Vikan


Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 53

Vikan - 06.12.1962, Blaðsíða 53
varð við komið; hikaði og ekki við að framkvæma það, er hún vissi ■ líf mannsins í veði. Afklæddist hún í skyndi og snakaði sér í bólið hjá Jóni Sigfússyni og lagðist fast að honum og vafði hann örmum svo rekkjuföt kyrrðust. En þegar svo hafði dregið úr skjálfta hans að stundu liðinni að ekki þótti spón- skaftsins lengur við þurfa, bauð heimasæta að sæng og brekán skyldi dregið yfir höfuð þeim, að betur nýttist varmi hennar og var svo gert, og tveggja marka spilkomma með því franska messuvíni sett á hillu við höfðagaflinn. Og þar sem ekki þótti nú örvænt um líf gests- ins lengur, gengu og aðrir til náða, nema húsmóðirin, sem vakti frammi í eldhúsi og þurrkaði vosklæði hans á hlóðarsteini ...“ Gamli presturinn brosti og blá- grá augun ljómuðu af góðlátlegri kímni undir hélusköflum harðra brúna. „Það er haft fyrir satt, að ekki hafi verið lögg eftir í spil- kommunni um morguninn, og hvort sem það nú hefur verið messuvín- inu franska að þakka eða armlögum heimasætunnar, ellegar suðrænum varma hvor tveggja, þá er víst um það, að enginn þóttist sjá lungna- bólgu eða önnur hrakningamerki á Jóni bónda Sigfússyni, þegar hann steig af baki þeim höttótta heima á hlaðinu í Skörðum um nón daginn eftir. Þvert á móti höfðu hjúin aldrei séð hann léttari í bragði og mannborlegri. Það er haft eftir ítölskum ábóta, að messuvínið mundi þarflaust með öllu, ef ekki fyrirfyndust neinar konur. Þarna sýnist kenningu hans snúið við, þar eð messuvínið hefði ekki komið að neinum notum, nema fyrir nálægð konunnar; meira að segja sterkar líkur fyrir því, að hún hafi gert það óþarft með öllu. Að minnsta kosti mun fólk hérna í sveitinni hafa verið eindregið þeirrar skoð- unar, því að aldrei heyrði ég neinn efast um að það hefði verið heima- sætan ein, sem barg lífi hans“. En nú var sem hinum aldna klerki þætti nóg um sitt eigið léttúðar- hjal. Hann gerðist alvarlegur aft- ur og því til áréttingar dró hann silfurdósirnar upp úr vasa sínum og snússaði sig af enn meiri virðu- leik en fyrr, en engu að síður lifði kímniglampinn þó enn í augum hans. „Já, eins og ég sagði, er hætt við að þetta þætti broslegt nú. En í þann tíð sá enginn neitt broslegt við þetta tiltæki Sigurbjargar heimasætu. Hún hafði einungis gert það sem skyldan bauð hverjum manni og konu, þegar náunginn var í nauðum staddur og bani bú- inn,- Og þó hún þyrfti ekki að æða út í brimgarðinn eða vaða eld til þess, hafði hún engu að síður unn- ið þá hetjudáð, sem krafðist jafn- vel enn meira hugrekkis eins og siðalærdómurinn og almennings- álitið var þá. Miskunnarlaus bar- átta þessa fólks fyrir tilveru sinni, kynslóð fram af kynslóð, hafði gert það raunhæft í mati; það dæmdi hvern einstakling af viðbrögðum hans þegar á reyndi, setti boðorð lífsins ofar öllum kennisetningum, þegar í • harðbakkann sló. Þess vegna þóttu þau bæði menn að meiri eftir, Sigurbjörg fyrir lífgjöfina og Jón af því hvernig hann síðan launaði hana vorið eftir, þegar hann gekk að eiga hana, bláfátæka og heldur lítilla ætta, og gerði hana að húsfreyju í Skörðum. Jafnvel presturinn lézt ekki vita neinn meinbug á, þegar hann lýsti með þeim, þótt bæði honum og öllum almenningi væri fullkunnugt um, að samkvæmt þeim lagabókstaf sem þá gilti, var óheimilt að gefa saman mann og konu, er gerzt höfðu sek um að liggja í einni sæng svo upp- víst yrði“. „Hrakspár fólks um þennan ráða- hag voru því ekki af neinum vand- lætingartoga spunnar. Og þó að Jón væri orðinn þrjátíu og tveggja ára, en Sigurbjörg ekki nema tvítug, þá hafði margt hjónabandið reynzt af- farasælt, þrátt fyrir meiri aldurs- mun. Enn síður var, að nokkur teldi hættu á því að Jórunn kynni að reynast tengdadóttur sinni þung í skauti; þvert á móti, að það yrði henni þá mest að þakka ef allt færi sæmilega. Nei, en það þótti nú einu sinni sannreynt, að lík börn léku bezt — og varla gat nokkur mann- anna börn jafn gerólík á allan máta og þau Jón og Sigurbjörgu". „Þótt undarlegt kunni í fljótu bragði að virðast, var talsvert hall- að á Jón í hrakspám þessum, og hlutur Sigurbjargar gerður þeim mun meiri, að vísu óbeinlínis hvor tveggja, en kannski kom almenn- ingsálitið, eins og það var, er og verður alltaf í sínu innsta eðli, þar enn skýrara í ljós einmitt fyrir það —■ sem spegilmynd þess mats og þeirra viðhorfa annars vegar, sem lífsbaráttan og lífskjörin leiða til öndvegis á hverjum tíma, en hins vegar þeirra snöru þátta mannlegs eðlis, sem haldast óbreyttir að mestu frá kyni til kyns. Allir voru á einu máli um það, að Jón Sigfús- son væri góður maður og hinn vand- aðasti í alla staði. Og vist var hann vel gefinn, þótt hann gæti á stund- um komið allt að því einfeldnis- lega fyrir. Jafnvel sérvizka hans og hégilja, var ekki með þeim hætti, að kona gæti ekki fyrirgefið hana, ef ... Já, það var einmitt þetta „ef“, sem enginn var þó í rauninni í efa um“. „Það var jafnvel til að fólk léti í það skína, að það væri nokkrum vafa bundið hvort Jón hefði, þegar á allt var litið, launað Sigurbjörgu lífgjöfina eins stórmannlega og orð var á gert, er hann batt hana í rekkju hjá sér ævilangt, ekki meiri Sri4:M«u:i lóleu ínn:nu!:miií mi«p Laugavegi 33. Ávallt gott úrval af tœlúfœriskjólum. Verið vél klœddar meðan þér bíðið. garpur. Fannst og mörgum undar- legt, að þessi föngulega, fjörmikla og tillitsheita stúlka skyldi leggja slíkt á sig fyrir nokkurn auð að ganga með Jóni til sængur aftur, eftir þá reynslu, sem hún mátti hafa fengið af honum, nóttina þegar hún varð að sóa öllum sínum meyjaryl í að þíða hann aftur til lífsins í örmum sér undir sæng og brekáni. Eflaust hlaut hana líka að iðra þess, og heldur fyrr en síðar, annað væri gagnstætt mannlegu eðli. Og þá var eins víst að jafnvel franskt messuvín kæmi að litlu haldi. Yfir- leitt lauk þó þessum spaklegu rök- ræðum á eina lund; forlögin mundu hafa sína meiningu eins og endranær, og það kæmi á daginn fyrr eða síðar“. „En mannlegt eðli er margslungið og óútreiknanlegt og mörgum hefur orðið hált á að byggja spár sínar cj6 n^JxHoj YIKAN 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.