Vikan


Vikan - 31.01.1963, Síða 27

Vikan - 31.01.1963, Síða 27
i hernum í síðasta stríði, KAFBÁTAHAZAR OG FALLHLIFARSTÖKK Pétur lá uppi í koju og var að geispa golunni — í bókstaflegri merk- ingu. Hann lá þarna og geispaði eins og kjálkarnir væru að fara úr liði, og um leið og einn geispinn var liðinn hjá, þá hófst annar. Tárin kreistust fram í augnakrókana og runnu í stríðum straumum út af hvörmunum, niður með eyrarsneplinum og aftur á háls, þar sem þau blönduðust svitanum og bleyttu kojuna þar til Pétur lá bókstaflega í polli. Fyrir neðan Pétur voru tveir aðrir menn, sem geispuðu í kapp við hann, og voru búnir að gera það lengi. Alls staðar, hvert sem litið var, lágu menn í kojum og géispuðu út úr sér síðustu golunni. Sumir bölsótuðust á á milli geispanna en aðrir báðust fyrir. öllum var það samt sameiginlegt að þeir hreyfðu sig ekki, þótt þeir byggjust við dauða sínum þá og þegar, og þótt allir þe'irra væru fuilfrískir menn á bezta aldri. Þeim var bannað að hreyfa sig og þéir gátu heldur ekkert annað gert en að bíða og vona að þeir kæmust úr þessari prísund, sem þeir voru komnir í. En til þess þurfti töluvert átak, þvi milli þeirra og frelsisins var veggur af sjó — nokkur hundruð metra þykkur. Þeir voru fastir i kafbát á hafsbotni, nokkur hundruð metrum fyrir neðan yfirborð sjávar — og komust ekki upp aftur. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.