Vikan - 05.12.1963, Síða 4
ÞórhallurSigurjónsson hf
Þingholtsstræti 11
Símar 18450 og 20920
Sífelldar spurningar ...
Kæri Póstur!
Ég er 22 ára og líklega ekki
óálitlegri en gerist og gengur. En
það er eitt, sem ég þoli ekki, og
það eru þessar sífelldu spurn-
ingar: „ætlarðu ekki bráðum að
fara að hugsa um að gifta þig,
vina min?“ Og ekki eru foreldr-
ar mínir beztir. Þau eru síspyrj-
andi. Það endar með því að ég
fyllist þrjózku og dey uppþornuð
piparkerling.
Það vill nú einu sinni þannig
til, að ég er ekki „skotin“ þessa
dagana, og ég hef ekki hugsað
mér að rembast við að verða
það. Þetta verður líklega að
koma að sjálfu sér. Ég vonast til
þess að giftast einhvern daginn,
en mér liggur bara ekkert á. Mér
kemur ekkert við, hvað öðrum
finnst: þegar ég giftist, giftist ég
sjálfrar mín vegna en ekki ann-
arra. En hvað sem því líður, þá
fara þessar sífelldu spurningar
óskaplega í taugarnar á mér.
Hvað á ég að taka til bragðs?
Ógift.
--------Klipptu þetta bréf út
úr Vikunni og iáttu fjölrita það.
Svo geturðu útbýtt því til allra
þeirra, sem eru að hnýsast í þín
einkamál.
Tengdamamma...
Kæri Póstur!
Hún tengdamamma mín er
er ágætasta kerling, en stundum
hættir henni til þess að verða ein-
um of afskiptasöm, eins og í
skrýtlunum. Yfirleitt umber ég
þessa afskiptasemi, en þó er eitt,
sem ég þoli ekki:
Þegar hún kemur í heimsókn
til okkar, á hún það til að reka
upp skaðræðisvein, slá sér á lær
og óskapast lengi yfir því,
hvernig húsgögnunum, myndun-
um á veggjunum og öðru er fyr-
ir komið. Og sú gamla lætur ekki
sitja við orðin tóm. Nei, hún læt-
ur hendur standa fram úr ermum
og byrjar að rútta öllu til, þang-
að til allt húsið okkar er ein
argasta ringulreið.
Hverjum manni er nú gefinn
takmarkaður skammtur af þolin-
mæði, og minn er alveg á þrot-
um. En áður en það verður, þætti
mér vænt um að fá gott ráð hjá
þér, Póstur minn.
-----— Næst þegar þú ferð í
heimsókn til tengdamömmu,
skaltu svona smádutla við að
breyta íbúðinni hennar: færa til
stóla, myndir (jafnvel snúa þeim
á hvolf), stilla hrærivélinni
hennar upp á píanóið, setja tann-
burstann hennar í litla Bing &
Gröndal-vasann, eða eitthvað
þvílíkt — þegjandi og hljóða-
laust. — Ef hún skilur ekki
sneiðina, skaltu flytja til Ástral-
íu.
Stereo . ..
Póstur sæll!
Veiztu, hvort nokkurt íslenzkt
orð er til yfir „stereo“? Mér
finnst þetta andstyggilega leið-
inlegt orð, og væri vel, ef ein-
hver gæti fundið gott íslenzkt
heiti yfir það.
Vertu svo sæll.
Málvinur.
— — _ Eftir því sem ég veit
þá á íslenzkan ekkert orð yfir
þetta fyrirbrigði, en ef svo er,
þá er það orð svo óþjált og tor-
kennilegt, að það hefur ekki náð
að festast í málinu. Annars finnst
mér sosum stereó ekki verra orð
en t.d. bíó — og bíó finnst mér
alveg fyrirtak.
Systrabrúðkaup . . .
Kæra Vika!
Mér er boðið í systrabrúðkaup
eftir rúman mánuð. Nú vill svo
til, að ég þekki ekkert aðra syst-
urina, en hina þekki ég mjög
vel.
Nú kemur svo vandamálið:
Þarf ég að gefa báðum brúðhjón-
unum brúðargjöf? Væri ekki
ægilega dónalegt að gefa bara
þeirri systurinni, sem ég þekki?
Ein í vanda.
-----— Auðvitað gefurðu bara
þeirri, sem þú þekkir. Ef annað
þætti viðeigandi, gæti það orðið
dálaglegur „bisness" að gifta sig
í stórum hópum.
17 bréf . . .
Kæri Póstur!
Hvernig er það með þig, Póst-
ur minn, ég er búin að skrifa þér
17 bréf, og ekkert þeirra hefur
birzt ennþá. Er þér eitthvað illa
við mig eða hvað?
T.V.
Lóa.