Vikan - 05.12.1963, Side 24
ÆTLAÐI AÐ KAUPA
TUTTUGU TOGARA...
FKAMHALD AF BLS. 9.
leika átti tónsmíðar hans á
hljómleikum, gat farið svo að
hann bannaði það með öllu, á
síðasta augnabiiki. Hann ferðað-
ist land úr landi, borg úr borg,
en undi sér hvergi, og þótt hann
hefði nokkur fjárráð vegna arfs
eftir foreldra sína, þá hélzt hon-
um ekki á því vegna íburðar í
lifnaðarháttum, og það kom æ
oftar fyrir, að hann tók þann
kostinn að flýja undan skuldu-
nautum sínum, unz hann átti
hvergi lengur griðastað. Þá var
það, að hann tók þá ákvörðun
að fara alferinn til íslands, og
freista gæfunnar þar. Hér lagði
hann svo alla sína fjármuni á
eitt bretti í síðustu tilraun til að
verða efnahagslega sjálfstæður,
og tók jafnvel til þess höfuðstól-
inn, sem hann hafði fengið rent-
ur af og iifað á fram að því. Hann
setti þannig alla sína peninga í
þau vafasömu fyrirtæki, sem
hann stofnaði hér, — og þegar
allra vonir brustu að lokum, og
hann sá fram á að hann væri ai-
gjörlega eignalaus maður, þá bil-
aði hugrekkið og hann greip ti!
skammbyssunnar.
Um tíma ætlaði baróninn að
laða til sín erlenda veiðimenn
og skapa einhverskonar paradís
laxveiðimanna í Borgarfirðinum.
Til þess kej'pti hann m.a. veiði-
réttinn í Hv;tá cg Grímsá og í
tveim vötnum þar, Langadals-
vatni og Blundsvatni. Við Langa-
dalsvatn reisti hann sér svo sum-
arbústað og dvaldi þar oft við
veiðar. Við Blundsvatn hugsaði
hann sér að reisa mikið hús eða
höil fyrir erlenda laxveiðimenn,
en af því varð aldrei, enda veiði
Htil sem enginn í vatninu, og nú
mun það vera að mestu upp-
þornað.
Þá datt honum það í hug, að
reisa mikið kúabú hér í Reykja-
vík og selja hér mjólk, Keypti
hann lóðarréttindi undir hús
neðst við Barónstíginn — sem
er nefndur eftir honum — og lét
reisa þar mikið fjós, sem tók um
40 nautgripi. Kostaði fjósið um
20 þúsund krónur, sem var geysi-
legt fjármagn á þeim tíma. Rak
hann svo þetta kúabú, en það
kom brátt í Ijós að enginn fjár-
hagslegur grundvöllur var fyrir
slíkum rekstri, jafnvel þótt
mjólkurlítirinn kostaði þá 15
aura, — sem líklega mundi jafn-
gilda 12—15 krónum nú. Þess
vegna var honum nauðugur einn
kostur að selja fyrirtækið, og
fór fjósið fyrir einar átta þúsund
krónur, og hafði hann þá beðið
stjórtjón á ævintýrinu.
Til þsss að anna öllum þeim
miklu flutningum, sem áttu sér
stað milli Reykjavíkur og Hvítár-
valla, datt baróninum það þjóð-
ráð í hug að kaupa sér stóran
24
bát og lét setja í hann gufuvél.
Bátinn nefndi hann Hvítá, og lét
hann ganga á milli með pramma
í eftirdragi. Fór báturinn upp
Hvítá og allla leið að túnjaðrin-
um á Hvítárvöllum, og þótti
þetta að vonum mikið framtak
og snilli að sigla gufubáti all
langt inn í land, og sáu þá marg-
ir fyrir sér miklar skipaferðir
á íslenzkum ám og vötnum í
framtíðinni. Báturinn gekk fram
og til baka eftir þörfum í tvö
ár, en þá sneri baróninn sér að
öðrum viðfangsefnum og seldi
bátinn til Milljónafélagsins.
Það er ekki nema von til þess,
að maður eins og C. Gauldrec de
Boilleau barón, hafi ekki unað
öllum stundum á búgarði sínum
uppi í Borgarfirði, jafnvel þótt
þar væri margt manna, gest-
kvæmt og gnægð matar og
drykkjarfanga. Að vísu notaði
hann oft tímann þar til að iðka
hljóðfæraslátt, bæði á píanó og
celló, og jafnvel til að semja
tónverk. Eru gögn til fyrir því
að hann hafi samið óperu sem
hann sendi bróður sínum í
Bandaríkjunum til gagnrýni, og
var hann mjög hrifinn af. En
baróninn var vanur lífi stórborg-
anna erlendis, samkvæmum og
heimsóknum til vina og kunn-
ingja. Þessvegna dvaldi hann
mikið í Reykjavík, og þar kom
að hann hann keypti sér hús hér
til að hafa sem dvalarstað í bæn-
um, og bjó það dýrindis hús-
gögnum og hljóðfærum. Þetta
hús stóð við Laugaveg og er
númer 90 þar sem það stendur
enn í dag við hliðina á Stjörnu-
bíó. Um kaupverðið er ekki vit-
að, en húsið var þá nýbyggt og
hið vandaðasta, og er ekki að efa
að þar hefur enning pyngja bar-
ónsins lézt um drjúgan skilding.
