Vikan - 24.01.1963, Page 2
f fullrí ulvöru
VEL FARIÐ
MEÐ SMYGLIÐ
ER LYKILL ÆÐRI MENNTUNAR Á ÍSLANDI.
Athugiö, aö BRÉFASKÖLI SÍS kennir eftirfarandi lands-
prófsgreinar:
Islenzk málfræði, kennslugj. kr. 350.00.
íslenzk bragfræöi, kennslugj. kr. 150.00.
islenzk réttritun, kennslugj. kr. 350.00
Danska I, byrjendaflokkur, kennslugj. kr. 250.00.
Danska II, kennslugj. kr. 300.00.
Danska III, kennslugj. kr. 450.00.
Enska I, byrjendaflokkur, kennslugj. kr. 350.00.
Enska II, kennslugj. kr. 300.00.
Reikningur, kennslugj. kr. 400.00.
Algebra, kennslugj. kr. 300.00.
Eðlisfræði, kennslugj. kr. 250.00.
Ungiingar! Notið þetta einstaka tækifæri. ÚtfylliÖ seö-
ilinn hér til hægri og sendið hann til BRÉFASKÖLA
SlS, Sambandshúsinu, Reykjavík
Ég undirritaður óska að gerast nemandi í:
□ V*insamlegast sendið gegn póstkröfu.
□ Greiðsla hjálögð kr._____________________
Nafn
Heimilisfang
Innritum allt árið — BRÉFASKÓLI SÍS
Það urðu margir fyrir vonbrigð-
um með tóbakshlutaveltu Slysa-
varnafélagsins í desember. Dráttur
inn kostaði tíu krónur, og hvert
númer var ávísun á einn pakka af
sígarettum. Þar að auki var heil-
mikið af núllum.
Nú hefur líklega enginn séð eftir
peningunum, þótt hann drægi núll.
Hitt er svo annað mál, að margir
urðu fyrir vonbrigðum með það,
að ekki skyldi vera hægt að fá nema
einn pakka í drætti. Ein tillaga kom
fram í sambandi við endurskipu-
lagningu á svona hlutaveltum, ef
framhald verður á þeim, sem lík-
legt má telja, sem vert er fyrir ráða-
menn hlutaveltunnar að gefa gaum:
Á þessari hlutaveltu á ekki að
hafa nein núll. Hins vegar má selja
dráttinn á allt að tuttugu krónur,
því allt tóbakið, sem þarna var á
boðstólum, kostar yfir tuttugu krón-
ur pakkinn. Fyrir númer, sem endar
á núlli, á að fást karton — 10
pakkar — af sígarettum, fyrir þau
sem enda á 5, fimm pakkar af
sígarettum, en aðeins einn pakki
fyrir önnur númer. Með því móti
er tryggt, að allir fá eitthvað fyrir
snúð sinn, og möguleiki er á því
að fá allverulega fyrir snúðinn. Og
ágóðinn hefði ekki orðið minni.
En hitt vakti þó meiri furðu og
óánægju, að það skyldi vera hægt
að koma pólitísku rifrildi að við
þessa saklausu hlutaveltu. Einhver
Einar skrifaði um hana í Morgun-
blaðið, daginn eftir að hún var
haldin, og skammaðist yfir því að
hafa tóbak á boðstólum á hluta-
veltu og spurði hvort brennivínið
yrði ekki næst? Það er í rauninni
sjálfsagt, því hvað væri eðlilegra
en það, að ágóðinn af því, sem flutt
er ólöglega inn í landið — oftast af
sjómönnum — renni til Slysavarna-
félagsins eða annars nauðsynlegs
félagsskapar. Hann taldi forstjóra
Társ, sem illu heilli er nefnt ÁTVR>
lélegan í sínu starfi, að geta ekki
sjálfur komið þessu tóbaki í pen-
ing. Það er ekki ólíklegt, að Einar
hafi sagt þetta með hliðsjón af því,
að hann ætlaði að koma greinar-
klausunni í Moggann, en forstjóri
Társ er framsóknarmaður. Hvað er
einmitt eðlilegra en það, að styrkja
eitthvert þjóðþrifafélag með því,
sem ríkið hirðir af lögbrjótum, án
þess að borga fyrir það? Varðandi
þá fullyrðingu Einars þessa, að þessi
hlutavelta hafi einkum verið sótt
af börnum og unglingum, er það að
segja, að hann hefur ekki verið þar
viðstaddur, því börnum og ungling-
um var bannaður aðgangur og þess
vel gætt, að þau væru ekki þar —
ncma náttúrlega í fylgd með sínum
foreldrum, enda voru það þá for-
eldrarnir, sem þátt tóku í hluta-
veltunni.
Kannski kynna menn sér málin
betur, áður en þeir fara að rífast
út af brennivínshlutaveltunni, þeg-
ar að henni kemur?