Vikan


Vikan - 24.01.1963, Page 29

Vikan - 24.01.1963, Page 29
Á miðjum bekk með alskeggjaða safnað- arbræður á báðar hliðar, sat Ben Purnell og varð að beita sjálfan sig hörku til þess að skellihlæja ekki. Saksóknarinn var að ná sér á strik eftir áfallið daginn áður og undirbjó nú nýja sókn til þess að sanna meydóm Bernice Bickle. EFTIR ANTHONY STERLING sárt. Bernice veinaði mörgum sinnum.“ „Hefur yður verið sagt, að þess- ir læknar fundu engin merki um að lioldleg mök hefðu átt sér stað nýlega.“ „Mótmæli!“ kallaði Oscar Sprin- ger. „Það er vitað að sýnishorn. sem tekin eru á þennan hátt, eru alls ekki óyggjandi sannanir.“ „Auðvitað," sagði dómarinn. „Haldið áfram.“ „Það var ekki fleira.“ Atkin- son geklc til sætis síns við hlið hins skeggjaða prins og hinnar hörkulegu vinkonu hans. Siðan var Mary Ellen Rowlinson kölluð upp. Aftur varð Ben Bur- nell að játa það, að Mike Mills hafði haft gott auga fyrir konum. Siðsamleg safnaðarfötin gátu ekki leynt freistandi líkama hennar. „Hvað ertu gömul, Mary Ellen?“ spurði saksóknarinn. „Nitján ára.“ „Hvenær hittirðu ákærða fyrst?“ „Síðastliðinn nóvember.“ „Hvar hittirðu hann?“ „Á safnaðarsamkomu i Ontario." „Hvenær fluttirðu i húsið við Hamlin Avenue?" „Tuttugusta og annan desember.'1 „Komstu þangað af frjálsum vilja?“ „Nei, foreldrar minir sendu mig.“ „Meðal annarra orða, hvað áttir þú að tákna þarna i Guðshöfðinu?“ „Hófsemi." Síðan var hún spurð hverjar liefðu aðrar átt heima þar og ná- kvæmlega um það, hvar Bernice liefði sofið fyrstu næturnar, og sagðist hún vita, að Bernice hefði sofið lijá prins Michael þann tuttugasta og fyrsta febrúar. „Varst þú i herberginu?“ spurði saksóknarinn. „Nei.“ „Heyrðirðu prins Michael segja nokkuð um blóðið i rúmfötunum?-1 „Nei, en áður hafði ég heyrt hann segja, að Bernice væri óhlýð- in og að Guð mundi ekki þola henni það mikið lengur.“ „Hvernig vildi það til, að þú fórst úr húsi prins Michaels?“ „Ég kom bréfi út úr húsinu til föður míns, þar sem ég sagði hon- um frá lifinu þarna. Hann kom og náði mér út með hjálp lögreglunn- ar.“ „Hvenær var þetta?“ „Snemma í marz.“ „Þakka þér fyrir, Mary Ellen.“ Oscar Spinger sneri sér að Atkin- son. „Þér megið sp>yrja.“ Atkinson gekk hægt upp að vitna- stúkunni. „Segðu mér, Mary Ellen, ákærðir þú ekki prins Michael fyrir nauðgun, við dómstól i De- troit?“ „Jú, það var þegar faðir minn kom og sótti mig.“ „En þú dróst kæruna til baka. „Ég get skilið það, Mary Ellen. En komstu ekki aftur til Detroit tólfta april, og hefurðu ekki verið á Woodbridgestöðinni síðan?“ „Jú, ég vildi hreinsa mannorð mitt.“ „Mannorð þitt? Hafði það verið svert, og af hverjum?“ „Ég veit það ekki.“ „Segðu mér, Mary Ellen, ætlar þú líka að halda því fram, að þú hafir verið hrein mey áður en þú komst i hús prins Michaels?“ spurði Atkinson háðslega. „Mótmæli!“ hrópaði Oscar Sprin- ger. „Haldið áfram!“ Dómarinn horfði illilega á Atkinson. „Hef ekki fleiri spurningar.“ Lögfræðingurinn brosti. Næsta vitni var Christoplier C. Starkweather, lögregluforingi. Við yfirheyrzluna staðfesti liann, að ákærði hafi verið færður á Wood- bridgestöðina til yfirheyrzlu þann ellefta apríl, og að honum liafi ver- ið sýndur framburður Bernice Bickle og hann hafi ekki neitað neinu i honum. „Munið þér nákvæmlega hvað hann sagði?“ spurði Oscar Sprin- ger. „Já. Hann sagði: „Ég hvorki neita þessu né játa. Ég er ekki ábyrgur fyrir þessu. Ég mun ekki reyna að réttlæta sjálfan mig.