Vikan


Vikan - 07.03.1963, Qupperneq 47

Vikan - 07.03.1963, Qupperneq 47
Hún náði Ben Purnell inni i forsalnum. Hann hafði gengið þang- að til þess að sjá hvað um væri að vera. „Falska gamla geit!“ öskraði hún. „Þú ert eins falskur og litað hárið' á þér!“ „Talaðu lægra!“ sagði li&nn áhyggjufullur og leit á fólkið úti fyrir. „Tala lægra! Ég, sem fór i kring- um hálfan hnöttinn til að finna hina einu sönnu trú! Þú tókst alla peningana mína!“ Þú eyðilagðir stúlkurnar mínar! Og nú segirðu mér að tala lægra!“ „Farðu ekki að rífast hérna!“ sagði hann skiparidi. „Ég rífst hvar sem mér sýnist, gamla hræsnari! Mannsins sonur, það segistu vera! Skyldurðu ekki vera einhvers annars son . . . Hún sló hann á vangann með há- um skell, og þegar hún hafði reitt höndina aftur til höggs náði hann taki á handlegg hennar og gat stanzað hana. Þá sleppti hún Hildu og gerði sig liklega til að klóra í augu hans með þeirri hendi, sem þá losnaði. Ben konungur hafði nú misst þol- inmæðina og reiddi hnefann, en þá gerði hann sér ljóst, að fólkið horfði æst á hann og Var að byrja að ryðjast inn. Hann sneri við og reif sig af konunni, en hún hljóp á eftir lionum og reyndi að rifa i skegg hans og hár. Hann náði að hrengja neyðarbjöllu um leið og hann hljóp upp stigann og inn í herbergi á annarri hæð, þar sem liann setti slána fyrir dyr í snatri. Hópur siðhæðra manna kom samstundis á vettvang, vopnaðir kylfum, og skipuðu fólkinu kurteis- lega, en ákveðið, að fara aftur yfir i skemmtigarðinn. Ekkjunni var lika sagt, að hingað ætti hún ekkert erindi, og nokkrir sterklegir ungir ísraelsmenn leiddu hana með valdi hurt án þess að skipta sér að æðis- gengnum hótunum hennar. „Hann er ekki laus við mig, þessi bölvaður svikahrappur!" kallaði hún. „Það er langt frá því!“ Hún flýtti sér að finna Irenu, sem vann sem einkamatreiðslukona konungsins. Hún fór nú með báðar stúlkurnar burt úr nýlendunni og kærði spámanninn siðskcggjaða fyrir að nauðga dætrum sinum. Það höfðu borizt of margar kær- ur fyrir sams konar brot til þess að hægt væri að þegja þetta i hel — frá Mrs. Lulu Baushke, Fortney systrunum, Mose Claró — en Ben Purnell fór aftur i hasti í fri til Kanada meðan liðsmenn hans und- irhjuggu vörn hans af miklum móði. Lögfræðingur hans lagði fyr- ir dóminn mörg hundruð yfirlýs- ingar frá öllum konum safnaðarins, sem komnar voru af barnsaldri, um að konungur þcirra væri hafinn yfir allan grun um saurlífi. Kæra ekkjunnar stóð ein á móti öllum yfirlýsingum og sjöunda konungsrikið hafði staðið af sér cnn einn storminn. En þetta var aðeins skin milli skúra fyrir konunginn. Næsta ár gerði hann þá alvarlegu skyssu, að snúa Esther Johnson gegn sér. Enginn hafði þjónað spámann- inum dyggilegar en þessi granna og smávaxna sænskættaða kona, sem nú var orðin þrítug. Hún liafði svikið, mútað og kúgað ákærend- ur hans. Hún hafði með öllum ráð- um komið i veg fyrir uppþot og óánægju í söfnuðinum, og hún hafði leyst úr öllum vandasömustu mál- um, sem að höndum bárust og aldrei mistekizt