Vikan - 07.03.1963, Page 2
llmva$in
Avon
ilmi..,..
Dásarnleg ilmefni, bundin í miidum smyrslum. Núið þeim létt á háls og arma ... umvefjið
yður ljúfasta ilmi, sem endist klukkustundum saman ... Um fimm unaðstöfrandi ilmkrema-
tegundir að velja; ... dýrðlegan Topaz ... ástljúfan Here is My Heart .. . æsandi Persian
Wood, ... hressilegan Cotillion, og seiðdulan To a Wild Rose.
★ KYNNIi) YÐUR AÐRAR AVON-VÖRUR:
★ V ARALITI — MAKE-UP — PÍJÐUR — NAGLALÖKK — KREM — SHAMPOO —
HÁRLÖKK — SÁPUR o. fl.
Avon
cosmetics
LONDON NEW YORK MONTREAL
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Regnbogmn, Tíbrá, Sápuhúsið, Verzl. Edda, Keflavík, Stjörnuapótekið, Akureyri, Rakarastofa Jons
Eðvarðs, Akureyri, Apótek Akraness, Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi, Silfurbúðin, Vestmannacyj-
um, Verzlun Jóns Gíslasonar, Ólafsvík, Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði, Verzlun Ara Jonssonar,
Patreksfirði.
MANNORÐS-
ÞJOFAR
„Þú sérð ekki bjálkann í eigin
auga, en flísina í auga bróður þíns“.
Einhver ljótasti löstur fslendinga
nú á dögum — og hefur raunar
lengi verið — er níð og baktal um
náungann. Er það, eins og raunar
fleira, er mikið ber á í þjóðlífi voru,
greinilegt merki um lélega menn-
ingu, molbúahátt, og einkennir
hvarvetna helzt frumstætt, hálf-
menntað fólk, sem býr í fámenni,
að því er talið er.
Hér er þessu svo varið, eins og
allir vita, að allir þekkja alla, að
heita má, enda stendur ekki á að
búa til slúðursögur um allt og ekki
neitt og þá vanalega annaðhvort
sannleikurinn rangfærður, svo að
sagan verði sem gómsætust, eða
jafnvel uppspunin frá rótum.
Tilefnin þurfa ekki alltaf að vera
mikil eða alvarleg, og þó geta orðið
úr þeim verstu sögur um alla mann-
lega glæpi. T. d. þarf ekki meira
til, en að kona og maður hittist
á götu og talist við nokkur orð, að
ég nú ekki tali um, ef þau yrðu
samferða spottakorn, til þess að út
af þessu geti spunnist saga um, að
þau séu tekin saman eða a. m. k.
farin að „halda hvort við annað“!
í útlöndum myndi slíkt varla þykja
tiltökumál, a. m. k. þar sem ég
þekki til, og alls ekki saga til næsta
bæjar.
Mér virðist að þetta muni stafa af
sjúklegu sálarástandi, að sjá ætíð
hið versta og saurugasta út úr öllu,
sem náunginn gerir eða ekki gerir.
En sumt fólk virðist, því miður, ekki
hafa, eða sækjast eftir annarri and-
legri næringu, en slúðri um náung-
ann og hygg ég, að margur, karl
og kona, myndu verða að játa það
með sjálfum sér, ef þau vildu vera
heiðarleg og einlæg við sig sjálf.
En hverju ber þetta sálarástand
vitni? Því fyrst og fremst, að fólk
vantar betri viðfangsefni, eitthvað,
sem gæti lyft huga þess upp úr
þessum óþverra.
Ef það læsi góðar bækur og þrosk-
andi eða fengist við tómstundastörf,
sem þroskaði listfengi þess á ein-
hvern hátt, þá myndi það ekki langa
til að heyra eða segja frá ávirðing-
um annarra, sönnum eða ímynduð-
um.
Fólk, sem baktal stundar, gerir
Framhald á hls. 3G
2
VIKAN 10. tbl.