Vikan - 06.12.1962, Qupperneq 40
Jólafötin
1962
KIRKJUSTRÆTI
©
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©HrútsmerkiS (21. marz—21. apr.): Kona, sem
þú þekkir lítilsháttar, kemur talsvert við sögu
þína í þessari viku. Líklegt er, að þú kunnir ekki
í fyrstu að meta það, sem hún gerir fyrir þig,
en brátt mun renna upp fyrir þér ljós. Þér gefst
óvenjugóður timi til að sinna áhugamálum þinum í vik-
unni. Heillatala 7.
NautsmerkiS (22. apr.—21 maí): Þetta verður
©fremur tilbreytingarlitil vika, einkum ef Þú reyn-
ir ekki neitt tii að koma lífi í tuskurnar. Ef þér
leiöist heima, skaltu urnfram allt reyna að kom-
ast að heiman og skapa Þér einhverja tilbreyt-
ingu. Þú virðist ekki taka nóg tillit til eins í fjölskyldunni.
Heillalitur rautt.
Tvíburamerkið (22. mai—21. júni); Þú munt lifa
mjög skemmtilega daga, einkum þó um og eftir
helgina. Mánudagurinn verður þó sá dagur, sem
þú munt lengst minnast, enda skiptir hann þig
og þinn nánasta miklu. Amor verður mikið á
ferðinni, einkum meðal fólks milli þrítugs og fertugs.
Þér verður á leiðinleg skyssa um helgina.
KrábbamerkiÖ (22. júní—23. júlí); Þú verður fyr-
ir miklum freistingum í vikunni, og því miður
bendir allt til þess, að þú verðir ekki maður til
að standast Þær allar, en láttu yfirsjón þína þá
verða þér víti til varnaoðar. Mánudagurinn er
dálítið varasamur fyrir þig, einkum ef peningar eru annars
vegar.
LjónsmerkiO 24. júlí—24. ág.): Það verður ekki
ráðið úr stjörnunum, hvort þessi vika er þér í
vil eða ekki. Ýmislegt bendir þó til þess, að helg-
in verði undanförnum helgum í öllu mjög frá-
brugðin. Þú skait fara að öllu með gát um helg-
ina og umfram allt ekki láta stjórnast af skoðunum manna,
sem þú þekkir lítið til.
MeyjarmerkiÖ: (24. ág.—23. sept.): Þú munt fá
erfitt en skemmtilegt verkefni til að glíma við
í vikunni, en líklega ætlar þú þér allt of lítinn
tíma til að ljúka því, og getur því farið svo, að
þér leysist verkið illa úr hendi, ef þú kallar þér
ekki einhvern til aðstoðar. Þú virðist einstaklega sérhlif-
inn þessa dagana. •
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú munt tefla
á tvær hættur í vikunni í sambandi við mál,
sem hefur verið þér mjög kærkomið undanfarnar
vikur, og ef að líkum lætur, farnast þér vel, en
vissulega er það allt annáð en þér að þakka,
mundu það. Persóna, sem vill þér vel, hverfur af sjónar-
sviðinu um stundarsakir.
DrekamerkiÖ 24. okt— 22. nóv.): Þetta verður
hin ánægjulegasta vika í alla staði, einkum þó
fyrir unga fólkið. Miðvikudagurinn verður lík-
lega sá dagur, sem minnisstæðastur verður kon-
um. Talan 4 virðist skipta afar miklu í Vikunni.
Á vinnustað gerist eitthvað, sem gæti orðið til að koma
af stað illindum.
BogmannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Þú munt
þurfa að sinna ýmsu í vikunni, sem þú hefur látið
Wfi'Á S sitja á hakanum undanfarið, og er vissulega ekki
" seinna vænna. Þér gefst tækifæri til að launa
vini þínum greiðann, sem hann gerði þér fyrir
skemmstu, og skaltu ekki láta það happ úr hendi sleppa,
Heillatala 11.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þessi vika verð-
ur í alla staði hin óvenjulegasta, og væri þér bezt
mtlfj að skipuleggja hana á engan hátt fyrirfram, því
að allt virðist ætla að fara öðruvísi en áætlað
verður. Eitt kvöldið kemur undarlegur gestur í
heimsókn — hann er ekki allur þar sem hann er séður.
Heillalitur rauðleitt.
V atnusberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þu
munt verða áþreifanlega var við það, að persóna
nokkur vill kynnast þér nánar. 1 fyrstu kann að
vísu að vera svo, að Þú kærir þig ekki um slíkan
kunningsskap, en sannaðu til: úr þessu gæti orð-
ið hin bezta vinátta. Helgin verður fremur leiðinleg, einkum
fyrir karlmenn. Heillatala 5.
©Fiskamerkiö (20. febr.—20. marz): Þetta verður
fremur tíðindalítil vika. Þú munt sitja mikið
heima og una þér vel. Þú munt hitta kunningja
Þína óvenjulítið í vikunni, en allt bendir til þess
að þú hafir ekki nema gott af einverunni. Þriðju-
dagurinn er mikill hamingjudagur. Heillatala 7.
©