“ Starkweather játaði, að hafa tek- ið alla fasta, sem hann fann i hús- inu við Hamlin Avenue, þótt hann hefði ekki haft handtökuheimild nema fyrir Michael Mills og Elizu Court. Hann játaði líka, að liafa tekið á móti borgaranefndinni og látið captain Wyler rannsaka kvörtun hennar um að ísraelsmenn væru hættulegir almennu borgara- legu siðgæði. Saksóknarinn vildi nú láta fresta réttarhöldunum, en Atkinson mót- mælti þvi ákaft. í réttarskjölunum liöfðu önnur vitni verið nefnd — Rosetta Mills, Alice Court, Emma Butler og lögreglumennirnir J. L. Lombard og H. E. Shoumaker. Atkinson krafðist þess, að þessi vitni væru leidd fram. Oscar Springer sagði að Mrs. Mills væri einhvers staðar i Iíanada og það væri ekki hægt að ná í hana, hin vitnin væru tilnáanleg, en ekkert frekar á þeim að græða. Kinne dómari úrskurðaði, að Atkinson gæti fengið að yfirheyra önnur vitni, og nokkurt hlé var gert til þess að hann gæti talað við Alice Court og Emmu Butler, sem voru i gæzluvarðhaldi. Þegar Atkinson kom aftur hóí hann vörn sina með þvi, að lýsa Michael Mills sem fórnarlambi trú- arfordóma. Þó væri trú ísraels- manna litið fráburgðin annarri kristinni trú, sagði hann. ísraels- menn tryðu á skírnina, eins og Bapistar, og á skriftir eins og kaþólskir. Þeir tryðu á heilaga þrenningu. Það væri i rauninni að- eins einn mismunur. Flestir kristn- ir menn tryðu á endurkomu frels- arans, en ísraelsmenn héldu þvi fram, að sá tími væri á næstu grös- um. . Hann sagði, að prins Michael væri hér fyrir rétti vegna ofsókna nokkurra fasteignasala i Detroit og fárra kaupmanna í norðurhluta borgarinnar. Fasteignasalarnir héldu, að hinir síðskeggjuðu íbúar á Hamlin Avenue yrðu til þess að flæma aðra íbúa hverfisins burtu og húseignirnar mundu þannig lækka i verði. Kaupmennirnir hefðu hins vegar lrorn i síðu þeirra, vegna þess að þeir væru grænmetissalar og keyptu allar vörur sinar i heildsölu. Kysu þeir heldur aðra ibúa i hverfið, sem verzluðu meira við þá og tækju þess vegna þátt i samsærinu gegn prins Micliael með fasteignasölun- um. Atkinson sagðist mundu geta sannað, að lögreglan og dagblöðin í Detroit væru líka aðilar að sam- særinu og að öllum stúlkunum, sem bæru vitni gegn prinsinum, væri mútað til þess. Ilann endurtók fyrri fullyrðingu sína, að Bernice Bickle hefði ekki verið óspjölluð, þegar hún kom í söfnuðinn. Fyrsta vitni hans var Judson Lombard, lögreglumaður. Hann ját- aði, að Rosetta Mills liefði verið treg til að kæra eiginmann: sinn, og hefði það verið eftir þrábeiðni borgaranefndarinnar, að hún fékkst loks til þess. Oscar Springer spurði engra spurninga. Þá kallaði Atkinson á Henry Slioumaker, lögreglumann. „Hvenær komuð þér fyrst i hús- ið við Hamlin Avenue?“ „Annan marz. Ég fór þangað xneð lir. Rowlinson til þess að ná Mary Ellen þaðan út.“ „Voruð þér á fundi borgara, sem haldinn var í Browns Hall, til þess að reyna að finna leiðir til að losna við ísraelsmenn úr Detroit?“ „Það var ég.“ „Var fröken Rosetta Mills við- stödd á þeim fundi?“ „Já.“ „Hafið þér heimsótt þessar stúlk- ur reglulega á Woodbridgestöðina og oft á kvöldin?“ ' „Já.“ „Hafið þér stundum verið þar fram til ellefu á kvöldin?“ „Það hefur komið fyrir, 'en mjög sjaldan." „Þér megið spyrja,“ sagði Atkin- son við Springer. Saksóknarinn stóð á fætur og sagði: „Aðeins ein spurning. Hafið þér staðið í nokkru óviðeigandi sambandi við þessar stúlkur, eða vitið þér til að nokkur annar lög- reglumaður liafi gert það?“ „Auðvitað ekki!“ Slioemaker var hneykslaður. „Það var lögreglu- varðkona viðstödd allan timann.“ En þá kom Atkinson skyndilega öllum að óvörum. Næsta bragð lians hafði viðlika álirif og dylgj- ur hans um skriftir Bernice Bickle höfðu haft. Hann kallaði á for- eldra Bernice, sitt i hvoru lagi, sem vitni. Bæði lýstu yfir trausti sínu og aðdáun á Michael Mills, skapgerð hans og allri framkomu. Bæði fordæmdu dóttur sina inni- lega, sögðu hana útfarinn og hug- myndarikan lygara og sóru, að1 þau mundu aldrei tala við hana framar. Meðan allir áheyrendur sátu sem steini lostnir, reyndi Springer af öllum mætti að lirekja fi’amburð hjónanna, en það var vonlaust. Þau voru sjálf sannfærð um að þau væru að segja sannleikann, og það eina, sem saksóknarinn gat gert, var að sýna kviðdómendum fram á, hvilikir ofstækismenn þau væru. Á þessu stigi málsins sleit Kinne dómai'i réttai-haldinu þann dag. Frá sjónarmiði Bens Purnells voru horfurnar langt frá þvi að Framhald á bls. 45. VIKAN 29

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.