Vikan - 31.01.1963, Side 18
SNIÐAÞJÖNUSTA
VIKUNNAR
Nú eru stærstu hátiðarnar afstaðn-
ar, en framundan eru margar skemmt-
anir og hóf og J)á kemur auðvitað
stór spurning, í hvað á ég að fara?
Þess vegna erum við nú með uppá-
stungu. Hvers vegna ekki að reyna
að sauma einn kjói frá Sniðaþjónustu
Vikunnar, bað er auðvelt því hann
kemur sniðinn og merkt fyrir öllum
saumum og föllum og þar að auki
fylgir saumatilsögn. Það er „shantung"
efni þunnt í kjólnum og hann er til
1 2 litum. 1. mosagrænn, frekar dökk-
ur. 2. dökk-drapplitaður, til í no. 40,
42, 44 og kostar kr. 330. Kr. 24,20
fyrir rennilás, tvinna og „rúllibúkk"
í belti. Sniðið er einfalt í blússunni,
2 stykki, hún cr meira flegin að aftan,
pilsið í tveim stykkjum og er fellt
við blússuna, beltið er með slaufu
að framan.
Útfylltu pöntunarseðilinn með upp-
lýsingum um stærð og lit og sendu
til Sniðaþjónustu Vikunnar ásamt kr.
100,00 os þú færð kjólinn heimsendan
gegn póstkröfu. Efnissýnishorn færðu
send gegn frímerktu umslagi með
nafninu þínu á.
„ROSITA“
HVAÐA STÆRÐ ÞARFTU?
Númer á sniðunum 38 40 44 h6 48 50
Baklengd í cm . . 40 41 42 42 42 43 43
Brjóstvídd ...... 86 88 92 98 104 110 116
Mittisvídd ...... 64 66 70 78 84 90 98
Mjaðmavídd ...... 92 96 100 108 114 120 126
Sídd á pilsi .... 70 í öllum stærðum -j-5cmí fald.
„RÓSÍTA“
| Sendið mér í pósti samkvæmiskjól, sam-
| kvæmt mynd og lýsingu í þessu blaði. Sem
I tryggingu fyrir skilvísri greiðslu sendi ég
Æ hérmeð kr. 100.00.
■C
S Stærð ...... Litur ..........................
g Ef sá litur kynni að vera búinn, sendið mér þá
Nafn
Allar frekari upplýsingar eru gefn-
ar í síina 37503 milli 2 og 5 á þriðju-
dögum og föstudögum.
Heimilisfang ..............
Saumtillegg. Já □ Nei □
P Ú Ð I -
Hér kemur óvenjulegur púði, saumaður með
bótasaumi, úr nokkuð þykku ullarefni í þremur
litum (t. d. Álafossefni).
Púðinn er 35x35 cm á stærð.
Búið til sniðin þannig að strika ferninga á
pappír, 2% cm hvern. Teiknið síðan sniðin eftir
skýringarmyndinni, dragið þau á smjörpappír
í tvennu lagi eftir iitaskiptingu myndarinnar,
og klippið út. Sníðið nú þessi tvö stk. úr sitt
hvorum litnum, saumfarslaust. Staðsetjið fyrst
ljósara stykkið, klippið augað úr, og saumið
síðan með þéttu kappmelluspori yfir brún aug-
ans og ytri brún stykkisins.
Staðsetjið þá næsta stykki og saumið á sama
hátt. Að lokum er ljós snúra lögð í boga eins
og sést á myndinni og saumið með þéttum ó-
sýnilegum sporum. Einnig má sauma þennan
boga með tveimur röðum af kappmelluspori.
Pressið púðann frá röngu, saumið saman
fram- og afturstykki, og fyllið upp.
PÚÐI SAUMAÐUR
ÚR HÖREFNI
Efni: 2 stk. hvítt hörefni 37x36, um 10
þræðir á 1 cm.
Jurtalitað bómullargarn: dökkgrátt, ljósgrátt
og dökkrauðan lit, sem fer vel við gráu litina.
1 rúða í mynztrinu — 2 þræðir.
Varpið í kring um annað stykkið og finnið
miðju þess.
Byrjið að sauma í miðju mynztranna með
18 VIKAN