Vikan


Vikan - 31.01.1963, Page 17

Vikan - 31.01.1963, Page 17
Það getur margt komið fyrir á skömmum tíma. Stellu fannst hún ekkert ráða við atburðarásina. Þetta hafði henni ekki dottið í hug, þegar hún lagði af stað til Spánar . . . brigðalaust þar sem hún fylgdi manninum eftir. — Fyrirgefið þér, en eruð þér fröken Bar- ton? Stella sá að maðurinn var hár og karlmann- legur með grannt og skarpleitt andlit og alvar- leg, grá augu. Röddin var djúp og róleg. — Já, ég er Stella Barton, en ... Ég heiti Lovell, Kane Lovell, og þetta er ... hann sneri sér að stúlkunni ... þetta er Lóla Larosa, fjarskyldur ættingi minn, sem er hér í heimsókn. Stúlkan kinkaði kæruleysislega kolli, og hann hélt áfram: — Elmer Simmons bað mig að hjálpa yður og þess vegna sendi ég Carlos, bróður Lólu, út að landamærunum til þess að reyna að ná yður þar. En bíllinn hans bilaði, og þegar hann hringdi til mín, varð mér Ijóst, að ég mundi finna yður hér. . — En hvers vegna? Hvað hefur komið fyr- ir? Stella horfði spyrjandi til skiptis á þau. — Kona Simmons varð skyndilega veik, sagði Lovell. — Hann fór flugleiðis með hana til Madrid í gær og ætlaði að ná í flugvél til New York þaðan. Það var eina vonin um bata, og hann hafði ekki tíma til þess að komast í samband við yður, áður en þér lögðuð af stað frá London. Hann bað mig að annast það og skildi eftir peninga fyrir farinu yðar heim — og reyndar dálitið meira, svo að þér gætuð tekið yður frí hér i einliverju hóteli um tíma. Kane Lovell strauk hárið frá enninu með sterklegri og fallegri hönd, og áhyggjusvip- ur kom á andlit lians. — Mér þykir það leitt, að ég skyldi ekki liafa samband við yður fyrr, hélt hann áfram. — Þér hljótið að hafa verið undrandi á því, að enginn skyldi taka á móti yður. Hann horfði á fölt og fíngert andlit hennar og bætti við i skyndi: — Þér eruð alveg uppgefnar. — Hún verður að fara á eitthvert gistihús, sagði Lóla Larosa. Röddin var mjúk með spænskum lireim. Hún brosti, en augun voru fjandsamleg. Stella játaði því og sagði: — Vesalings frú Simmons. — Það er ágætt liótel i útjaðri bæjarins, sagði Kane og kallaði á þjóninn til þess að borga honum ávaxtadrykkinn. — Er þetta all- urfarangur yðar? lígskalaka yður þangað,og... Hún sá, að þau stóðu upp og reyndi að gera það sama. Kvalirnar i höfðinu urðu að nístandi sársauka og um leið og hún reis upp hringsner- ist allt fyrir augum hennar. Hún sá áhyggjufull andlit allt í lcringum sig og fann sterkan hand- legg styðja sig — og svo timlykti mjúkt myrkr- ið hana. að er gott, að þér eruð komnar á fætur. Þér hafið valdið okkur töluverðum áhyggjum! Stella sat i körfustól úti í garðinum þegar Kane Lovell kom niður tröppurnar. Hann brosti, en augu hans voru alvarleg. — Mér finnst leitt, ef ég hef valdið yður óþægindum, sagði hún lágt. — Allir liafa ver- ið svo vingjarnlegir. Frú Larosa ... — Inez frænka hefur einmitt verið á réttri hillu, tók Kane fjörlega fram i fyrir lienni. — Ég kalla hana frænku, en eiginlega er hún gömul, spænsk vinkona móður minnar. En henni hefur fallið vel að hjúkra yður. En þér verðið að hafa hægt um yður til að byrja með. Sólstingur getur verið hættulegur, og þér hefð- uð ekki átt að vera hattlaus fyrstu dagana á Spáni. Hún roðnaði svolítið. — Ég er yður mjög þakklát, sagði hún dá- litið hátiðlega — en nú get ég ekki íþyngt gest- risni yðar lengur. A morgun ... — Varela læknir segir, að þér getið ekki farið fyrstu vikuna, sagði hann kuldalega, en bætti svo við með vingjarnlegri röddu: — Hér er nóg húsrými og yfirfullt af þjón- um. Inez frænka, Carlos og Lola verða hér í allt sumar, og hvort það er einum fleira breyt- ir engu. Það eina, sem ég hef haft áhyggjur af, er að ég vissi ekki hvern ég átti að láta vita um þetta í Englandi. Fjölskyldan yðar... — Ég á enga