eða brugðizt hon- um. Lögfræðingar Bens Purnell héldu þvi seinna fram, að ósamkomulag þeirra hefði byrjað, þegar hann neitaði henni um þúsund dollara til að taka þátt í verzlunarnámskeiði við nærliggjandi háskóla. Sjálf hélt Estlier því fram, að missætti þeirra hefði orðið vegna vináttu hennar við fjölskyldu úr söfnuðinum, sem orðið hafði fyrir vonbrigðum og var að búa sig undir að yfirgefa hann. Siðar giftist hún syni þess- ara hjóna. Það er hugsanlegt að aðrar ástæður hafi einnig legið til þess. 'Ben leyfði venjulega eftirlæt- is stúlkunni sinni í hvert sinn að fá að gera allt, sem hún vildi, og' það er líklegt, að einliver fimmtán eða sextán ára gömul stelpan, af- brýðissöm vegna valds og áhrifa Esther Johnsons, hafi baktalað Esther við liann og snúið Iionum gegn henni. Hver svo sem ástæðan hefur verið, þá var Esther útilokuð frá einkaskrifstofu sinni einn morgun- inn. „Ég vil fá að tala við Benjamín!" sagði hún við nýja einkaritarann hans, H. T. DeWhirst. „Ég trúi því ekki, að hann hagi sér svona óskynsamlega.“ DeWhirst hristi höfuðið kulda- lega. Hann var nýr i söfnuðinum. Hann hafði verið héraðsdómari í Bedlands í Kaliforniu og fyrrver- andi sunnudagaskólakennari í Met- hodistasöfnuðinum. Þegar hann kom fyrst til Húss Daviðs, liafði atvinna hans verið sú, að tína rusl af götum skemmtigarðarins. En upphefð hans var jafn fljót á leið- inni og íall Esther Johnsons. Hcilsu Benjamins konungs hafði hrakað. Gömul meiðsli frá falli af hestbaki háðu honurn upp á síð- kastið, og læknar, sem hann hafði fengið i leyni til að rannsaka sig, höfðu komizt að þeirri niðurstöðu, að hann væri alvarlega veikur af berklum. Hann hafði því i æ ríkara mæli komið vinnunni við stjórn rikisins yfir á herðar annarra og var nú orðinn háður DeWlirist. „Benjamin getur ekki tekið á móti neinum í dag,“ sagði dómar- inn við hana. „Benjamín líður ekki vel i dag.“ „Honum mun líða verr, eftir að ég hef tekið til minna ráða!“ hót- aði Esther. Hún fór aftur til herbergis síns og þar beið Cora Mooney eftir henni. „Benjamín hefur ákveðið að láta breyta þessari álmu hússins,“ sagði æðsta gyðjan í Shiloh. „Hann vill að þú flytjir út á stóra búgarðinn á meðan.“ „Jæja,“ sagði Esther blíðmál. Vistarverur fólksins þar voru ó- merkilegir kofar. Þetta var sama og útlegð. „Sannleikurinn er sá, að þú ert ekki lengur vel séð hér,“ sagði Cora hrokafull. „Það er bezt fyrir þig, að gera þér það ljóst.“ Esther sneri sér að henni og starði á hana. ,3Iér líkar ekki hvernig þú tal- ar,“ sagði hún. „Hvað þér likar eða líkar ekki, er ekki lengur eins mikilvægt og það var einu sinni.“ „Er það ekki‘?“ sagði Esther Johnson og brosti. „Hefurðu nokkra hugmynd um, hve mikið ég veit um þennan stað og allt, sem hér hefur gerzt? Þú ert ekki að tala við Elizu litlu Murphy núna!“ „Hverja — hver er Eliza Mur- phy?“ Rödd æðstu gyðjunnar var orðin hás og titrandi. „Láttu ekki svona!“ Eisther hló kuldalega. „Ég veit um það allt ▼ZKAN U. tbL -

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.