Vikan - 07.03.1963, Síða 51
hún kom inn í gistihússíbúðina gekk
hún út að glugganum og dró djúpt
andann. Hún skefldist eitthvað, sem
hún vissi að var í aðsigi, eitthvað
óþekkt, óumræðilega sterkt og vold-
ugt ... ástin.
,,Ég geri ráð fyrir að þú viljir fá
þér bað“, sagði Frank einhvers stað-
ar á bak við hana.
„Já, þakka þér fyrir“, svaraði hún
og hikaði við andartak áður en hún
leit um öxl. Þótt einkennilegt mætti
virðast, var það fyrst nú sem hún
gerði sér fulla grein fyrir því að hún
væri komin til Parísar. Ekki til ein-
hverrar draumaborgar, en til Paris-
ar, eins og hún var í raunveruleik-
anum. Og það var einmitt þessi hái
gluggi og litlu svalirnar fyrir utan
hann sem vöktu hana til meðvitund-
ar um París. Við slíkan glugga hafði
hún staðið og horft út yfir borgina,
þegar hún var hér í brúðkaupsferð
með Kurt. Og einnig þá hafði hún
fundið til nokkurs ótta. Einkennilegt,
hugsaði hún. Konur koma alltaf til
Parísar í fylgd með karlmönnum.
„Ég verð að taka upp farangur-
inn“, sagði hún við Frank.
„Gott. Má ég hjálpa þér?“ spurði
hann.
í sömu andrá lá hún í faðmi hans
og kyssti hann. Hún hneig í dimm-
rautt þokudjúp, og rankaði aftur við
sér í gistihússherberginu.
Það var sem henni fyndist að
einhver hefði verið vitni að þessum
kossi þeirra, og þegar hún leit um
öxl, blasti við henni brosmilt og
þrýstið andlit Josephine Beauharna-
is. Þetta var heldur illa gerð eftir-
mynd úr gipsi af höggmynd Houd-
ons, og hún stóð á arinnhillunni.
Enn máttvana í hnjáliðunum eftir
kossinn og faðmlögin, reikaði Eve-
lyn til hennar, leitaði athvarfs hjá
henni eins og reyndri systur. Ósjálf-
rátt minntist hún kennslustundar í
listsögu, þegar Damhauser prófessor
hafði sýnt þeim þessa mynd, og
farið um hana allt annað en lof-
samlegum orðum. Það var undarlegt
þetta líf, og óumræðilega löng leið-
in frá þeirri Evelyn, sem hafði setið
í þessari kennslustund í kvenna-
skólanum og þeirrar Evelyn, sem nú
var komin til stefnumóts við elsk-
huga sinn í gistihússíbúð í París.
Henni fannst sem hún hefði upp-
haflega kynnzt þessari Josephine
hjá vönduðu og heiðarlegu fólki,
og að þær hittust nú aftur við þær
aðstæður, sem væru þeim báðum
jafn ósamboðnar. Vitund hennar var
einkennilega tvískipt — það var
sem hún stæði utan við sjálfa sig
og sægi sig annars augum.
Og hún sá að með þessari Parísar-
ferð sinni hélt hún fram af hengi-
fluginu en sá það jafnframt að hún
gat ekki annað, og að henni stóð
gersamlega á sama um hvað við
tæki. Hún sá og fann að hún vildi
það eitt að þessu ósjálfræði yrði
fullnægt, en vissi aftur á móti ekki
í hverju sú fullnæging yrði fólgin.
Og hún vissi að hún var reiðubúin
að taka hvaða niðurlægingu sem
var, einungis til þess að þessu ó-
kunna yrði fullnægt. Með sviða og
sársauka varð hún þess vör, að
Frank leit að vissu leyti niður á
hana fyrir það, að hún hafði orðið
við beiðni hans um að koma. Henni
virtist allt tvírætt og saurugt á þess-
um stað, slitið silkiáklæðið á hús-
gögnunum, hvernig burðarkarl
gistihússins laumaðist um, þegar
hann bar töskuna hennar inn fyrir
þröskuldinn, jafnvel veggfóðrið. Og
uppi í loftinu er dökkur rakablett-
ur frá lekri vatnsleiðslu. Josephine
brosir af meinfýsni og blygðun við
þessu öllu saman.
Frank gekk þvert yfir gólfið, tók
litlu handtöskuna hennar og bar
hana inn í svefnherbergið. Þegar
Evelyn gekk þangað á eftir honum,
sá hún hvernig kvikir vöðvarnir
hnykluðust undir dökkbláum jakka-
fötunum. Þannig var það alltaf; í
hvert skipti sem henni varð litið
á Frank, var sem hún sæi líkama
hans gegnum fötin. Allt varð henni
svo annarlega líkamlegt, eitrað ljúfri
og heitri fýsn. Frank tuldraði eitt-
hvað; hann virtist dálítið vandræða-
legur og það jók henni sjálfsöryggi,
þrátt fyrir allt.
Loftið inni í svefnherberginu var
þungt af dulum ilmi dimmrauðra
rósa, sem stóðu á náttborðinu við
rekkjuna. Og um leið var sem allt
yrði fegurra og þokkafyllra; rósirnar
voru henni dýrmætt og dulúðugt
tákn, öldungis eins og mímósurnar,
sem henni höfðu borizt heim í
Dússeldorfstrasse. Kannski hafði
Frank þann háttinn á, þegar hann
vildi tjá ást sína. Kannski veittist
honum erfitt að tjá sig í orðum;
kannski var hann feiminn og hlé-
drægur, bak við hið örugga og til-
þrifamikla fas sitt.
„Þakka þér fyrir“, sagði hún af
innileik. Hún hafði herbergi út af
fyrir sig, það gerði henni strax allt
auðveldara. Hún óttaðist rekkjuna
og varaðist að líta hana, Frank lét
einnig sem hann sæi hana ekki.
Það sem næst kom henni á óvart
var svo það, að hann hafði skráð
hana á gestalistann sem eiginkonu
sína. Það jók nokkuð álit hennar
á staðnum, en um leið snart það
hana sem snöggt svipuhögg; það
var eins og allt yrði enn tviræðara
og ógagnsærra fyrir bragðið. ann-
ars var það í sjálfu sér hlægilegt
að hugsa sér Frank í hlutverki
eiginmanns.
Hún hafði orð á því, að hann væri
alger mótsetning við það að vera
eiginmaður, þegar hann hjálpaði
henni við að taka upp úr ferða-
töskunni og bar síðan smádótið
hennar inn í svefnherbergið. Og
hann nam staðar á þröskuldinum
með tannsápustaukinn hennar í
hendinni.
„Einmitt það? Og hvernig er svo
þessi algera mótsetning við eigin-
mann, ef ég má spyrja?"
Framhald í næsta blaði.
H.F. RAFTÆKJA VERKSMIÐJAN
HAFNARFIRÐI
Símar: 50022 - 50023 - 50322
Kœlitœki fyrir kaupmenn og kaup-
félög, ýmsar gerðir og stœrðir. —
Leitið upplýsinga um uerð og
greiðsluskilmála.
Frystikistur, 2 stœrðir
1501 og 3001■— fyrir
heimili, verzlanir og
veitingahús.
VIKAN 10. tbl. -