fjölskyldu, sagði hún. — Ég sagði vinum mínum, að ég færi til þess að vinna hérna, svo að enginn hefur búizt við fréttum af mér ennþá. — Þá er það í lagi. Hann stóð upp og brosti. — Næsta hálfan mánuð, að minnsta kosti, verð- ið þér að vera gestur minn. Andartak mættust augu þeirra, og Stellu fannst að einhver ósýnilegur straumur færi á milli þeirra og hjarta hennar kipptist við. Svo kinkaði hann kolli í kveðjuskyni og fór. Innan frá húsinu heyrðist kuldaleg rödd Donnu Inezar ávita einhvern af þjónunum, og rétt strax kom hún sjálf út i garðinn, feitlagin, roskin kona, i einföldum svörtum kjól. — Það er heitt! sagði hún á bjagaðri ensku og settist. Hárið var byrjað að grána og svört augu hennar voru þessa stundina áköf af for- vitni — Ég sá, að þér voruð að tala við Kane, sagði hún. — Hvað sagði hann? — Hann vill, að ég verði hér þar til mér er alveg batnað, svaraði Stella hægt. — Hann var ... mjög vingjarnlegur. Donna Inez sat þegjandi dáltila stund, og þegar hún tók aftur til máls, virtist hún reið — Hann er — ég veit ekki hvað þið kallið það — hann er fljótfær. Ekki i þvi, sem viðkemur verzlun, auðvitað. Faðir hans var mjög duglegur maður, sem setti á fót stóra vínverzlun í Malaga, og Kane hefur rekið hana vel. Hann er ríkur. En gagnvart fólki . . . hún yppti öxlum .— Hann lætur hjartað ráða þar i staðinn fyrir höfuðið. Það hefur líka komið honum í koll. Stella varð vandræðaleg. Donna Inez hafði verið góð við hana, en hún hafði það á til- finningunni, að hún væri reið, vegna þess að hún ætti að vera þarna áfram. En hana lang- aði til að vita meira um Kane — Hvernig? spurði hún. — Ég á við hjónaband hans. Það eru átta ár síðan, hann var tuttugu og fimm ára þá. Hann hitti hana í Paris — Yvonne Dulac. Hún var mjög fögur, er sagt. Hann kvæntist henni mánuði eftir að þau sáust fyrst. En áður en árið var liðið, var liún dáin. Stella sat þögul og liugsaði um þennan mann, sem hafði sýnt henni svona mikla gest- risni. Það var ekki að furða, þótt hann brosti sjaldan. — Siðan hefur hann búið hér einn, sagði Donna Inex. — Eins og einsetumaður. Þess vegna kom ég hingað með börnin mín. Það er gott fyrir hann að hafa ungt fólk í húsinu. Carlos — hann er alltaf svo kátur og fjör- ugur. Og Lóla_____ Hún þagnaði og starði hugsandi út í blá- inn. Svo stóð hún snögglega upp og sagði kuldalega. — Nú, þegar yður er batnað, lang- ar yður sjálfsagt ekki til að vera hér lengur. Stella horfði á eftir henni upp að húsinu. Það var ekki hægt að misskilja þetta — hún hafði átt við, að Stella væri óvelkomin. Þeg- ar hún leit við, sá hún Carlos og Lólu koma utan af baðströndinni. — Alein? sagði Lóla. — Ég verð að bæta úr þvi! Carlos settist i grasið og horfði áleitinn á ungu, ensku stúlk- una. — Ef Kane er það slæmur gestgjafi, að hann vanrækir yður, þá skal ég ... — Komdu, kjáninn þinn! Lóla sparkaði i hann með berum fætinum. — Við verðum að fara að klæða okkur, og þar að auki er Stella sjálfsagt þreytt, því að þetta er fyrsti dagurinn, sem hún fer út. Carlos reis óánægður á fætur og um leið og þau gengu inn, sá Stella að Lóla leit aftur og augnaráð hennar var svo hatursfullt, að Stellu varð hverft við. Það var enn óhugnan- legra, vegna þess að hún vissi ekki orsökina fyrir sliku hatri. n næsta dag hugsaði Stella með sér, að hún hlyti að hafa ímyndað sér þetta, þvi að Lóla var óvenjulega vingjarnleg við hana. Carlos gaf henni hýrt auga, en Donna Inez var sú eina, sem var kuldaleg. Kane sá hún sjaldan. Hann fór að lieiman snemma á morgnana til þess að gæta að vin- ekrunum eða verzluninni inni í borginni. Þegar hann var heima fannst Stellu, að hann forðaðist að vera einn með henni. Hún fór að venjast lífinu þarna. Morgun- Framhald á bls. 47. rFIR MALAGA VIKAN 17

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.