Hugmyndaflug barónsins var
geysiauðugt, og kom það m.a.
fram í ýmsum framkvæmdum
hans á sviði landbúnaðar og
ræktunar. Hann fór strax að
raekta skrúðgarða að Hvítárvöll-
um og sparaði ekkert til þeirra
frekar en annars, sem hann tók
sér fyrir hendur. Hann safnaði
þangað fjölda trjátegunda og
blóma, og var þetta mikil ný-
lunda hér á landi. Urðu garðarn-
ir mjög fagrir á meðan hans
naut við, en féllu síðan í niður-
níðslu og var loks breytt í kart-
öflugarða.
Þá skrifaði hann t.d. merka
ritgerð um meðferð og geymslu
húsdýraáburðar. Hafði hann afÞ
að sér haldgóðrar þekkingar á
íslenzkum jarðvegi, með því að
senda sýnishorn af honum til
efnagreiningar.
Fyrri hluta ársins 1901 skrifaði
hann athyglisverða grein í tsa-
fold, sem hét: Mikilsverð fram-
faratilraun. Þessi grein er í raun
og veru upphafið að endalokum
hans, þótt hún sé að flestu leyti
uppbyggileg og sýni mikinn og
lofsverðan áhuga fyrir framför-
um í landinu, bendi á margt,
sem miður var, og aðferðir til úr-
bóta. Komst baróninn þar að
þeirri niðurstöðu að íslenzka
þjóðin þjáðist af efnaleysi, ein-
angrun, framtaksleysi og út-
haldsleysi, og hann er tilbúinn
með tillögur til úrbóta — og
það í stórum stíl.
í stuttu máli þá leggur hann
til, að stofnað verði hlutafélag,
sem hann sjálfur hyggst eiga
frumkvæðið að. Félagið kaupi
síðan allt að 20 togara frá Eng-
landi, á þá séu ráðnir íslending-
ar, og að skipin fái leyfi til að
fiska innan landhelgi við suður-
ströndina frá Reykjanesi að
Ingólfshöfða, en gegn þessu
leyfi skuli félagið sjá svo um,
að Faxaflóinn verði algerlega
friðaður fyrir togurum frá Eng-
landi. Þá gerir hann einnig ráð
fyrir að félagið eignist tvö milli-
landaskip til að flytja aflann iit
og til annarra flutninga í sam-
bandi við þetta mikla fyrirtæki.
Aðalstöðvar félagsins hugsar
hann sér í Reykjavík, vegna erf-
iðleika við hafnarframkvæmdir
við suðurströndina.
Frumvarp til laga um heimild
til þess að stofna þetta fyrir-
tæki, og reka það á þessum
grundvelli, var lagt fyrir Alþingi
um þetta leyti og batt baróninn
og aðrir að sjálfsögðu miklar
vonir við þetta, ef leyfi Alþingis
fengist. Fullyrti baróninn í grein-
inni, að ekki mundi standa á
nægu fé erlendis frá, til að stofna
félagið og reka það, en til þess
þurfti að sjálfsögðu margar millj-
ónir, jafnvel á þeim tíma.
Svo fullviss var hann um af-
greiðslu þessa máls á Alþingi, að
hann fór utan til Englands áður
en málið skyldi tekið þar fyrir,
og fór að leggja drög að stofnun
félagsins þar.
Svo dundu á hann reiðarslög-
in hvert af öðru.
Frumvarpið á Alþingi var fellt
með jöfnum atkvæðum 10:10.
Honum mistókst algerlega
stofnun félagsins erlendis, og
hefði líklega einnig farið svo,
þótt leyfi fengizt til reksturs
þess hér heima.
Hann sá fram á algjört gjald-
þrot hjá sér, og enga möguleika
til björgunar á neinn þann máta,
sem honum fannst sæmandi. Það
var komið svo, að hann átti ekki
farareyri aftur til íslands í reiðu-
fé, og því tók hann þann kost-
inn að fara aðra ferð, þar sem
fargjaldið var minna . . .
Hann var aðeins 37 ára gamall,
þegar hann hleypti af skamm-
byssuskotinu í höfuð sér ,,í geð-
veikiskasti", eins og segir í h'k-
skoðunarvottorðinu.
Lát hans var tilkynnt öllum
ættingjum og auglýst í erlendum
blöðum, jafnframt því að auglýst
var eftir kröfum á hendur dánar-
búsins, en með það hafði Sigurð-
ur Þórðarson, sýslumaður Borg-
firðinga að gera. Leið svo fram
í Júní 1902, að reikningar og
ýmsar kröfur bárust sýslumanni.
Sá hann fram á að eignir bús-
ins mundu ekki nægja til að
greiða skuldirnar, og skrifaði
hann bróður barónsins í Banda-
ríkjunum fyrirspurn hvort að
hann hefði umsjón með einhverj-
um eignum hans, en ekki er það
að sjá í skjölum að hann hafi
fengið svar við því. Fór því svo
að opinbert uppboð var haldið
á eignum barónsins. Fór það
fram á Hvítárvöllum dagana 22.
Framhald á l)!s. 50
UNGFRU YNDISFRIÐ
býður yður hið landsþekkta
konfekt frá N Ó A.
HVAR E R ÓRKIN HANS NOA2
l»að cr alltaf sami leikurinn í hénni Ynd-
isfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans
Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitlr
góðum verðlaunum handa þeim, sem getur
fundið örkina. Verðlaunin eru stór kon-
fektkassi, fullur af hezta konfekti, og
framleiðandinn er auðvitað Sælgætisgerð-
in Nói.
Nafn
Heimill
Örkin er á hls.
Sfðast er dregið var hlaut verðlaunln:
Kolbrún Hákonardóttir,
Hólmgarði 54, Rvík
Vinninganna má vitja á skrítstotu
Vikunnar.
- VIKAN 49. tbl.