Vikan


Vikan - 24.01.1963, Síða 13

Vikan - 24.01.1963, Síða 13
þjófnaðinn. Úr öðru stórhýsi á Cap Ferrat, þar sem ekkja argentínsks auðmanns bjó, hurfu verk eftír Picasso, Matisse, Gauguin og Modigliani. 1 það skiptið var einnig um morð að ræða, því að gamall húsvörður, sem aug- sýnilega hafði ætlað sér að verja eignir hús- móður sinnar, var skotinn til bana. En ránið á laugardagskvöldið, sem um var talað í blaðinu fyrir framan hann, var þó lang- stórkostlegast og snerti ofurstann jafnframt persónulega, því að ameríski milljónamæring- urinn, sem átti Villa Fleury og hin frægu 12 meistaraverk Renoirs, virt á tvær og hálfa milljónir dollara, er tekizt hafði að stela, var bæði viðskiptavinur hans og góðkunningi. Vinstri augnabrúnin á Roquebrun ofursta, sem var óvenju hreyfanleg, lyftist nú, þar til hún hvarf hér um bil í hrukkurnar á brúnni húð- inni á sköllóttu höfði hans. Því að hann sá, að meðal hinna horfnu málverka var hinn frægi, blái Renoir, sem franska stjórnin hafði nýlega ákveðið að kaupa fyrir gífurlega fjárhæð: tvær milljónir nýfranka. Myndina hafði átt að flytja á mánudag frá Villa Fleury til listasafnsins í Cannes, sem helgað var nútímalistamönnum. Þjófarnir höfðu því rænt bæði Ameríkumann- inn og frönsku þjóðina í senn. Ofurstinn sökkti sér niður í lesturinn. Enginn vissi á hvaða tíma ránið hafði verið framið. í Villa Fleury var næturvöi'ður, sem fór eftirlits- ferðir á ákveðnum tímum, en hann hafði ekkert heyrt. Þjófabjöllur og önnur varúðartæki virtust óskemmd, en höfðu ekki gefið merki. Eigandi málverkanna, Joel Howard, var staddur í Banda- ríkjunum, en tvítug dóttir hans, Sarah að nafni, bjó í húsinu. Hún hafði verið í samkvæmi hið umrædda kvöld og komið heim seint um nótt- ina í fylgd nokkurra vina sinna, en ekki farið inn í salinn, þar sem málverkin héngu. Það var tvennt í þessu máli, sem olli ofurst- anum heilabrotum. Annað var það, að þetta þriðja og óvæntasta rán var ólíkt hinum tveim, hvað aðferðum viðvék. Hitt var, að hann hafði ekkert um þetta.frétt, jafnvel þótt heill sólar- hringur væri nú liðinn, frá því að það gerðist. Enginn hafði sagt orð, ekkert hafði verið gefið í skyn. Ekki svo að skilja, að virðulegur fornminja- sali, sem sæmdur hafði verið hinni venjulegu hrúgu af frönskum heiðursmerkjum og nokkr- um útlendum í ofanálag, væri líklegur til að búa yfir nákvæmum upplýsingum um áform og stundatöflu þjófa. En Roquebrun ofursti átti sér fortíð. Kynlegustu sögur, mas og orðrómur úr undirheimum Rivierunnar barst stöðugt að eyrum hans og streymdi inn í gljáandi, sköllótt höfuðið, þar sem það var varðveitt eins og í innsigluðum klefa. Þunnar, harðar varir ofurst- ans bærðust sjaldan til að ljóstra upp leyndar- málum. Nú var hann kominn á sjötugsaldur og lét sér nægja að sjá um verzlunina sína, kaupa inn og sinna öðrum viðskiptum. Hann heyrði bíl nema staðar fyrir utan. Roquebrun ofursti leit upp úr blaði sínu og út um gluggann, þar sem hann sá hvíta Jagúarinn, sem Sarah Howard, dóttir Joels Howard, átti. Hún var ein. Hann stóð upp tii að heilsa henni og beið í dyrunum, lágur og gildvaxinn, óbugandi vilja- fastur, með skærblá, ung og greindarleg augu í afskræmdri ásjónunni, sem læknarnir höfðu reynt að laga, því að hann hafði orðið að þola ólýsanlegar pyndingar í höndum Gestapo- manna á stríðsárunum. Stúlkan kom þjótandi út úr bílnum á svo • • VIKAN 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.