Vikan - 04.04.1963, Blaðsíða 31
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
leg
®Hrútsmerkið (21. marz—21. apríl);
í hönd fara mjög skemmtilegir dagar, og þér heppn-
ast næstum ailt sem þú tekur. þér fyrir hendur. Ein-
hverjar breytingar gætu orðið á högum þfnum á mánu-
dag eða þriðjudag, ef til vill smá ferðalag eða óvenju-
skemmtun. Á vinnustað verður líf og fjör.
©Nautsmerkið (21. apríl—21. mal):
Það mun ýmislegt vera uppi á teningnum í ástamálum
þeirra sem fæddir eru 17.—22. mai, og eru stjörnurnar
þeim hliðhollar sem fæddir eru á þessu tímabili. Ef
þú dvelur fjarri þeim, sem þér er kærastur, þá reyndu
að komast í samband við hann/hana.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní):
Þú átt einhverja vangoldna heimsókn sem þú ættir
ekki að draga lengur. Ef til vill væri heppilegt fyrir
þig að hringja áður og láta kunningja þinn vita, að
þú sért enn með lífsmarki. Á vinnustað leysist nú úr
máli sem þú hingað til hefur aðeins haft erfiði og ergelsi af.
Krabbamerkið (22. júni—23. júlí):
Láttu ekkj löngunina til að taka lífinu rólega sigra
þig þessa vikuna og mundu að hæfileikar þínir fá ekki
notið sín nema þú sért fyllilega vakandi og með á
nótunum. Atvik sem þú í fyrstu gefur ekki gaum, getur
hins vegar síðar komið þér að góðu gagni. Einkunnarorð þessarar
viku er því: Vertu vel vakandi.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ágúst):
Gk Upp úr helginni skeður ýmislegt sem þú veizt ekki
* alveg hvernig þú átt að snúa þér í. Líklegt er að
^ þú komist að einhverju sem ekki er á allra vitorði
og verður því að vera sérstaklega gætinn í viðræð-
um við meðbræður þína og systur.
©Meyjarmerkið (24. ágúst—23. september):
Gættu framkomu þinnar vel og reyndu að vera
sem látlausastur og alþýðlegastur. Leiðréttu strax
misskilning sem komið hefur fram vegna hreinskilni
þinnar. Taktu ekki þátt í neinu slúðri eða baktali.
Með lipurð ætti þér að takast að koma þér nokkuð vel fyrir.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.):
í þessari viku skaltu vera vel á verði og leggja ekki
í neinar framkvæmdir. Samtöl við yfirboðara þina og
peningamál ættirðu að leiða sem mest hjá þér fyrri
part vikunnar, en upp úr helginni rofar aftur tii fyrir
þér. Mánudagskvöld er gæfurikt elskendum.
Drekamerkið (24. október—22. nóv.):
Mörgum þeirra sem fæddir eru milli 15.—20. verður
þetta hreinasta sæluvika. Brúðkaup eða trúlofun setur
ef til vill svip sinn á þetta tímabil. Fólk yfir þritugt
getur hins vegar glatt sig yfir góðri heilsu og heppni
á vinnustað. Rauður litur gæti fært lukku.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. dcs.):
Vandamál elskenda, sem þeir hugðu leyst, endurtekur
MVWk sig nú og verðurðu að láta skynsemina ráða og gæta
B vei orða þinna og athafna ef ekki á allt að fara upp
í loft. Vertu varkár þessa viku. Reyndu að vera vin-
um þínum trúr og umgakkstu meir persónur af þínu eigin kyni.
Gcitarmerkið (22. des.—20. jan.):
0Þú lendir i einhverri rimmu við kunningja þinn, eins
og þú hefur hálfvegis búizt við. Ef skjöldur þinn er
hreinn í þessu máli þá er líklegt að kunningi þinn
leyni einhverju sem gæti leyst misklíðina. Talaðu
hreint út og varastu stóryrði.
Vatnsbcramcrkið (21. janúar—19. fcbrúar):
í atvinnulífinu og hinni hagfræðilegu hlið lífsins
geta orðið breytingar til batnaðar. Þó að gæfan virð-
ist blasa við þér í þeim efnum, verðurðu samt að
vera virkur þátttakandi sjálfur og dálítið klókur.
Bezt virðist þeim vegna, sem fæddir eru frá 21. janúar til 2.
febrúar.
