við góðan yfirhita í 5—10 mín., eða þar til það er fallega
brúnt. —■ Sósan: 250 gr sveppir, H 1 rjómi, 1 matsk. paprika,
1 matsk. vitamon, eða annar sterkur kjötkraftur (t. d. 2 súpu-
teningar). — Sveppirnir eru slcornir í þunnar sneiðar og látnir
út í rjómann ásamt papriku og vitamoni, og allt látið sjóða
við hægan hita um 10 mín. Sósan jöfnuð með smjörbollu og
krydduð með salti og pipar. Fyrir 4. Með þessum rétti var
borið: Franskar kartöflur, snittubaunir, mjög smáskornar gul-
rætur, smáar baunir, sveppir og spergill. Sjálf var steikin
skreytt með ananassneiðum og kirsuberjum.
CANARD ORANGE eða Appelsínuönd: í veitingahúsinu
er hún steikt á teinum og í heimahúsum er það hægt, þar sem
grillofn er til, en sé hún steikt í ofni á hún að standa á rist
í ofnskúffu og þarf að ausa soðinu oft yfir hana. Hún er steikt
eingöngu í sinni eigin feiti og tekur það 1—1V2 klukkutíma,
eftir því hve öndin er stór eða gömul. Sósan með fuglinum
er ákaflega íburðarmikil í Hótel Sögu og lengi verið að búa
hana til, en það er hægt að gera það á auðveldari hátt í
heimahúsum, sagði yfirmatsveinninn og gaf okkur báðar aðferðirnar. í veitinga-
húsinu sjóða þeir saman fuglabein og kálfsbein í a. m. k. 6 klukkutíma, þar til
soðið er þykkt, en það soð, sem til fellur af öndinni er síðan notað til að bragð-
bæta sósuna. Sé hún steikt í ofni, má nota soðið af fuglinum, en þá þarf að
veiða feitina vel ofan af, en hana má svo nota til þess að baka sósuna upp úr
og gefur það meira bragð, en ef önnur feiti væri notuð. En hvor aðferðin, sem
notuð er, er þessu síðan bætt í sósuna: Pressaður safi úr 2 appelsínum og V2
sítrónu og rifinn börkur af einni appelsínu og svo kryddað með salti og pipar.
Franskar kartöflur, spergill og fleira grænmeti er haft með öndinni, en ofan
á hana voru lagðar ananassneiðar og skreytt með útskornum appelsínum og
eplum, fylltum með kirsiberjum og gelé.
VIKAN 31