Vikan


Vikan - 05.12.1963, Qupperneq 18

Vikan - 05.12.1963, Qupperneq 18
 UNDIR FJOGUR flUGU EFTIW Furðufuglinn Ég sat á háfættum stól við glæsilegan og fallegan vínbar á veitingahúsi í Kent, um 30 km. fyrir utan London. Fyrir frarnan mig á borðinu var freyðandi kampavín á háu, mjóu glasi. Ég var þarna staddur í boði Loftleiða, sem oft fer með gesti sína á þennan yndislega stað, og forstöðumaður félags- ins í London, Mr. Orme sat mér til vinstri handar, en eigin- kona hans sat mér á hægi hönd. Mér leið einstaklega vel, var í konunglegu skapi og fannst eins og ég ætti töluverðan slatta af heiminum. Beint fyrir framan mig, fyrir innan barborðið, hékk fugla- búr og í því var lítill, svartur fugl, sem stóð þar á priki og virtist hafa mikinn áhuga á þvi, sem fram fór í salnum. Mér fannst fuglinn svo skoplegur, en jafnframt dálítið ein- manalegur þarna í búrinu, að ég ákvað að ávarpa hann fyrir kurteisissakir, og sagði því við hann um leið og ég veifaði til hans hendi: „Halló!“ Fuglinn lagði undir flatt, einblíndi á mig öðru auganu, opnaði gogginn og sagði skýrt og greinilega: ,,Halló!“ Mér brá óneitanlega. Brosið hvarf af andliti mínu, ég fann að ég roðnaði í framan og mér svelgdist á sopanum, sem var kominn upp í mig. Ég lokaði augunum augnablik, en leit svo laumulega til sessunauta niinna, til að vita hvort þau hefðu tekið eftir nokkru, en svo virtist alls ekki. Ég hafði aldrei tekið eftir því fyrr að ég heyrði ofheyrnir. Það hefur jú komið fyrir að ég hafi séð tvöfalt, en aldrei að ég hafi heyrt tvöfalt. Þetta var eitthvað grunsamlegt, og bezt að fara varlega í sakirnir. Ég setti glasið á borðið, reyndi að gleyma atvikinu, snéri m,ér að frúnni og við fórum að ræða saman. Eftir augnablik sagði hún einhvern brandara, sem kom mér til að skellihlægja, og mér er sagt að ef ég hlægi á annað borð, þá sé það ekkert hálfkák. Ég halla höfðinu afturábak, opna munninn upp á gátt og segi: „HA - HA - HA - HA!“ Um leið og ég lauk ha-ha-ha-ha-ha-inu, var það endur- tekið alveg nákvæmlega, rétt við eyrað á mér. Málrómur- inn var nákvæmlega eins, tónstyrkleikinn og allt hvað eina. Nú brá mér heldur ónotalega. Nú, það er þá bara svona, húgsaði ég, og greip báðum höndum í borðröndina. Nú er það ljott! En ekki skánaði það. Nú sprungu hjónin bæði, og velt- ust um af hlátri. Barþjónninn settist niður og hló, og ég heyrði að allur salurinn glumdi af hlátrarsköllum við- staddra. Ég var orðinn náfölur og leit flóttalegum augum til dyr- anna, ýtti barstólnum frá borðinu og bjóst til að flýja. En áður en af því gæti orðið, lagði Mr. Orme handlegginn utan um herðar mér og stamaði á milli hláturkviðanna: „Þetta er allt í lagi, Mr. Karlsson, þetta er bara hann Toby, sem er að stríða þér.“ „Toby . . . ? Hver er Toby?“ spurði ég. Hann benti á fuglinn svarta i búrinu og hristi af hlátri. Ég leit á fuglinn og fuglinn leit á mig. Svo glennti hann upp ginið og hrópaði svo undir tók í salnum: „Quiet, please!" sem mætti útleggja: Vinsamlega haldið ykkur saman. Nú skildi ég loksins. Þetta var talandi fugl. Mér létti auðvitað stórlega, en hláturinn braust um leið fram aftur, og nú hafði ég engar hömlur á honum, og það leið góð stund þangað til ég gat farið að þurrka tárin úr augunum og hlusta á útskýringar sessunauta minna. Fuglinn kom frá Indlandi, en ég man hreint ekki hvað hann heitir. Víst er að það var ekki páfagaukur, því ég margspurði um það. Nei þetta var einhver önnur fuglsteg- und, sem er svona einstaklega námfús og fjölhæfur í radd- böndunum. Það sá ég, þegar bæði ég og aðrir fóru að tala við hann. Hann hafði sýnilega mikið yndi af að tala, og Jg — VIKAN 49. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.