Fiskamerkið (20. febrúar—20 marz):
©Láttu nú hendur standa fram úr ermum þessa dag-
ana. Fyrir suma þýðir þetta ef til vill smá ferðalag
eða óvanalega heimsókn. Þriðjudagur og miðviku-
dagur eru líklegir til að færa þér eitthvað nýtt
og skemmtilegt. Kvöld vikunnar eru happadrjúg þeim, sem
vilja sinna hjartans málum.
Það fegursta sem konan á,
erAUGUN
Notið
augnsnyrtivörur eru heimsþekktar.
Snyrtingu yðar er ekki lokið
fyrr en augnaumbúnaðurinn
liefur fengið fullkomna
snyrtingu.
fæst í næstu snyrtivöru-
verzlun.
H. A. Tulinius - Heildverzlun
2Q — VIKAN 14. tbl.
Happasælt hneyksli.
Framhald af bls. 16.
gamli vinur minn hefði ekki mál-
ungi matar norður í Kaupmanna-
höfn, en ég lifði hér sem blóm í
eggi. Ég ákvað að ræða málið við
herra Carstensen.
Hann sat álútur yfir skjölum og
tölum, þegar ég gekk inn í skrif-
stofuna. Ég sá, að hann var með
talsverðum áhyggjusvip, kannski
var það fremur ergelsissvipur.
Hann benti mér að setjast and-
spænis sér.
— Velkominn! Þú ert sjaldséður
gestur hér!
— Það þorir enginn að ónáða þig
hér, jafnvel ekki frú Carstensen.
— Oh, ætli hún drifi sig ekki í
það ef henni væri mikið niðri fyr-
ir! Vindil?
— Jú, takk!
— Glas af Bourgogne, úr því að
þú gerir mér þessa ánægju?
— Já, takk!
— Gerðu svo vel! Þetta er
Romanée, betra fæst ekki í litlu
Danmörku. Það hefur einn kost.
Það léttir áhyggjunum. Skál!
Hann brosti sínu ljúfmannlegasta
brosi.
— Ég þakka! Það kemur sér á-
gætlega fyrir mig í dag.
— Hvað er að?
— Það er vinur minn inni í
Kaupmannahöfn, íslenzkur tónlist-
armaður. Hann á í erfiðleikum, hef-
ur brugðizt atvinna í bili. Hann
sveltur.
— Láttu hann koma hingað!
Hann getur spilað með konunni
minni og hjálpað okkur til að borða
matinn.
— Er þér alvara?
— Fullkomlega. Hann er vel-
kominn mín vegna. Er þetta annars
dugandi maður?
— Mjög. Hann nálgast það að
vera snillingur. En ...
— En hvað?
— Hann er dálítið rauður og get-
ur verið dálítið tannhvass, finnst
stundum, að hann' megi til, sóma
síns vegna, að vera óvinur þjóðfé-
ldgsins.
Hann hló. — Við spyrjum aldrei
um lit hér og ef hann verður of
tannhvass, þá stingur vonandi ein-
hver upp í hann. Ég geng út frá,
að hann kunni mannasiði.
— Jú, blessaður vertu — svona
innan um sæmilega umburðarlynt
fólk.
— Ágætt! Útrætt mál! Talaðu um
þetta við konu mína og símaðu svo
til mannsins. — Svo fáum við okk-
ur annað glas af Romanée til þess
að létta áhyggjum mínum. Það er
ekki langt þangað til ég verð, sóma
míns vegna, einn af óvinum þjóð-
félagsins.
— Hvað er að? spurði ég með hans
eigin orðum.
— Það á að fara að þvæla mér
út í vitleysu. Ég finn á mér, að það
er vitleysa. Og það er ekkert, sem
mér er eins bölvanlega við, eins og
að láta þvæla mér út í vitleysu. En
það getur orðið nógu bölvað við-
fangs að venjast því og kostar
kannski annað eins, þegar öllu er
á botninn hvolft. Fyrirgefðu, ég er
alltaf dálítið geðvondur, þegar ég
veit ekki, hvað gera skal.
— Þú gerir mig forvitinn. Hvað
er um að vera?
