Vikan


Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 15

Vikan - 31.01.1963, Blaðsíða 15
Guðmundur Sigurðs son með 120 kg fótpressu. Gunnar Alfreðsson var væskilslegur unglingur fyrir tveim árum síðan, segir hann sjálfur, og þótti hvergi liðtækur þar sem krafta var þörf. Fyrir nokkrum ár- um síðan lenti hann í bílslysi og brotnuðu þá í honum nokkur rifbein, og fengu að gróa saman eftir því, sem verkast vildi. 1 fyrravetur fór hann að æfa fimleika, frjálsar íþróttir og llyftingar í 2—3 mánuði, en í vetur hefur hann stundað lyftingar og frjálsar íþróttir af kappi, — og myndirnar sýna árangurinn. — Gunnar er 22 ára gamall, ættaður frá Húsavík. kranabíl (Michigan Bay City) — og varla hefur hann hugsað meira en þeir. Enn í dag erum við íslendingar íþróttamenn miklir, og keppum við nágrannaþjóðirnar með góðum árangri, — og ef árangurinn er ekki góður, þá er það einhverjum ófyrirsjáanlegum óhöppum að kenna, eins og t. d. timburmönnum. Ein er sú íþróttagrein, sem lítið hefur látið á sér bera, sú sem Grettir fann upp forðum. En nú er ekki hlaupið um landið og grýtt grjóti um allt, öllum til ógnar og skelfingar. Nú láta menn sér nægja að keppa við að lyfta upp þungu hlassi og styrkja sína vöðva og skrokk. Lyftingar, er það kallað. Nú má enginn skilja glettni mína svo, að þetta sé ekki góð og holl íþrótt, sambærileg eða jafnvel fremri en margar þær aðrar íþróttagreinar, sem hér eru stundaðar af kappi. Eftir því, sem mér er sagt eru lyftingar einkum vel til fallnar til að þjálfa alla vöðva — eða flesta að minnsta kosti - - jafnt og hættulaust, gefa líkamanum hraustlegt og kraftalegt útlit, gera vöxtinn spengilegan og vöðva stóra og aflmikla. Margs konar tæki eru notuð til þjálfunar og stuðla að þjálfun hinna ýmsu líkamshluta. Algengust eru lóðin, sem sett eru á stöng og síðan lyft með báðum höndum, en einnig er notaður alls konar útbúnaður annar, svo sem sérstakir skór á fætur, og lóð fest þar við, til að þjálfa fótvöðvana, ólar um höfuðið, sem lóð eru fest við og bjálfar hálsvöðvana o. s. frv. Að sjálfsögðu er þessum tækjum öllum lyft mismunandi hátt, stundum aðeins í mittishæð, stundum að brjósti og stundum jafnhent. En ekki mun ennþá vera völ á þjálfuðum kennara í þessari íþrótt, en áhugamenn koma saman, stofna nokkurs konar klúbb Framliald á bls. 31i VIKAN 15 < Jón Geir Árnason rakari lyftir rúml. 200 pundum, eða 100 pund í hvorri hendi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.