Vikan - 24.01.1963, Síða 3
VIKAlil
VIKAN ^ééUb
Þeir vita það bezt, sem í hafa komizt, hvað það getur verið oþægilegt
ef springur undir bílnum í slsemu veðri og þar sem allar aðstæður til
viðgerðar eru hinar óhentugustu. Og þar sem bíllinn er orðinn jafn
almennt farartæki og raun ber vitni, er ekki nema eðlilegt að hugkvæmir
menn leggi heilann í bleyti, og reyni að finna upp eitthvert ráð eða tæki,
sem gerir mönnum kleift að komast áfram, að minnsta kosti nokkurn
spöl þótt sprungið sé. Að undanförnu hafa líka komið á markaðinn er-
lendis nokkur slík tæki - - t. d. eins konar þrýstiloftsflöskur, sem settar
eru í samband við ventilinn, og fylla slönguna ekki einungis lofti, heldur
og efni, sem sezt í gatið á slöngunni og stíflar það til bráðabirgða.
Hér er sýnd önnur uppfinning, tannkringla úr stálalúmíni, sem fest er
á felguna eins og myndin sýnir og fullyrt er að geri kleift að aka bíln-
um eins og ekkert hafi í skorizt, þótt sprungið sé. Tæki þessi eru
framleidd af Posi-Trac Piail, Incl., 711 Taft, Houston 19, Texas.
UPPHITUN UTANHÚSS
Það er ekki amalegt að geta hitað upp hjá sér utanhúss. Bandaríkja-
menn framleiða nú olíukynt og færanlegt hitunartæki, sem getur
hitað á sex metra víðu svæði um nokkrar gráður, en vitanlega verður
að vera logn eða skjól, svo að dugi. Er það einkum ætlað til notkunar
á bökkum heimasundlauga og veröndum — en alldýrt er það, kostar
um tvö hundruð dollara vestur þar. Eflaust gæti svona tæki komið í
góðar þarfir hér á landi í sambandi við vermireiti, ef næturfrost kemur
að vori til, að öðru leyti þarf varla að gera ráð fyrir að það komi að
gagni við veðráttuna hér á landi.
I ÞESSARI VIKU
ERTU AÐ LEITA AÐ KONU?
Vikan hefur fengið einn reykvískan ung-
karl til þsss að leiðbeina ungum mönnum
í konuleit. Hér segir frá því, hvar væn-
legast er að ná fundi ungra, ógiftra
kvenna.
Tvistað í Lido
Kú er Lido staður unga fólksins eins
og allir vita. Á sunnudögum er opið
fyrir yngri en 16 ára og þá er líf og
fjör. Við látum myndirnar segja frá því.
Málverkaþ j óf arnir
Þeir höfðu verið I andspyrnuhreyfingunni
gegn Þjóðverjum og fannst lífið orðið
Eovintýrasnautt. Og réðust í það sem ekki
var hugsað til enda. Saga eftir Paul
Gallico.
Flóttinn til lands
hinna dauðadæmdu
Hann átti heima á Hawaii, varð holdsveiku;
og flýði með fjölskyldu sína í eyðidal
sem hann varðist lögreglunni af
garpskap og bar þar beinin.
VIKAI
tjtgefandi: Hilmir h.f.
Ritstjóri:
Gísli Sigurðsson (ábm.).
Auglýsingastjóri:
Jóna Sigurjónsdóttir.
Blaðamenn:
Guðmundur Karlsson og
Sigurður Hreiðar.
Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33.
Símar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími
36720. Dreifingarstjóri Óskar Karlsson.
Verð í lausasölu kr. 20. Áskriftarverð
er 250 kr. ársþriðjungslega, greiðist
fyrirfram. — Prentun:
Myndamót: Rafgraf h.f.
Hilmir h.f.
FORSIÐAN
Myndin er að sjálfsögðu tekin í Klúbbnum við
Lækjarteig, því hvar annars staðar getur maður von-
azt til að sjá svona ánægt fólk og falleg bros? Hann
virðist ekki vera í neinum vandræðum með félagsskap, herrann á myndinni.
Kannski hann sé að leita sér að konu. Ef svo er, þá er sýnilegt að hann þarf
ekki að örvænta. — Myndina tók ljósmyndari Vikunnar, Kristján Magnús-
son. Stúlkurnar eru í sýningarkjólum frá Eygló, cocktail-kjólum úr frönsku
brokade-efni. Guðrún Dóra Erlendsdóttir í dökkum kjól, með minkaskinns-
kraga, en jakki fylgir kjólnum. Lilja Norðfjörð í dragt, með dökku skinni
aftan á kraga. Svört brokade-bhlssa undir jakkanum. Pilturinn heitir
Sigurður Brynjólfsson og er frai»'>iðslunemi í Klúbbnum.
í næsta blaði verður m. a.:
• ERTU AÐ LEÍTA AÐ KONU? — Grein sem er í framhaldi
af þeirri í blaðinu núna. Þar tekur höfundurinn fyrir 20
mismunandi týpur af íslenzku kvenfólki.
® MÁL VERK AÞ J ÓF ARNIR. — Niðurlag sögu eftir Paul
Gallico. Þeir höfðu verið í andspyrnuhreyfingunni gegn
nazistum og frömdu vanhugsað verk því tilbreytingarleysið
var of þreytandi. En Refurinn bjargaði því.
• GRETTISVÖÐVAR. -— Vikan hefur brugðið sér í æfinga-
stöðvar þeirra heljarmenna, sem æfa lyftingar. Myndafrásögn.
• KAFBÁTAHAZAR OG FALLHLÍFASTÖKK. — Pétur
Thomsen, konunglegur sænskur Ijósmyndari í Þingholts-
stræti, rataði í ótrúleg ævintýri á stríðsárunum og segir frá
þeim í viðtali við Vikuna.
• BRETINN VIRTUR Á KR. 2,25. —- Sjóhrakningasaga úr
Höfnum suður. Sh. skráði.
• MÁNI YFIR MALAGA. — Rómantísk smásaga.
• ÁST VIÐ FYRSTA FALL. — Smásaga eftir Evelyn Rhode.
VIKAN 3