— Þú veizt, að hér á Suður-
Sjálandi er dálítið járnbrautarfyrir-
tæki í einkaeign, Suðursjálenzka
járnbrautarfélagið, hið eina, sem
Ríkisjárnbrautirnar hafa ekki enn-
þá keypt, eða öllu heldur náð kaup-
um á. Það hefur verið gróðafyrir-
tæki, en það er að fara á hausinn.
Hluthafarnir eru helztu burgeisam-
ir hér í Köge, Fakse-Ladeplads og
Næstved, formaður þeirra er gamli
refurinn Ivar Eskjær bankastjóri.
Ég neita því ekki, að þetta er þarfa
fyrirtæki fyrir þennan landshluta
— verður blátt áfram að vera til og
í rekstri — en það ber sig aldrei
framar. Ástæður hafa breytzt og
grundvöllur fyrir hallalausum
rekstri, hvað þá heldur ágóða, er
ekki framar til. Þetta vita þeir í
Ríkisjárnbrautunum. Þeir vildu
kaupa fyrirtækið fyrir 25 árum, en
fengu ekki. Þeir verða neyddir til
að taka upp reksturinn á línunum,
þegar fyrirtækið er farið á hausinn.
En þeir hreyfa sig ekki fyrr en þeir
verða að taka við draslinu gjald-
þrota — fyrir ekkert — eða sama
og. ekkert. Þetta veit ég, en þetta
skilja þeir ekki, þöngulhausarnir í
félaginu. Hver króna, sem í þetta
er lögð úr þessu, er glötuð.
— Eruð þið hluthafar?
— Nei, sem betur fer! En Eskjær
gamli í bankanum er alráðinn í
því að plokka saman nýtt hlutafé
til þess að koma félaginu á lappirn-
ar — tilsýndar. Það verður vitan-
lega aldrei annað. Svo prangar
hann sínum hlutabréfum inn á ein-
hvern fávita meðan allt lítur sæmi-
lega út. Svo má allt fara á hausinn
og hinir tapa hverjum eyri. Það
mun ekki bíta á hann, karlinn. En
hann er að gera áhlaup — hefur
skrifað okkur nokkrum „þjóðfélags-
stólpum" álitsskjal um málið og
kveðst brátt muni kveðja okkur til
fundar „til þess að leysa þetta
vandamál í allri vinsemd vegna al-
mennrar nauðsynjar“. Ja, svei!
— Þarftu að gegna slíku kalli?
— Ivar Eskjær er harður og
slunginn. Og hann er voldugur.
Hann getur skaðað mitt fyrirtæki
alveg miskunnarlaust, ef ég hef
hann ekki sæmilega góðan. Hann
gæti sennilega langleiðina gert út
af við það. Og mundi ekki hlífast
við, ef hann gæti.
— En hefurðu fé að leggja í
þetta?
— Ég á ekki lausa krónu til. Það
litla, sem ég á er bundið í rekstri.
Það er fé konu minnar, sem hann
er að slægjast eftir. Hann hefur
verið svo blygðunarlaus að segja
mér í einkaviðtali, að sér fyndist
ekki einungis eðlilegt, heldur sjálf-
sagt, að hún yrði mestur styrktar-
maður þessa fyrirtækis. — Hann
veit allt um hennar fjárreiður. Ég
veit ekki hvar í fjandanum hann
grefur það upp. Ekki frá mér! —
Útaf fyrir sig færi það ekki með
okkur að tapa 30 þúsund krónum.
En ég hef bara ekki geð í mér til
þess af því tvennu, að það er vita
«111 g
NOTIÐ ^ANCASTER SNYRTIV ÖRUR
DAGKREM
NÆRINGARKREM
ANDLITSM J ÓLK
ANDLITSKREM
BODY MILK
MAKE-UP
STEINPÚÐUR
LAUST PÚÐUR
VARALITIR
VARALITABLÝANTAR
AUGNPOKAKREM
AU GNHÁR ALITUR
AUGNSKUGGAR
AUGNABRÚNABLÝANTAR
KINNALITIR
ÚTSÖLUSTAÐIR: Vcrzlunin Tíbrá, Laugavegi, Tízkuskólinn, Laugavegi 133,
Holtsapótek, Langholtsvcgi, Gjafa- og snyrtivörubúðin, Bankastræti, Tjarnar-
hárgreiðslustofan, Tjarnargötu, Silfurbúðin, Vestmannaeyjum.
VIKAN 14. tbl. — gj